Gerðir kirkjuþings - 2003, Side 21
Ekki þykja tök á að rekja einstök viðfangsefni hópanna hér frekar en orðið er, en
vissulega er unnt að kynna störf þeirra frekar ef óskað er, t.d hjá nefndum
Kirkjuþings. Margt af því sem fram kemur hér í skýrslunni af nýmælum í starfi
Kirkjuráðs er samkvæmt tillögu frá hlutaðeígandi hópi.
Kirkjuráð beitti sér fýrir fundi ráðsins og forseta Kirkjuþings með ffambjóðendum
stjómmálaflokkana til Alþingis í vor. Fundurinn var haldinn í Hallgrímskirkju. Allir
flokkar sem buðu fram sendu fulltrúa. Þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra frú
Sólveig Pétursdóttir var fulltrúi síns flokks. Flokkamir gerðu grein fyrir stefnu sinni í
kirkjumálum og varðandi málefni Þjóðkirkjunnar og spunnust af gagnlegar og
jákvæðar umræður. Það er mat Kirkjuráðs að ráða megi af umræðum á fundinum að
Þjóðkirkjan njóti velvildar allra flokka þótt vissulega séu skiptar skoðanir um það
hvaða fýrirkomulag skuli hafa á stöðu hennar og skráðra trúfélaga almennt.
Ákveðið var að ráða Kristínu Mjöll Kristinsdóttur, sem starfar hjá Prestssetrasjóði, í
20% hlutastarf hjá Kirkjuráði við umsjón fasteigna þeirra sem ráðið annast, þ.e.
Kirkjuhúsið Laugavegi 31, húsnæði Hjálparstarfs kirkjunnar að Vatnsstíg 3,
biskupsgarð að Bergstaðastræti 75 og neðri hæð safnaðarheimilis Grensásskirkju.
Hefur þetta reynst vel enda nóg að gera við umsýsluna ekki hvað síst í Grensáskirkju.
Innrétta þurfti húsnæðið þar sem Tónskóli Þjóðkirkjunnar og nokkrir
sérþjónustuprestar hafa nú aðstöðu.
Þá var Jóhannes Ingibjartsson, formaður bygginga- og listanefndar, ráðinn tímabundið
til starfa í 10% hlutastarf, til aðstoðar sóknamefndum sem standa í verklegum
framkvæmdum. Reynslan af þessu tilraunaverkefni sýnir að brýn þörf er á starfsmanni
til þessara starfa þ.e. að starfsmaður sinni kirkjum landsins sérstaklega með sama
hætti og kirkjugarðar og prestssetur. Tilraunaverkefni þessu er lokið. I framhaldi af
því ákvað Kirkjuráð að auka starfshlutfall Jóhannesar í 40% tímabundið.
Kirkjuráð og Biskupsstofa hafa aukið ijármálaþjónustu við sóknir með því að fela
Magnhildi Sigurbjömsdóttur viðskiptaffæðingi sem starfað hefur undanfarin ár á
Biskupsstofu umsjón þess málaflokks. Má þar einkum nefna ráðgjöf og leiðbeiningar
varðandi reikningshald sókna og fjármál almennt, liðsinni við umsóknir í
Jöfnunarsjóð sókna, innleiðingu hins nýja samræmda reikningsforms fýrir sóknir.
Úthlutun úr Jöfhunarsjóði sókna, Kirkjumálasjóði, Kristnisjóði og Fræðslu-,
kynningar - og útgáfusjóði, fer fram í desembermánuði vegna næsta árs.
Umsóknareyðublöð í Jöfnunarsjóð em send öllum sóknamefndum og þykir því ekki
þörf á að auglýsa úthlutun sérstaklega.
Kirkjuráð hefur beitt sér fýrir ýmsum nýjungum á sviði fjármála kirkjunnar. Má þar
nefna að ráðið hefur tekið upp það nýmæli að bjóða sóknum lánafýrirgreiðslu með
tilstyrk Jöfhunarsjóðs sókna þ.e. með þeim hætti að Jöfnunarsjóður tekur lán og
endurlánar síðan sóknum sem á þurfa að halda. Lánin verði vaxtalaus en með
verðbótum, nema Kirkjuráð ákveði annað. Semja má um að lánin verði
afborgunarlaus fýrstu árin. Önnur lánskjör og endurgreiðslutími er samkvæmt
ákvörðun Kirkjuráðs hveq'u sinni. Kröfur um upplýsingagjöf og önnur skilyrði em
þau sömu og við veitingu ábyrgða Jöfnunarsjóðs. Þessi leið hentar m.a. sóknum sem
búa við góðan íjárhag en þurfa að ráðast í fjárfrekar ffamkvæmdir og þurfa
fýrirgreiðslu tímabundið. Enn fremur styrkir þetta fjárhag Jöfnunarsjóðs til lengri tíma
19