STARA - 14.11.2015, Qupperneq 21
S
T
A
R
A
n
o
.5
3
.T
B
L
2
0
15
21
Áhrifavaldar?
Ég er undir áhrifum frá ólíkum
áttum; fræðum, sögu, arkitektúr og
myndlist. Á undanförnum árum hef
ég lært af viðfangsefnum og
aðferðum myndlistarmanna og
kennara minna, þeirra Sam Durant,
sem vinnur oft á tíðum með minnis-
merki og mótmæli í sínum verkum,
og Charles Gaines, en ég vann
fyrir hann eftir útskrift úr masters-
náminu. Charles kryfur í verkum
sínum pólitíska sögu. Ég vann náið
með þeim í mastersverkefninu mínu
og úr því ferli spruttu aðferðir sem
ég hef þróað áfram. Þessi listi gæti
orðið langur, en ef ég hugsa út í það
eru þar nöfn eins og sagnfræðingur-
inn Norman Klein, sem skrifaði The
History of Forgetting og Edward
Said sem m.a. skrifaði bókina
Orientalism. Ég hef unnið með
Önnu Líndal og Hildigunni Birgis-
dóttur að samstarfsverkefnum og
horfi oft til verka myndlistarmanna,
arkitekta og fræðimanna á borð við
Berglindi Jónu Hlynsdóttur, Rachel
Whiteread, Gerhard Richter, Mary
Kelly, Mona Hatoum, Maja Baje-
vic, Noam Chomsky, W.G Sebald,
Patricia Fernandez, Candice Breitz,
David Chipperfield, Denise Scott
Brown og Robert Venturi.
Hvar færðu innblástur?
Innblásturinn kemur úr ólíkum átt-
um. Ég hef m.a. skoðað byggingar
sem á einhverjum tímapunkti í sögu
sinni verða birtingarmyndir þeirrar
hugmyndafræði sem mótar þær. Til
dæmis fyrrum heimili Walter Gro-
pius, þáverandi skólastjóra Bauhaus
í Dessau, sem var byggt á árunum
1925 og ´26 og var á þeim tíma ein
birtingarmynd módernismans. Eftir
seinni heimsstyrjöldina var húsið
í rúst eftir sprengjuárás. Um miðjan
sjötta áratuginn byggði maður að
nafni Emmer hús á lóðinni, og
notaðist við það sem eftir var af
húsi Gropius. Úr varð sambræð-
ingur; ofur venjulegt og kunnuglegt
úthverfahús með hallandi þaki
og hraunuðum veggjum í bland
við þætti úr hinu einfalda, tæra
og stranga húsi Gropius. Ég vann
verkefni út frá þessu og stundaði
rannsóknir í grunni hússins eftir að
Emmer húsið var rifið, og við Bau-
haus stofnunina í Berlín. Að horfa á
staðinn þar sem ólík tímabil skarast
er stór hluti af vinnunni minni.
Hvaða verkefni eru framundan
hjá þér?
Það er fjölbreytt tímabil framundan.
Ég er að vinna að nokkrum útgáfum
og sýningum um þessar mundir
ásamt rannsóknarverkefninu
Infinite Next. Sýningarnar verða
á næsta ári, m.a. hjá Stiftelsen Pro
Artibus í Finnlandi, í Human Re-
sources galleríinu í Los Angeles og
í St. Paul St. galleríinu í Auckland
á Nýja Sjálandi. Ég ver haustinu í
ár í residensíum við undirbúning
og rannsóknarvinnu fyrir komandi
sýningar. Í þeim mun ég fjalla um
tímann og spurningar um hvernig
breytingar eiga sér stað, hvað knýr
þær áfram og hvernig og hvort vatna-
skil verði á tímabilum í sögunni.
Infinite Next er áframhaldandi
listrannsóknarverkefni sem hófst
í fyrra að frumkvæði okkar Önnu
Líndal en í því verkefni skoðum við
loftslagsbreytingar út frá sögulegu,
sálfræðilegu og pólitísku sjónar-
horni. Við vörðum sumrinu 2015
á Grænlandi þar sem við vorum í
residensíu í Ilulissat Kunstmuseum
og tókum þátt í Climate Days,
alþjóðlegri vísindaráðstefnu um
loftslagsbreytingar. Þar héldum við
fyrirlestur um rannsóknaraðferðir
okkar og ræddum um myndlist sem
leið til þess að kanna breytingar í
umhverfinu. Verkefnið mun halda
áfram og næsta vor verðum við með
samsýningu út frá efninu í Nýló,
ásamt Bryndísi Snæbjörnsdóttur og
Mark Wilson, Hildigunni Birgis-
dóttur, Amy Howden-Chapman
og Pilvi Takala. Ég var að taka sæti
á Evrópska Menningarþinginu,
European Cultural Parliament,
sem er samtalsvettvangur lista- og
fræðimanna úr ólíkum greinum frá
öllum löndum Evrópu. Á þinginu,
sem var að ljúka var aðalviðfangs-
efnið “crisis” og var m.a. rætt um
hvert hlutverk menningarinnar og
praktisjónera, er í því að takast á við
samfélagskrísur á borð við aðstæður
flóttamanna.
Þráar úst / D es ire Ruin úr inns e t n ingunni Hlut i a f h lut a a f h lut a : Þætt i r I - I I I ,
L i s t as af n ASÍ , 2013 , l j ósmynd Vig f ús Bi rg i ss on .