Gerðir kirkjuþings - 2003, Page 86
Sóknarprestinum á Kálfafellsstað verði falin stoðþjónusta í Bjamanesprestakalli.
Sóknarprestinum í Hraungerði verði falin stoðþjónusta í Selfossprestakalli.
Sóknarprestinum í Saurbæ á Hvalfj arðarströnd verði falin stoðþjónusta í
Garðarprestakalli á Akranesi.
Sóknarprestinum í Bolungarvík verði falin stoðþjónusta í ísafjarðarprestakalli.
Sóknarprestinum í Glaumbæ verði falin stoðþjónusta á Sauðárkróki.
Sóknarpresturinn í Hrísey taki að sér starfsskyldur á héraðsvísu.
Sóknarprestinum á Grenjaðarstað verði falin stoðþjónusta í Húsavíkurprestakalli.
Áður en starfsreglum um sóknir, prestaköll og prófastsdæmi er breytt þurfa
hlutaðeigandi aðilar að fjalla um málið. Samkvæmt 3. gr. starfsreglna nr. 731/1998
eiga sóknir viðkomandi prestakalla að fjalla um þessar hugmyndir og gera grein fyrir
þeim afleiðingum, sem breytingamar hafa. Héraðsfundir taka málefnin svo til
umfjöllunar og afgreiðslu og að því búnu biskupafundurinn, sem leggur tillögur sínar
fyrir kirkjuþing 2004. Miðað er við að þessar breytingar taki síðan gildi svo greiðlega
sem tök em á.
I tillögunum er tekið tillit til tillagna, sem biskupafundur leggur fyrir Kirkjuþing 2003
um breytingar á prestakallaskipaninni, og sleppt að minnast á þær breytingar, sem þar
em lagðar til.
í ofangreindum tillögum er ekki varpað fram hugmyndum um ný prestsembætti, sem
hægt væri að stofna til, nái þessar tillögur fram að ganga, enda er eðlilegt að biskupa-
fundur og hlutaðeigandi aðilar á hveijum stað móti tillögur um hvar sé brýnust þörfin
á að auka prestsþjónustu með fjölgun sóknarpresta, presta eða sérþjónustupresta.
Ennfremur þyrfti í framhaldinu að huga að skipan prófastsdæma þar sem Skaftafells-
prófastsdæmi, Rangárvallaprófastsdæmi og Barðastrandarprófastdæmi em frekar litlar
einingar.
Athugasemdir við einstaka liði:
l.gr. 1. Múlaprófastsdæmi
Skeggjastaðaprestakall er einungis ein sókn með 138 íbúa (gjaldendur, það er 16 ára
og eldri í Þjóðkirkjunni em 89). Hofsprestakall nær yfir tvær sóknir og er íbúafjöldinn
762 manns (gjaldendur, það er 16 ára og eldri í Þjóðkirkjunni em 562). Frá
Vopnafirði að Bakkafirði em 35 km. Stærð hins sameinaða prestakalls er vel innan
viðmiðunarmarka og því er lögð til sameining.
Um Skaftafellsprófastsdæmi
I Kálfafellsstaðarprestakalli búa vissulega ekki nema 284 manns (16 ára og eldri í
Þjóðkirkjunni em 195). í Bjamamesprestakalli búa hins vegar 2048 manns (16 ára og
eldri í Þjóðkirkjunni em 1368). Frá Höfft að kirkjunni að Hofi, sem er vestasta kirkjan
í Kálfafellsstaðarprestakaíli, em um 115 km. Frá Höfn að Kirkju-bæjarklaustri em
201 km en frá Höfn að Djúpavogi em 103 km. Vegalengdir á svæðinu era það miklar
að nauðsynlegt er að staðsetja tvo presta þama. Þess vegna er ekki gerð tillaga um
sameiningu en lagt til í almennum athugasemdum að presturinn á Kálfafellsstað sinni
stoðþjónustu á Höfn.
84