Gerðir kirkjuþings - 2003, Síða 20
unnið er að hjá kirkjunni svo sem stefnumótun o.fl. Fundurinn var mjög gagnlegur og
upplýsandi.
Dóms- og kirkjumálaráðherra kom í heimsókn í Kirkjuhúsið 7. október ásamt
aðstoðarmanni sínum Þorsteini Davíðssyni, Hjalta Zophoníassyni, skrifstofustjóra og
Önnu Sigríði Amardóttur, lögfræðingi.
Kirkjuráð ákvað að taka upp þau nýmæli í ár að í stað skýrslna kirkjulegra stofnana og
nefhda sem fylgt hafa skýrslu Kirkjuráðs til Kirkjuþings yrðu þær skýrslur birtar í
Arbók kirkjunnar. Kirkjuþingsfulltrúar fá þannig skýrslumar fyrr í hendur. Er þess
vænst að þetta verði til hagræðis fýrir alla aðila. Framvegis mun Arbókin ná yfir
tímabilið frá 1. júlí til 30. júní ár hvert. Starfsemi flestra kirkjulegra stofnana og
nefhda er minni yfir sumartímann og skýrslumar gefa þannig eðlilegri eða
heildstæðari mynd af starfseminni.
Kirkjuráð úthlutaði í desembermánuði 2002 úr Kristnisjóði og Jöfnunarsjóði sókna til
lögmæltra verkefna auk ýmissa annarra verkefna sjóðanna. Verkefni Kirkjumálasjóðs
era bundin í lögunum um sjóðinn og er því ekki um beina úthlutun að ræða. Nánari
upplýsingar er að fínna í 2. máli Kirkjuþings 2002, Fjármálum Þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð skipaði þrjá starfshópa til að veita ráðinu ráðgjöf og leiðbeiningar við
úrlausnir mála og setti hverjum hópi erindisbréf. Hópamir eiga sér beina samsvömn í
föstum þingnefndum Kirkjuþings. I hverjum hópi er einn eða tveir kirkjuráðsmenn,
formaður hlutaðeigandi þingnefndar og einn tilnefndur af biskupi. Fjármálahópur
Kirkjuráðs sem hefur starfað síðan 2001 og tengist fjárhagsnefnd Kirkjuþings er
skipaður kirkjuráðsmönnunum sr. Halldóri Gunnarssyni og Jóhanni E. Bjömssyni,
formanni fjárhagsnefndar Kirkjuþings Bjama K. Grímssyni og fjármálastjóra
Biskupsstofu, Sigríði Dögg Geirsdóttur. Kirkjustarfshópur Kirkjuráðs sem tengist
allsherjamefnd Kirkjuþings er skipaður kirkjuráðsmanninum Sigríði M.
Jóhannsdóttur, formanni allsheijamefhdar Kirkjuþings sr. Önnu Sigríði Pálsdóttur og
verkefnisstjóra fræðslu- og upplýsingamála á Biskupsstofu sr. Halldóri Reynissyni.
Lagahópur Kirkjuráðs er skipaður kirkjuráðsmanninum sr. Döllu Þórðardóttur,
formanni löggjafamefhdar Kirkjuþings sr. Magnúsi Erlingssyni og framkvæmdastjóra
Kirkjuráðs, Guðmundi Þór Guðmundssyni. Hópamir hafa starfað að ýmsmn málum
sem Kirkjuráð vísaði til þeirra og hafa unnið mikið og gott starf fyrir ráðið.
Fjármálahópurinn hefur fjallað um margvísleg málefni er tengjast fjármálum
kirkjunnar, einstakra sókna og kirkjulegra stofiiana. Hópurinn hefur lagt fram tillögur
til Kirkjuráðs um úrlausn í margvíslegum málum og lagt til ýmis konar nýmæli sem
horfa til framfara.
Kirkjustarfshópurinn hefur unnið að ýmsum málum er varða hið almenna kirkjustarf
og vegur þar sennilega þyngst þátttaka í undirbúningi tillögu að stefnumótun
Þjóðkirkjunnar, sem lögð er ffarn á þessu Kirkjuþingi.
Lagahópurinn hefur enn ffernur unnið að ýmsum málum m.a. samningu starfsreglna
og greinargerða fýrir Kirkjuráð.
Eins og fram kemur í fundargerðum Kirkjuráðs hefur mörgum málum verið vísað til
hópanna en þeir taka fýrst og ffemst til umfjöllunar mál sem Kirkjuráð vísar til þeiira.
18