Gerðir kirkjuþings - 2003, Qupperneq 38
í rekstraráætlun Þjóðkirkjunnar f>TÍr árið 2003 er gert ráð fyrir að halli verði um 30
m.kr. Rekstrarfjárheimild ffá árinu 2002 þekur þann halla. Árið 2004 verður að öllum
líkindum einnig rekið með halla um 7,7 m.kr. en reiknað er með að þá sé enn
rekstrarfjárheimild fyrir hendi til að þekja halla. Árið 2002 var tæplega 21 m.kr.
afgangur af rekstri Biskupsstofu. Fjáraukalög það ár voru ofreiknuð sem nemur 12,3
m.kr. vegna rangra forsendna í launalíkani og samkvæmt því hefði afgangur átt að
vera 8,7 m.kr.árið 2002. Árið 2003 fær Biskupsstofa greitt 12,3 m.kr. minna vegna
leiðréttingar og áætlaður halli verður því um 30 m.kr. - en hefði í raun ekki orðið
nema um 17 m.kr. ef ffádráttur vegna leiðréttingar hefði verið á viðeigandi rekstrarári
þ.e. árinu 2002.
Miðað við horfur í rekstri næstu ár er nauðsynlegt að endurskipuleggja rekstur
Biskupsstofu árið 2005 og auka þá sértekjur og draga úr útgjöldum.
Rekstrargrundvöllur stofnunarinnar er ótryggur, þar sem rekstrarkostnaður greiddur af
ríkissjóði dugar naumast til að reka embætti biskups Islands og vígslubiskupanna.
Þegar samsetning gjalda Biskupsstofu er skoðuð kemur í ljós að meirihlutinn er
bundinn í launum eða 87% miðað við árið 2004.
Kristnisjóður
Framlag í Kristnisjóð hækkar í samræmi við launahækkanir presta en miðað er við
ígildi 16 prestslauna. Árið 2006 lækkar ffamlag í Kristnisjóð og verður samsvarandi
15 árslaunum presta. Hækkunin milli áranna 2003 og 2004 ára nemur um 3,6 m.kr.
Árið 2002 var síðasta árið sem afborganir og vextir komu inn í sjóðinn vegna sölu á
landi til Garðabæjar árið 1992. Aukaafborgun var greidd árið 2002 af skuld við
SPRON vegna Laugavegar 31. Eins og ffam kemur í yfirliti um fasteignir Kristnisjóðs
eru skuldir í árslok vegna fjárfestinga um 19,6 m.kr. en bókfært verð eigna 146,8
m.kr.
Jöfnunarsjóður sókna
Lögboðið framlag í Jöfnunarsjóð sókna er reiknað sem 18,5% hlutfall af
sóknargjöldum og hækkar sem nemur 5% ffá fjárlögum 2003 eða um 13,1 m.kr.
Kirkjubyggingasjóður rann inn í ábyrgðadeild Jöfnunarsjóðs sókna árið 2002. Áætlað
er að heimild ábyrgðaveitinga til sókna verði um 540 m.kr. á næsta ári. Þegar hefur
verið veitt ábyrgð til þriggja sókna og Skálholtsstaðar fyrir skuldum sem nema 127,5
m.kr.
Kirkjumálasjóður
Lögboðið framlag í Kirkjumálasjóð er reiknað sem 11,3% hlutfall af sóknargjöldum
og hækkar sem nemur 5% ffá fjárlögum 2003 eða um 8 m.kr.
Nú standa yfir samningar um kaup á vígslubiskupsbústað að Hólum og jarðhæð
safhaðarheimilis Grensáskirkju. Reiknað er með að greiða kaupverð vígslubiskups-
bústaðar að fullu á kaupári til Prestssetrasjóðs. Vegna þjónustumiðstöðvar í
Grensáskirkju verða greiddar 25 m.kr., sem komu sem ffamlag ffá ríkissjóði til kaupa
á húsnæði fyrir Tónskólann, og yfirtekin lán verða um 25 m.kr. Landsvirkjun er í
hluta húsnæðisins og er samningur í gildi milli Grensássóknar og Landsvirkjimar um
leigu til nokkurra ára. Er tekið tillit til þess í samningum. í rekstraráætlun
36