Gerðir kirkjuþings - 2003, Qupperneq 77
Tillaga að starfsreglum um leikmannastefnu og leikmannaráð
14. mál
1. gr.
Biskup Islands boðar til leikmannastefnu í samráði við leikmannaráð. Það ár, sem
boðað er til leikmannastefhu, skal hún að jafnaði haldin í marsmánuði.
2. gr.
Leikmannastefna er vettvangur almennra skoðanaskipta um málefni leikmanna og
faglegur samráðsvettvangur aðila.
3. gr.
Leikmannastefna
1) starfar að heill Þjóðkirkjunnar og stuðlar, ásamt starfsmönnum hennar, að
útbreiðslu kristinnar trúar
2) eflir þátttöku leikmanna í starfi kirkjunnar og kynni þeirra sín á milli
3) fjallar um málefhi.leikmanna, safnaða, hlutverk og störf sókna og
sóknamefhda, svo og um önnur mál er lúta að þjónustu kirkjunnar við söfhuði
landsins og kristileg félagasamtök
4) er sameiginlegur umsagnaraðili (talsmaður) í málum, er varða stöðu kirkju,
sóknamefnda og safhaða sérstaklega
5) kemur sameiginlega fram fyrir hönd leikmanna, sókna og sóknamefnda
gagnvart stjómvöldum, stofnunum kirkjunnar, starfsmönnum hennar og
samtökum þeirra svo og öðmm aðilum eftir því, sem við á.
4. gr.
A leikmannastefnu eiga sæti með málffelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt
tveir fulltrúar leikmanna fyrir hvert prófastsdæmi, em kjömir em á héraðsfundum til
fjögurra ára í senn. Þó skulu prófastsdæmi með fleiri en 15 þús. íbúa eiga þrjá fulltrúa
á leikmannastefnu og prófastsdæmi með fleiri en 30 þús. íbúa eiga fjóra fulltrúa.
Kjósa skal varamann fyrir hvem fulltrúa.
5. gr.
Leikmannastefhu með málfrelsi og tillögurétt sitja
1) Biskup Islands eða fulltrúi hans
2) Forseti Kirkjuþings eða varaforseti
.3) Leikmenn á Kirkjuþingi
4) Leikmenn í Kirkjuráði
5) Aðrir þeir sem Biskup Island tilnefnir hverju sinni.
6) Fulltrúar ffá samtökum og félögum sem starfa á landsvísu innan Þjóðkirkjunnar.
6. gr.
Héraðsfundur getur ekki tilnefnt kjörinn kirkjuþingsmann eða kirkjuráðsmann sem
fulltrúa leikmanna í prófastsdæmi. Tilnefna má þó varamann á Kirkjuþingi eða í
Kirkjuráði, sem ekki á sæti á Kirkjuþingi, sem fulltrúa prófastsdæmis.
Ef tilnefndur fulltrúi leikmanna í prófastsdæmi er kjörinn á Kirkjuþing eða í Kirkjuráð
sem aðalmaður eða tekur sæti þar sem varamaður, eftir að hann hefur verið tilnefndur
til setu á leikmannastefnu, skal varamaður taka sæti hans. Kjósa skal nýjan aðalmann
á næsta héraðsfundi þar á eftir sem situr út kjörtímabilið.
75