Gerðir kirkjuþings - 2003, Page 31
komu á fund Kirkjuráðs á Löngumýri eins og fyrr segir. Akveðið var að framlengja
samning Kirkjuráðs og Löngumýramefhdar til næstu áramóta og vinnur
fCirkjustarfshópur Kirkjuráðs og Löngumýramefhd að nýjum samningi. Kirkjuráð
veitti aukalega 500 þús. kr. úr Kristnisjóði til Löngumýrar vegna stofnkostnaðar til
minningar um Ingibjörgu Jóhannsdóttur skólastjóra húsmæðraskólans á Löngumýri
sem gaf kirkjunni skólann á sínum tíma og Margréti Jónsdóttur sem var
forstöðumaður Löngumýrar um árabil. Jafnframt var ákveðið að óska eftir að
Löngumýramefnd sæti til næstu áramóta.
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
Fjölskylduþjónustan hefur átt við rekstrarvanda að etja m.a. vegna aukinnar þjónustu
án nægjanlegra viðbótarframlaga. Stjómin varð að grípa til þess úrræðis að lækka
starfshlutfall um 10-20 % og nýjar reglur tóku gildi sem lækka ferðakostnað vegna
handleiðslu fyrir presta og djákna. Kirkjuráð mun fjalla um rekstrarvandann við
úthlutun. Að öðm leyti vísast til skýrslu Fjölskylduþjónustunnar í Arbók kirkjunnar.
Leikmannaskóli Þjóðkirkjunnar
Stjóm skólans var falið að endurmeta starfsreglur skólans sbr. samþykkt Kirkjuþings
2002. Niðurstöður stjómarinnar vom þær að ekki væri æskilegt að halda áfram
óbreyttu starfi innan núverandi ramma. Hugmyndir stjómar vom þær að efla
ffæðslustarf enn frekar innan kirkjunnar með því að sameina Leikmannaskólann og
fræðslusvið Biskupsstofu og stofna Fræðsluþjónustu kirkjunnar. Meginverkefni væri
fullorðinsfræðsla, aukþess að annast starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun
starfsmanna kirkjunnar. Kirkjuráð taldi eðlilegt að bíða með að taka afstöðu til
þessara hugmynda þar til Kirkjuþing hefur afgreitt heildarstefnumótun fyrir
Þjóðkirkjuna. Þá ákvað Kiirkjuráð að endurskipa stjómina til næstu áramóta.
Tónskóli Þjóðkirkjunnar
A siðasta Kirkjuþingi vom samþykktar nýjar starfsreglur um kirkjutónlist á vegum
Þjóðkirkjunnar og tóku þær gildi um síðustu áramót, eins og áður er rakið. I þeim er
gert ráð fyrir að biskup ábyrgist framkvæmd kirkjutónlistarstefnu og setji nánari
fyrirmæli um útfærslu hennar. Aður hafði söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar jafnframt
gegnt starfi skólastjóra. Stjóm Tónskólans auglýsti starf skólastjóra sl. vor samkvæmt
hinum nýju reglum. Stjómin réð Kristin Öm Kristinsson í starf skólastjóra til þriggja
ára, en hann hefur gegnt starfinu um tveggja ára skeið.
Strandarkirkja
Strandarkirkjunefnd sem Kirkjuráð skipar hefur unnið að gerð leigusamnings fyrir
Kirkjuráð við veiðifélagið Stakkahlíð um landsréttindi auk veiðiréttar í Hlíðarvatni. en
félagið hefur um árabil haft það á leigu. Kirkjuráð samþykkti að ganga frá nýjum
samningi við veiðifélagið til tíu ára. Samningurinn fylgir skýrslu þessari.
VI. Önnur mál
Skipurit
Fjallað hefur verið um skipurit Biskupsstofu sem var samþykkt árið 2001 og
hugsanlegar breytingar á því. Hefur þar helst komið til álita staða fjármála í
skipuritinu.
Akvörðun Kirkjuráðs um sérstök skilyrði vegna ábyrgðarveitingar
29