Gerðir kirkjuþings - 2003, Page 66
Þann 27. janúar 2003 átti biskup fund með forsætisráðherra og var fjármálaráðherra
viðstaddur fundinn. Biskup kynnti þeim samningsmarkmið kirkjimnar og lagði
einkum áherslu á þrjú eftirtalin atriði.
1. Greiðslu vegna vanáætlaðs kostnaðar prestssetrasjóðs og skuldbindinga sem
sjóðurinn yfirtók, ca. 15 millj. á ári frá 1993.
2. Jarðir og jarðarhluta, sem tilheyrt hafa prestssetrum en verið ráðstafað annað
3. Málefni Þingvalla.
Ráðherramir töldu að samstaða væri um 1. lið. Báðir töldu eingreiðslu ákjósanlegri
þar sem fyrirstaða væri í stjómkerfinu við opna samninga með árlegum greiðslum.
Biskup sagði að greiðsluskilmálar væm samningsatriði, en um umtalsverð verðmæti
væri að ræða sem kirkjan léti af hendi, sbr. eignir Garðakirkju á Alftanesi.
Forsætisráðherra taldi engin tormerki á því að ganga frá greiðslum vegna 1. liðar
fljótlega. Um hina liðina sá hann þrjá kosti ef ekki semdist um greiðslu fyrir
verðmætin; gerðardóm, álit tveggja óvilhallra sæmdarmanna eða dómsmál.
Biskup kynnti nefndarmönnum niðurstöðu viðræðna við ráðherrana.
Málið hefur verið í biðstöðu síðan.
Þetta er staða mála við upphaf Kirkjuþings 2003 þegar umboð nefndarinnar rennur út,
sbr. framangreinda ályktun.
Reykjavík, 16. okt. 2003
F. h. samninganefndar Þjóðkirkjimnar um prestssetur
Karl Sigurbjömsson
Að tillögu fjárhagsnefndar samþykkti Kirkjuþing eftirfarandi
ÁlyktuU
Kirkjuþing 2003 felur Kirkjuráði í samvinnu við stjóm Prestssetrasjóðs umboð til
viðræðna við ríkisvaldið í þeim tilgangi að leita lausnar á og ganga ffá samningum
milli ríkis og kirkju um málefni prestssetranna.
Kirkjuþing leggur áherslu á að samningaviðræður af hálfu kirkjunnar verði á grunni
þeirra forsendna sem Prestssetranefnd lagði fyrir Kirkjuþing árið 2002 og samþykkt
var á þinginu að skyldi vera grundvöllur viðræðnanna.
Umboð þetta stendur til næsta Kirkjuþings.
64