Gerðir kirkjuþings - 2003, Side 67
Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra Prestssetrasjóðs
9. mál
Starfsskýrsla Prestssetrasjóðs 1. júní 2002 til 1. júní 2003
Stjórn og starfsmenn
Fram að Kirkjuþingi 2002 sátu í stjóm sjóðsins, Bjami Kr. Grímsson formaður, Láms
Ægir Guðmundsson og Kristrún Heimisdóttir. Varamenn vom sr. Úlfar
Guðmundsson, sr. Agnes M. Sigurðardóttir og Bjami Guðráðsson.
A Kirkjuþingi 2002 var kosin núverandi stjóm sjóðsins, en hana skipa; Bjami Kr.
Grímsson formaður, Láms Ægir Guðmundsson og sr. Lára G. Oddsdóttir. Varamenn
em Kristrún Heimisdóttir, Olafur Eggertsson og sr. Guðjón Skarphéðinsson.
Stjómin hefur haldið 10 stjómarfundi á tímabilinu auk fjölda vinnufunda einstakra
sþómarmanna með starfsmönnum sjóðsins.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Höskuldur Sveinsson, arkitekt. Framkvæmdastjóri
Prestssetrasjóðs hefur það hlutverk með höndum að sinna daglegri stjómun og rekstri
sjóðsins ásamt yfimmsjón byggingartæknilegri umsýslu prestssetra, undirbúa fundi
stjómar sjóðsins, fylgja eftir samþykktum hennar, annast samskipti við presta,
stofnanir og önnur kirkjuleg stjómvöld. Hann sinnir stjómsýslu sjóðsins og öðmm
verkefnum sem honum em falin af stjóm hans hverju sinni.
Kristín Mjöll Kristinsdóttir, innanhúsarkitekt, hefur áfram gengt starfi eftirlitsmanns
prestssetra. Frá 1. jan. 2003 hefur fCristín verið í 80% starfi fyrir Prestssetrasjóð, en í
20% starfi fyrir Kirkjumálasjóð. Prestssetrasjóður er með samning við Biskupsstofu
um skjalavörslu, bókhald og fjárvörslu, svo og aðstöðu fyrir skrifstofu á 4. hæð
Kirkjuhússins að Laugavegi.
Stjóm og starfsmenn sjóðsins hafa á tímabilinu haft með höndum fjölþætt verkefni,
sem fyrr.
Fjárhagur
A tímabilinu var lokið við að breyta skammtímaskuldum sjóðsins í lán til lengri tíma.
Ættu því vaxtagreiðslur sjóðsins að lækka vemlega auk þess sem hafist er handa við
að greiða upp skuldir, sem stofnað var til vegna framkvæmda og viðhalds á
prestssetrum.
Enn er vonast til að handan homsins séu samningar við ríkið um prestssetrin og að þá
komi til viðunandi úrlausn til framtíðar á fjárhagsvanda sjóðsins. Ljóst má vera að
við stofhun Prestssetrasjóðs á sínum tíma vom starfsemi hans og umfang vemlega
vanmetin.
Þegar lokið er samningum við ríkið ætti jafnffamt að vera hægt að heimila sölu
ákveðinna eigna sem ekki em lengur prestssetur, en með því móti væri
Prestssetrasjóður mun betur fær um að takast á við þau mörgu verkefni sem fyrir
liggja.
Viðhald og viðgerðir prestssetra
Ástand prestssetra er mjög misjafnt. Sum þeirra em, sem betur fer, í ágætu ástandi og
hefur Prestssetrasjóður, þrátt fyrir bágan fjárhag, lyft þar “Gretfistaki”. Því miður er
ástand allt of margra prestssetra enn ekki eins og best verður á kosið þannig að þau
séu til sóma fyrir Prestssetrasjóð og vörslumenn. Á þessu starfsári hefur, eins og
65