Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaöiö-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins á stafrænu formi og (gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaðsins eru hljóörituö. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SANDKORN ■ Guðmundur Gunnarsson, verkalýðsforingi og faðir Bjark- ar Guðmundsdóttur, tekur fullkom- lega mál- stað dóttur sinnar á bloggi sínu og bendir á að hún ferð- ist jafnan án lífvarðar. Hann rifjar upp þegar hún lenti í áreiti ljósmyndara í Los Angeles að honum ásjáandi. „Hann ruddist inn á milli okkar, hrinti okkur til hliðar og barni Bjark- ar og krafðist að hún stillti sér upp og hljóp á eftir henni hvert skref. Oft þurftum við að ýta honum til hliðar til þess að komast áfram og á endanum sögðum við honum að nú væri nóg komið. Þá hrópaði hann að þetta væri fjálst land og við skyldum bara gæta okkar ann- ars myndi hann kæra okkur fyrir líkamsárás og skerðingu á persónulegu frelsi." ■ Mál Arons Pálma Ágústs- sonar komst aftur í hámæli við ítrekaðar ásakanir saksókn- arans Mikes Trent á hendur honum. Trent birti ásakanirn- ar af óljósum ástæðum und- ir tveggja ára gamalli blogg- færslu á vefsíðunni iceland- weatherre- port.com. Þar sakaði hann Aron um alvar- lega glæpi sem engin stoð hefur fundist fyrir. Færslu Trents hefur nú verið eytt út af vefsíðunni ásamt samhang- andi umræðu, nokkuð sem höfundur síðunnar líkir við ormagryfju af því tilefni. ■ Kristinn Hrafnsson, þáver- andi fréttastjóri á DV, ræddi einmitt við sama Mike Trent í greinaflokki sínum um mál Arons Pálma í mars 2004. Þar jós Trent sömu ásökunum yfir Aron Pálma og hann gerði á dög- unum. Ásak- anirnar voru því ekki nýjar. Téð- urTrent ku vera ósáttur við marga í tengslum við málið, en hann var til að mynda ávíttur fyrir að reyna, framhjá dómskerfinu, að fá yfirvöld unglingafangels- anna í Texas til að flytja Aron í fullorðinsfangelsi 17 ára. Fyrir það fékk hann ávítur dómar- ans Mary Craft. ■ Margir voru undrandi þegar síminn valdi vefsíðuna já.is undir sfmaskrána. Enn undar- legra er að þegar slegið er inn nei.is færist vafrinn yfir á já.is. Rætt er um að þetta sé liður í forvörnum Símaskrárinnar gegn því að grínsíða verði sett upp til höfuðs símaskránni. Hins vegar mætti athuga að kannski.is er enn laust. LEIÐARI t Saklaus uns sekt sannast REYNIR TRAU5TAS0N RITSTJÓRI SKRIFAR. Islendingar ákváðu að gcfa Aroni Pálma taikifeeri til þess að lifa cðlilegti lifi. Undarlegar meldingar hafa borist frá Texas um aðAronPálmiÁgústsson sé hættulegur íslending- um. Saksóknarinn Mike Trent læt- ur þau boð út ganga á bloggsíðu að Aron Pálmi hefði átt að sitja í 40 ár í fangelsi í stað þeirra 10 sem hann hefur þegar setið inni fyrir kyn- ferðisbrot sem hann framdi þegar hann var 12 ára. Þótt engin dæmi séu um annað en Aron Pálmi hafi haldið sig innan ramma laganna heldur saksóknarinn áffam að lýsa honum sem stórhættulegum glæpamanni. Ekki reist á öðrum grunni en þeim að hann heldur að Aron Pálmi sé þannig inn- rættur. Mike Trent virðist vera eins konar völva í Texas sem sér fyrir óorðna hluti og krefst refsingar á þeim grunni. íslendingar halda sig sem betur fer við þá grunnreglu að menn eru saklaus- ir uns sekt þeirra sannast. Og þegar fólk er dæmt fyrir brot lýkur málinu og allir eiga þess kost að fá uppreisn æru. Saksóknarinn í Texas hafði með málssókn á hendur Aroni Pálma að gera. Og hann fékk hann dæmdan í fang- elsi. Þar með skyldi ætla að hlut- verki hans sé lokið. En hann held- ur áfram að vega að Aroni með dylgjum um það sem kann að ger- ast og segir að hann sé sekur um fleira en hann var dæmdur fyrir. Hann heldur sig við þá reglu villta vestursins að skjóta fyrst en spyrja svo. Vegna þess að engin teikn eru uppi um annað en Aron Pálmi sé saklaus eftir að afplánun lauk er annað ófært en að hann stefni sak- sóknaranum. Takist að sanna að saksóknarinn fari með róg er eðli- legt að hann fái dóm. Mike Trent er maður á miðjum aldri og því fullkomlega ábyrgur orða sinna og gjörða en Aron Pálmi var dæmdur í fangelsi fyrir það sem hann gerði sem barn. Aðeins það eitt að saksóknarinn vill læsa Aron inni í 40 ár segir allt um öfgar hans og hugsanlega réttarkerfisins í Texas. íslendingar ákváðu að gefa Aroni Pálma tækifæri til þess að lifa eðlilegu lífi. Á meðan hann rís undir því trausti er engin leið að fallast á þá herferð sem Mike Trent stendur fyrir. STRANDHOGG BJARKAR SVARTHÖFÐI Svarthöfði skilur vel hegðun Bjarkar Guðmundsdóttur í flughöfnum. Það er þekkt að Is- lendingar eru sérstaklega viðkvæmir fyrst eftir að þeir koma til útlanda. Þeir fyllast eins konar útrásarfiðr- ingi, ganga síðan berserksganginn áður en þeir láta strandhöggið reiða á innfæddum. Fyrir þessu er forn hefð, sem líkast til á sér enn gene- tíska stoð í þjóðinni. Það er í blóði íslendinga að berja á innfæddum í löndum þar sem þeir eru gestkom- andi, sérstaklega fyrstu mínúturnar. Auk þess em ís- lendingar ekki par hrifnir af myndatökum. Meira að segja hæstvirtur forsetaframbjóðandi Ástþór Magnússon lætur ljósmyndarana fara í sínar hárfínu en nautsterku taugar. ítrek- að hefur hann bmgðist við slíkri allsherjarinnrás og hersetu gegn einkalífinu með ofbeldi. Hann hefur brotið myndavél, sprautað tómatsósu á þær, slegið ljósmynd- ara og tryllst á ýmsan hátt, líkt og eðlilegt er þegar manns einkalíf á á hættu að verða opinbert. Ekki fór Ástþór í forsetaframboð til þess eins að vera myndaður hér og þar. Til þess eru móment; blaðamanna- fundir, tímaritaviðtöl og slíkt, þannig að frambjóðandinn hafi tök á að sjæna sig til og sýna þjóðinni sitt rétta andlit. Eins er með greyið Björk okkar. Ekki brýndi hún raust sína og galaði íðilfagran söng yfir heimsbyggðina til þess eins að vera ljósmynd- uð og svipt þessum rétti sínum til einkalífs. Hún hefúr farið í fjölda tímaritaviðtala um allan heim til þess að mála upp sína ímynd, og svo kemur andfættur ljósmyndari vapp- andi og byrjar að ljósmynda hana óforvarandis. Eðlilega brást hún við með því að stökkva á bak hans og rífa skyrtu hans í tvennt. Því miður náði hún ekki að leggja hann eins og sjónvarpskonuna í Taílandi forðum, því hún féll aftur íýrir sig áður en svo mátti verða. Björk vill bara fá að vera í friði. En hýenur fjölmiðlanna hundelta hana. Þegar hún klæddist álftinni í Los Angeles og verpti egginu friðsamlega í óskar- sveislunni var hún ekki látin í friði fýrir miskunnarlausri pressunni. Því var sjónvarpað um heim allan. Þeg- ar hún þakkaði fyrir Brit-verðlaunin 1998 með orðunum „I am grateful, grapefruit" var því líka sjónvarpað um allan heim. Hvers vegna hellist athyglin yfir þá sem síst vænta? Allt var þetta betra í gamla daga þegar ríka fólkið var mál- að upp á striga af gríðarlegri natni þannig að hvert smáatriði var rétt útfært. Ljósmyndir eru afturför, því málverkin voru mun fallegri. Er til of mikils mælst að ljósmyndarar láti vera að mynda fólk nema það komi út á besta mögulega hátt? Hver græðir á því að myndir séu ekki tipp topp? Er ástæða fyrir hæstvirta dómara landsins til að taka af skar- ið í þessu máli ogbannaljós- myndirafBjörká alþjóðaflugvöllum, líkt og bannað hefur verið að mynda Bubba Morthens í bifreið? Eigum við íslendingar að sameinast um að fá þennan ljósmyndara, Glenn Jeffrey, dæmdan fyrir brot á friðhelgi einkalífsins? Björk getur orðið okkar Múhammeð, sem ekki má mynd- birta án þess að íslendingar tryllist eins og íslamistar. EfNýja-Sjáland hefði sendiráð myndi Svarthöfði mögulega bera að því eld ef hann fengi trylltan múg í lið með sér. „Því miöur finnst mér umræða og fordómar I garð útlendinga hafa aukist. Ég hef miklar áhyggjur af því og tel aö stjórnvöld hefðu þurft að vera mun betur undirbúin áður en landið var opnað. Þau horfu ekki nægjanlega til þess hvaða afleiðingar það getur haft og hefðum átt að læra af mistökum annarra þjóða." Ella Þóra Jónsdóttir, 32 ára félagsfræðingur „Það hefur verið dálítið um glæpa og fyrir vikið dálltiö um fordóma. Að mínu mati er hins vegar ekki hægt að kasta þeim yfir alla llnuna og dæma alla útlendinga fyrir afglöp fárra. Þvl miður hafa umræðan og fordómarnir aukist." Hörður Jónsson, 42 ára húsasmiður „Já, ég hef áhyggjur af því í Ijósi nýjustu frétta." Gísli Ragnarsson, 50 ára þýðandi „Nei, alls ekki. Það er hins vegar of mikið af útlendingum á fslandi og þeim mætti fækka aðeins. Mér finnst þeir hins vegar ekki hafa mætt fordómum hér á landi." Hafþór Sigtryggsson, 30 ára smiður DÓMSTÓLL GÖTUIVIVAR HERJR ÞIJ ÁHVCiCiJUR \I VAXANDI KYNÞÁlTAHATRI HÉR \ LANDI?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.