Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2012, Blaðsíða 20
Sergei Rebrov
Tottenham
Kaupverð: 11 milljónir punda Keyptur: Sumarið 2000
n Þó að ellefu milljónir punda séu ekki mikill
í peningur í fótboltaheimi nútímans þótti það
heill hellingur árið 2000. Forráðamenn Totten-
ham vildu byggja upp sigursælt lið í kringum
Úkraínumanninn Sergei Rebrov sem hafði sleg-
ið í gegn með Dynamo Kiev í Meistaradeildinni.
Rebrov þótti afar útsjónarsamur sóknarsinn-
aður miðjumaður sem átti að fá það hlutverk
að mata sóknarmenn Tottenham og eins og
góðum miðjumönnum sæmir, skora eitt og eitt
mark. Það er þó skemmst frá því að segja að
Rebrov stóð aldrei undir væntingum í búningi
Tottenham. Eftir sextíu deildarleiki og tíu mörk
var Rebrov lánaður til Fenerbache í Tyrklandi
áður en hann yfirgaf félagið á frjálsri sölu.
20 Sport 4. janúar 2012 Miðvikudagur
n Stórliðin sem keyptu köttinn í sekknum n Manchester United,
Liverpool og Chelsea eiga tvo leikmenn á listanum hvert
Dýrustu floppin
í enska boltanum
Fernando Torres
Chelsea
Kaupverð: 50 milljónir punda Keyptur: Janúar 2011
n Fernando Torres var af mörgum talinn einn
besti knattspyrnumaður heims þegar hann
var upp á sitt besta með Liverpool árin 2007
til 2010. Þessi gríðarlega kraftmikli og leikni
leikmaður raðaði inn mörkunum fyrir Liverpool
og var auk þess fastamaður í sigursælu lands-
liði Spánar. Eftir að hafa lent í meiðslum hjá
Liverpool fór svo að Torres var seldur til Chelsea
í janúarglugganum í fyrra. Margir bjuggust
við að Torres myndi finna fjölina sína að nýju
í stjörnum prýddu liði Chelsea en svo fór þó
alls ekki. Í þeim 29 deildarleikjum sem Torres
hefur spilað fyrir Chelsea hefur honum einungis
þrisvar tekist að koma boltanum í net and-
stæðinganna.
Afonso Alves
Middlesbrough
Kaupverð: 12,7 milljónir punda Keyptur: Janúar 2008
n Brasilíumaðurinn Afonso Alves gat ekki
hætt að skora í hollensku úrvalsdeildinni
þar sem hann lék með Herenveen. Á
því eina og hálfa ári sem hann lék með
félaginu skoraði hann hvorki meira né
minna en 47 mörk í 39 deildarleikjum. Svo
fór að stórhuga forráðamenn Middlesbro-
ugh keyptu leikmanninn á 12,7 milljónir
punda í janúarglugganum 2008. Það er
skemmst frá því að segja að Alves fann
sig engan veginn í deild þeirra bestu og
skoraði einungis 10 mörk í 42 leikjum. Einu
og hálfu ári síðar var Alves seldur til Katar
þar sem hann leikur enn.
Alberto Aquilani
Liverpool
Kaupverð: 20 milljónir punda Keyptur: Sumarið 2009
n Þó að fáir efist um hæfileika Ítalans Alberto Aquilani
verður ekki hjá því komist að setja hann á listann yfir dýr-
ustu floppin í sögu enska boltans. Aquilani var meiddur
þegar hann var keyptur til Liverpool frá Roma sumarið
2009. Hann fékk afar fá tækifæri á miðju Liverpool-liðs-
ins þrátt fyrir að vera orðinn heill heilsu. Hann sýndi góð
tilþrif í nokkrum leikjum en féll í algjöra meðalmennsku
þess á milli. Aquilani var lánaður til Juventus ári eftir
komuna til Liverpool og var svo aftur lánaður til Milan
fyrir yfirstandandi tímabil. Eftir standa einungis 18 leikir
í búningi Liverpool, eða milljón pund fyrir hvern einasta
leik hans með félaginu. Hann er enn samningsbundinn
Liverpool en alls er óvíst hvort hann snúi aftur á Anfield.
Kevin Davies
Blackburn
Kaupverð: 7,5 milljónir punda Keyptur: Sumarið 1998
n Þó að Kevin Davies hafi reynst Bolton-
liðinu vel undanfarin ár var hann lítið annað
en kötturinn í sekknum þegar forráðamenn
Blackburn ákváðu að splæsa 7,5 millj-
ónum punda í leikmanninn sumarið 1998.
Davies lék með Southampton áður þar
sem hann vakti athygli fyrir baráttugleði
og marksækni sína. Gengu margir svo langt
að líkja honum við Alan Shearer sem hafði
gert garðinn frægan með Blackburn áður en
hann var seldur til Newcastle 1996. Davies
tókst hins vegar aðeins að skora 1 mark í 26
deildarleikjum fyrir Blackburn og fór svo
að hann var seldur aftur til Southampton
ári síðar.
Andriy Shevchenko
Chelsea
Kaupverð: 30 milljónir punda Keyptur: Sumarið 2006
n Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko sló rækilega í gegn með
AC Milan á Ítalíu þar sem hann raðaði inn mörkunum. Roman
Abramovich, eigandi Chelsea með fulla vasa af peningum, ákvað
upp á sitt einsdæmi að kaupa Sheva, eins og hann var ávallt
kallaður, til Englands þar sem honum var ætlað það hlutverk að
skora mörk. Punktur. Shevchenko varð þó fljótlega eins konar
aðhlátursefni hjá stuðningsmönnum annarra liða því hann fann
sig engan veginn í liði Chelsea. Hann skoraði einungis 9 mörk
í 48 deildarleikjum með Chelsea og var lánaður aftur til Milan
sumarið 2008. Þar náði hann sér ekki á strik og var seldur til upp-
eldisfélags síns Dynamo Kiev árið 2009 þar sem hann leikur enn.
Francis Jeffers
Arsenal
Kaupverð: 8 milljónir punda Keyptur: Sumarið 2001
n Francis Jeffers var talinn eitt mesta efni
enskrar knattspyrnu í kringum síðustu
aldamót. Þessi eldfljóti leikmaður braust
ungur inn í aðallið Everton og vakti athygli
stóru liðanna. Svo fór að Arsene Wenger
keypti Jeffers, þá tvítugan, árið 2001 og var
honum ætlað stórt hlutverk í liði Arsenal.
Á þeim þremur árum sem hann lék með
Arsenal náði hann einungis að spila 22 leiki
í deild og skoraði hann í þeim fjögur mörk.
Hann var lánaður aftur til Everton ári seinna
en tókst þá ekki að skora eitt einasta mark
í átján deildarleikjum með uppeldisfélagi
sínu. Jeffers hefur ekki náð sér á strik síðan
þá og leikur núna í Ástralíu.
Juan Sebastian Verón
Manchester United
Kaupverð: 28,1 milljón punda Keyptur: Sumarið 2001
n Argentínumaðurinn Juan Sebastian Verón sló
rækilega í gegn í ítölsku deildinni þar sem hann
skapaði sér nafn sem einn besti miðjumaður
heims, fyrst með Sampdoria, svo Parma og loks
Lazio. Stórveldið Manchester United keypti Verón
sumarið 2001 og var honum ætlað stórt hlutverk í
liði United. Verón kunni hins vegar illa við sig í kuld-
anum á Englandi og náði sér aldrei á strik við hlið
harðjaxlsins Roy Keane á miðju United. Eftir tvö
tímabil hjá United fór svo að Chelsea keypti Verón
árið 2003 þar sem hann náði sér enn síður á strik.
Andy Carroll
Liverpool
Kaupverð: 35 milljónir punda Keyptur: Janúar 2011
n Andy Carroll kom eins og stormsveipur inn
í úrvalsdeildina með Newcastle haustið 2010.
Þessi stóri og kraftmikli leikmaður raðaði inn
mörkunum fyrir félagið sem kom verulega á
óvart eftir að hafa komið upp úr Champions-
hip-deildinni. Hann skoraði 31 mark í þeim 80
leikjum sem hann spilaði fyrir Newcastle og
kom ekki á óvart þegar stóru félögin á Englandi
fóru að sýna honum áhuga. Það var svo í janúar
í fyrra að Liverpool keypti Carroll eftir að hafa
selt Fernando Torres til Chelsea. Kaupverðið,
35 milljónir punda, kom þó mörgum á óvart
enda hafði Carroll einungis leikið hálft tímabil í
efstu deild. Enn sem komið er hefur Carroll ekki
náð sér á strik með þeim rauðklæddu og hefur
einungis skorað 4 mörk í 23 deildarleikjum.
Diego Forlán
Manchester United
Kaupverð: 7,5 milljónir punda Keyptur: Janúar 2002
n Sir Alex Ferguson hefur lengi þótt hafa
auga fyrir góðum framherjum en kaup
hans á Diego Forlán eru þó undantekning.
Forlán var keyptur frá Independiente
í Argentínu árið 2002 fyrir 7,5 milljónir
punda sem þótti dágóð upphæð. Það er
skemmst frá því að segja að Forlán náði
sér aldrei á strik í búningi United, lék 63
deildarleiki og skoraði einungis 10 mörk.
Hann kunni mun betur við sig í hitanum
á Spáni þar sem hann lék með Villarreal
og Atletico Madrid og raðaði inn mörkum.
Hátindur ferils hans var án efa á HM í
Suður-Afríku 2010 þar sem hann var valinn
besti leikmaður keppninnar.
1
2 3 4 5
6 7 8 9 10