Gerðir kirkjuþings - 2003, Side 13

Gerðir kirkjuþings - 2003, Side 13
"Fyrir þúsund árum trúlofaðist Alþingi íslendinga kristinni kirkju á Þingvöllum. Það var gæfuspor. Löggjafarþingið og Þjóðkirkjan hafa síðan haldist í hendur. Þetta samstarf er partur af okkar þjóðskipulagi og menningu." Góðir kirkjuþingsmenn! Meira fyrirheit um gott samband felst í því að trúlofast en skilja að borði og sæng. Fyrir þingi ykkar liggur tillaga að stefnumótun og starfsáherslum þjóðkirkjunnar fyrir árin 2004 til 2010. Er ljóst, að mikil vinna og hugsun býr að baki þessu skjali, þegar svo margir eru virkjaðir til samstarfs og raun hefur orðið. Er mikils virði, að á vegum þjóðkirkjunnar séu grunngildi hennar skerpt í því skyni að auðvelda útbreiðslu boðskaps kirkjunnar í orði og verki. Samtíminn verður betri færist hann nær kirkjunni og stefnu hennar, sem mótuð var fyrir 2000 árum. Athygli mín beindist að þriðja hluta skjalsins, þar sem rætt er um skipulag þjóðkirkjunnar. Er ég sammála því markmiði, sem þar er sett, að skipulagið tryggi framkvæmd stefnu kirkjunnar og virkni í starfi hennar, stuðli að einingu og stöðugleika, en sé jafnframt réttlátt, trúverðugt og sveigjanlegt. Stjómskipulag kirkjunnar sýni á skýran hátt ábyrgð og boðleiðir. Meðal verkefha á þessu sviði er nefnt, að einfalda skuli löggjöf um kirkjuna og setja ein heildarlög auk þess að einfalda reglugerðir og starfsreglur. I glænýju lagasafiii okkar em á milli tuttugu og þrjátíu lagabálkar um kirkjuleg efni og hinn elsti úr kristinrétti Áma biskups Þorlákssonar frá 1275, og er hann því eldri en sjálf Jónsbók. Þar er í 11. grein fjallað um forræði biskups á kirkjum og eignum þeirra og segir: Landeigandi er skyldr at láta gera kirkju á bæ sínum, hverr sem fýrr lét gera. ... í 12. grein segir um kirkjuvígslu: Vígja skal kirkju síðan er ger er ... En ef kirkja brenn upp eða annars kostar spillist, svá at niðr fellr öll eða meiri hlutr, þá skal vígja endrgerva kirkju. En þó at kirkjuráf brenni upp, funi ok niðr falli lítill hlutr af veggjum, þá skal eigi vígja endrbætta kirkju. ... Lagasafnið yrði bragðminna, ef slíkir textar hyrfu. Hvað sem því líður er ég reiðubúinn að fela embættismanni í ráðuneytinu að ganga til þess verks með þeim, sem Þjóðkirkjan tilnefnir, að huga að gerð heildarlaga um kirkjuna og einfalda reglugerðir og starfsreglur hennar. Forveri minn á ráðherrastóli frú Sólveig Pétursdóttir svaraði á alþingi síðastliðinn vetur fyrirspum um það, hvað þyrfti að breytast í stjómskipan, lögum og reglugerðum, ef kæmi til aðskilnaðar ríkis og kirkju. Fyrir utan ákvæðið í 62. grein stjómarskrárinnar, sem ég hef áður nefnt, benti hún meðal annars á, að þá yrðu lög um sóknargjöld, jöfnunarsjóð sókna, kirkjumálasjóð og fleiri atriði fjárhagslegs eðlis felld niður. Breyta yrði samningum ríkis og kirkju um eignir þjóðkirkjunnar, en þar vegur þyngst samningurinn frá 10. janúar 1997 um að gegn því að kirkjujarðir renni til ríkisins skuli greidd laun umsamins fjölda presta úr ríkissjóði. Hin íjárhagslegu tengsl ríkis og þjóðkirkju em ýmsum þymir í augum. Þau byggjast hins vegar á skýrum málefnalegum forsendum. Á sambærilegum forsendum þarf að 11
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.