Gerðir kirkjuþings - 2003, Page 71
ábúð og gætu hugsanlega gengið kaupum og sölum en eru ekki inn í fasteignamati,
komi inn í stofii til útreiknings afgjalds, en ef ekki þá gangi þau undan
ábúðar- / leigusamningi.
Lokaorð
Rétt að ítreka það sem sagt hefúr verið í fyrri skýrslum, um að full þörf sé á framlagi
frá “eigendum” sjóðsins til þess að hann geti staðið við skyldur sínar og að gengið sé
frá með skýrum hætti 'milli ríkis og kirkju hvemig eignarhaldi prestssetra skuli háttað.
Að lokum er öllum þeim sem störfuðu fyrir prestssetrasjóð á árinu þakkað þeirra
firamlag til starfssemi sjóðsins og jafhframt prestum og þeirra fjölskyldum þakkað
ánægjulegt samstarf.
Reykjavík 5. júní 2003
Nefndarálit
Fjárhagsnefnd hefur ijallað um málið og þakkar skýrslu stjómar.
Ljóst er að á hverju ári hefur náðst mikilvægur árangur við að koma fleiri og fleiri
prestssetrum í gott horf, þannig að þau séu til sóma í umhverfi sínu. Fleiri markvissar
aðgerðir á þessu sviði munu halda áfram næstu árin enda mikil verkefni framundan.
Það er kirkjunni keppikefli að allir prestar og fjölskyldur þeirra geti verið stolt af
húsakynnum sínum og umhverfi og því markmiði þarf að ná sem fýrst.
Fjárhagur sjóðsins hefur styrkst á undanfomum misserum og er gott jafnvægi á milli
tekna og gjalda og tekist hefur að breyta háum skammtímaskuldum í hagstæð
langtímalán.
Fagna ber þeirri vinnu sem nú er hafm varðandi lausn margra gamalla
landamerkjadeilna á prestssetursjörðum og þeim árangri sem þegar hefur náðst á
þessu sviði og raunhæfum væntingum um lausn annarra.
Rík áhersla er lögð á að vel verði staðið að samingum við Landsvirkjun vegna
framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun í landi Valþjófsstaða enda er þar væntanlega
um talsverða fjármuni að tefla.
Vegna þeirra ijölþættu og mikilvægu verkefha sem sjóðurinn hefur með höndum þarf
að gæta þess að fram komi í skýrslu stjómar sem og í reikningum, fjárhagsáætlunum
og fylgiskjölum þeim tengdum sem allra gleggstar upplýsingar fýrir þingfúlltrúa.
Hér skal einnig minnt á þá skyldu sjóðsstjómar að ávallt skuli liggja fýrir
fýmingareikningur hvers prestsseturs og hann uppfærður árlega.
Lagt er til að fúndargerðir stjómar verði aðgengilegar á netinu og jafhframt sendar
þingfulltrúum með bréflegum hætti.
69