Fréttablaðið - 23.12.2014, Qupperneq 52
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 48
„Við erum að spila vínyl og fólk
má koma með eigin plötu til að fá
óskalög, eða þá fletta í gegnum
okkar plötur,“
segir plötu-
snældan Katla
Ásgeirsdóttir,
sem stendur
fyrir sérstöku
óskalagakvöldi
á Þorláksmessu
á skemmti-
staðnum Bravó,
ásamt plötu-
snúðnum Ísari
Loga Arnarssyni.
Tvíeykið hélt fyrsta kvöldið nú
á sunnudag. „Ég var bara með
„spontant“ í fyrradag, það var
ógeðslega skemmtilegt þannig
að við ákváðum að kýla í annað,“
segir Katla. „Hugmyndin var að
fólk kæmi með sínar eigin vínyl-
plötur og fá óskalög, þannig að
maður þarf að hafa smá fyrir
óskalaginu.“ - þij
Halda kvöld
fyrir óskalög
KATLA
ÁSGEIRSDÓTTIR
Ása Ninna Pétursdóttir, eigandi
GK Reykjavík, hannaði línuna
Eyland fyrir um einu og hálfu
ári og er hún loksins komin í búð,
korter í jól. „Það er mikil spenna
og gleði að vera loksins búin að fá
barnið heim. Þetta er búin að vera
löng fæðing,“ segir Ása.
Línan inniheldur átján stíla, þar
af sjö sem eru úr leðri. „Af þess-
um sjö eru tveir leðursamfesting-
ar, sem mun kannski ekki teljast
mjög skynsamlegt, en klárlega
mest spennandi að mínu mati,“
segir hún, en von er á fleiri stílum
strax í janúar. Ferlið er búið að
taka óvenjulangan tíma, en eins
og margir vita þá settu húsnæð-
ismál verslunarinnar GK strik í
reikninginn, en þau misstu hús-
næðið fyrr en áætlað var vegna
hótelframkvæmda.
„Þetta hefur verið mikill og
góður skóli, en ég er rosalega
sátt við útkomuna í dag. Ég hef
verið heppin að vinna með góðu
fólki sem er búið að hjálpa mér
mikið við þetta ferli. Enginn er
jú eyland, eins og skáldið sagði,“
segir Ása. - asi
Eins og hálfs árs bið er á enda
Eyland, fyrsta fatalína Ásu Ninnu Pétursdóttur hjá GK, kom í verslanir í gær.
STOLT AF LÍNUNNI Ása Ninna
Pétursdóttir, hönnuður Eylands.
MYND/ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR
Mörgum þykir skatan herra-
mannsmatur en aðrir eru ekki
eins hrifnir og er það oft lyktin
sem veldur.
Skötulykt er sérstök og mörgum
þykir hún jafnvel yfirþyrmandi,
hún sest gjarnan í föt og staldrar
lengur við í húsakynnum en fólk
vill.
Af þessum sökum hafa margir
skötuunnendur brugðið á það ráð
að borða hana annars staðar en
heima og þannig slegið tvær flug-
ur í einu höggi, fengið að snæða
vel kæsta skötu án þess að lyktin
setjist í jólagjafirnar.
Hægt er að melda sig í skötu-
veislur á ýmsum stöðum meðal
annars á veitingastöðum, bifreiða-
verkstæðum og hjá björgunar-
sveitum.
Björgunarsveitin Björg á Suður-
eyri býður til skötuveislu klukkan
sex í húsnæði sveitarinnar. Einnig
verður boðið upp á saltfisk og fólk
hefur kost á því að kaupa flugelda
af björgunarsveitinni fyrir
áramótin.
Blásið verður til
árlegrar skötuveislu
Tækniþjónustu bif-
reiða í Hjallahrauni
4 í Hafnarfirði, en
þetta er í tíunda sinn
sem skötuveisla er
haldin á verkstæðinu.
Herlegheitin byrja klukk-
an fimm og stendur yfir
svo lengi sem birgðir
endast. Allir eru vel-
komnir og boðið verður
upp á skötu beint frá
Bolungarvík.
Íslenski barinn í Ing-
ólfsstræti er einn af
þeim veitingastöðum sem reiðir
fram skötuhlaðborð í dag.
Á boðstólum verður
mild og sterk skata
fyrir þá hugaðri en
einnig verður boðið
upp á saltfisk fyrir
þá sem einungis vilja
njóta lyktarinnar. Hægt
er að panta borð í síma
517-6767.
Í Rauða húsinu á Eyrar-
bakka verður haldin
skötuveisla. Kjörið er
fyrir höfuðborgarbúa
að bregða undir sig
betri fætinum og kíkja
í Rauða húsið í skötu-
veislu. Borðapantanir
eru í síma 483-3330.
Kæst og kæfandi
skata á Þorláksmessu
Skata þykir mörgum ómissandi undanfari jóla en ekki eru allir hrifnir af lyktinni.
Víða er boðið upp á skötu í dag svo hægt er að koma í veg fyrir lykt heima.
RAUÐA HÚSIÐ Boðið verður upp á skötu á Eyrarbakka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Úlfar Eysteinsson, matreiðslumaður
á Þremur frökkum, segir lítið mál að
elda skötuna fyrir þá sem kjósa að
matreiða hana heima.
„Þú tekur ósaltaða kæsta skötu,
setur salt í vatnið og lætur suðuna
koma vel upp. Síðan dregur maður
pottinn til hliðar af hitanum og
lætur skötuna jafna sig í 10 mínútur
á meðan maður bræðir hamsatólgina
og gengur frá rúgbrauðinu,“ segir
Úlfar sem er í óðaönn að undirbúa
skötuveislu og er sjálfur mjög hrifinn
af skötunni. „Þetta finnst mér alveg
indælismatur og ég hlakka alltaf til.“
EINFALT AÐ ELDA
SKÖTU HEIMA
Jóladagatal
Miðborgarinnar
okkar