Gerðir kirkjuþings - 2003, Page 23
c) Unnið hefur verið að því að koma á fót þjónustumiðstöð kirkjunnar á
höfuðborgarsvæðinu í Grensásskirkju. Nokkur sérþjónustuembætti eru staðsett þar
auk Tónskóla Þjóðkirkjimnar o.fl. kirkjulegra aðilja. Það er mat Kirkjuráðs að vel hafi
tekist til og almenn ánægja sé með þetta hjá þeim sem nú hafa aðsetur í
þjónustumiðstöðinni. Staðsetningin er miðsvæðis og afar hentug. Kirkjuráð hyggst
auka enn frekar starfsemina í Grensáskirkju þegar húsnæði sem er í útleigu á neðri
hæð safcaðarheimilisins losnar.
d) Kirkjuráð hefur sent fclltrúaráði og ffamkvæmdastjóra Sólheima í Grímsnesi erindi
vegna samþykktar Kirkjuþings viðvíkjandi Sólheimum á Grímsnesi. Ekki er kunnugt
um úrlausn málsins.
2. mál 2002. Fjármál Þjóðkirlgunnar
Kirkjuþing setti fram í tölusettum liðum ábendingar um ijármál Þjóðkirkjunnar og er
fjallað um úrlausn hér í sömu röð. Samhengis vegna eru tilmæli Kirkjuþings höfð með
og eru skáletruð
1. Með þriggja ára rekstraráæílunum Þjóðkirkjunnar sem Kirkjuráð leggur fram á
Kirkjuþingi fylgi skýringar ogforsendur um einstaka verkþætti sem áœtlanirnar
taka til.
Þriggja ára áætlun skal taka mið af stefnumótun Þjóðkirkjunnar, sem ekki hefcr verið
samþykkt, Að þessu sinni verður því einföld framsetning þriggja ára áætlunar á
Kirkjuþingi 2003 sem miðar við framreikning byggðan á þeim forsendum að aðstæður
verði svipaðar og lög og samningar óbreyttir.
2. Kirkjuráð veiti stjórn Fjölskylduþjónustu kirkjunnar umboð til að taka upp að
nýju samningaviðræður við prófastsdœmi, sveitarfélög og ríki um samstarf í
fjölskylduþjónustu.
Kirkjuráð samþykkti að veita stjóm Fjölskylduþjónustunnar þetta umboð og hefcr
stjóm og starfsfólk unnið að framkvæmd þess. Vísað skal í skýrslu
Fjölskylduþjónustunnar í Arbókinni.
3. Kannaður verði möguleiki á að kirkjur leggi inn og ávaxti fé sitt í ábyrgðardeild
Jöfhunarsjóðs sókna ef sömu kjör fengjust þar og á markaði. Innlagt fé yrði að
vera bundið ákveðinn tíma, t.d. í 5 ár. Með því móti mœtti styrkja
ábyrgðardeildina og hækka ábyrgðargetu hennar.
Kirkjuráð kannaði þetta og bað ijármálahópinn um álit á þessu. Lagahópurinn fjallaði
einnig um þetta. Niðurstaða beggja hópa og Kirkjuráðs varð sú að ávöxtun ijár
sóknanna skili kirkjunni í heild ekki nægilega miklum ávinningi til að það borgi sig að
heija þessa þjónustu.
4. Kirkjuráð kanni möguleika á breyttu fyrirkomulagi varðandi úthlutun fjár til
kirkna úr Jöfnunarsjóði sókna. Um verði að rœða annars vegar óafturkræfan
styrk og hins vegar lán sem verði afborgunarlaust ákveðinn árafjölda, beri ekki
vexti en fjárhæðin verði háð breytingum á neysluverðsvísitölu. Sókn mun hefja
greiðslu afborgana afláninu þegar hún er kominyfir verstu fiárhagserfiðleikana
og Jöfnunarsjóður fái endurgreiddan hluta þess fjár sem með núverandi kerfi er
varið í styrki.
21