Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2008, Qupperneq 32
Sammála
HelgaíGóu
„Ég er sammála Helga um
að finna þarf nýjar leiðir til að
hraða uppbyggingu húsnæðis
fyrir aldraða," segir Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
og vísar til opnuauglýsingar sem
Helgi Vilhjálmsson í Góu birti
í flestum blöðum á föstudag
og skoraði á Jóhönnu að beita
sér fyrir lagabreytingu sem geri
lífeyrissjóðum Úeift að fjárfesta í
húsnæði fyrir aldraða.
^ „Einsogstaðanerídagmáþó
jafnvel telja að sú leið sem Helgi
nefnir sé ekki síður heppileg en að
ávaxta fjármagn í hlutabréfum," segir
Jóhanna og vísar til mildlla sviptinga
á hlutabréfamörkuðum. Hún kannast
þó ekki við áhuga á þeirri leið hjá
1 ífp\nH cci nrSi i ni i m
14áraökumaður
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
bifreið á Miklubraut aðfaranótt
sunnudags. Lögreglunni brá í brún
þegar í ljós kom að ökumaður
bifreiðarinnar var aðeins á
fimmtánda ári. Auk ökumannsins
voru tveir farþegar í bflnum sem
einnig verða fimmtán ára á árinu.
Bflinn tóku drengimir ófrjálsri
hendi ffá föður eins þeirra. Eitt
umferðaróhapp átti sér stað sömu
nótt á Gullinbrú þegar ökumaður
missti stjórn á bifreið sinni og
keyrði á ljósastaur. Ökumaður
bflsins slasaðist lítillega á höfði en
farþegi slapp ómeiddur. Fjórir vom
teloiir fyrir ölvunarakstur.
« Sveitarstjóri
tjáir sig ekki
„Ég vil ekkert tjá mig um mál-
ið að svo stöddu," segir Brynjólfur
Árnason, fýrrverandi sveitarstjóri
Grímseyjarhrepps. Brynjólfur á yfir
höfði sér kæmr fyrir bókhaldssvik og
skjalafals í emb-
ætti sem sveitar-
stjóri Grímseyj-
arhrepps. Farið
var að grennslast
fýrir um bókhald
hreppsins þegar
Brynjólfur var
dæmdur í þriggja
mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa stolið
12.900 lítmm af olíu. í ljós kom að
ekki var allt með felldu í bókhaldi
hreppsins og er Brynjólfur meðal
annars talinn hafa keypt hæðarmæli
fýrir góðkunningja sína í Reykjavík
og skotbómulyftara að verðmæti
fimm til sex milljónir. Brynjólfur
hefur dvalið á Akureyri síðan upp
komst um meint svindl hans.
Hvarfékk Marsibil
skíðagallann?
FRETTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrirfréttaskot sem verðuraðalfrétt áforsiðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910
Alfreð Þorsteinsson styður Björn Inga og segir fatastyrki algenga allt frá tíma R-listans:
EFSTU MENN FRAMB0ÐA
FA STYRKITIL FATAKAUPA
VALUR GRETTISSON
bladamaður skrifar:
„Ég fékk allavega ekki inneignarnótu
hjá Sævari Karli til þess að kaupa mér
dragt," segir Marsibil Sæmundsdótt-
ir, varaborgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, um fatastyrki til flokksins.
Guðjón Ólafur Jónsson, fýrrverandi
þingmaður, skrifaði um gróusögur
varðandi fatastyrki til framsóknar-
manna í trúnaðarbréfi sem var sent
á um 2000 félaga í Framsóknarfélagi
Reykjavíkur. Bréfið hefur valdið ólg-
andi deilum í flokknum. Marsibil seg-
ir aftur slíka styrki tíðkast hjá öllum
stjórnmálaflokkum þó svo hún sjálf
hafi ekki þegið slflcan styrk þegar hún
ásamt Bimi Inga Hrafnssyni og Ósk-
ari Bergssyni bauð sig fram í síðustu
borgarstjórnarkosningum.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
„Ég man ekki betur en
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir hafi fengið svona
stuðning hjá Reykjavík-
urlistanum um árabil"
ildum DV fengu ffambjóðendur
Framsóknar afslætti í fatabúðum en
mismunurinn var greiddur af styrkt-
araðilum Framsóknar.
R-listinn með fatastyrk
Fyrrverandi oddviti Framsóknar í
borgarstjórn Reykjavíkur, Alfreð Þor-
steinsson, segir ekkert óeðlilegt við
að efstu frambjóðendur á listum fái
styrki til fatakaupa. Hann tekur undir
með Marsibil varðandi að allir flokk-
ar njóti slíkra styrkja, enda ómögulegt
að frambjóðendur séu alltaf í sömu
fötunum.
Það sé talið sjálfsagt að aðstoða fram-
bjóðendur sem þurfa að koma ffarn
í sjónvarpi og á öðrum opinberum
vettvangi Sjálfur segist hann vera af
gamla skólanum og því aldrei þurft
fatastyrki.
„Ég styð Bjöm Inga heflshugar í
þessu fári öllu saman. Hann hefur
gríðarlegan kjörþokka ólíkt sumum
öðrum," segir Alfreð að lokum.
Alfreð Þorsteinsson Segir sjálfsagt að
frambjóðendur fái fatstyrki.
„Ég man ekki betur en Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir hafi fengið svona
stuðning hjá Reykjavíkurlistanum,"
segir Alfreð og vfll hann meina að
styrkirnir séu ekki nýir af nálinni.
Hnífabardagar innanflokks
Fyrrverandi þingmaðurinn Guð-
jón Ólafur Jónsson sagði í viðtali í
Silfri Egils að Björn Ingi hefði stungið
hann í bakið með heilu hnífasettun-
um. Þá sagði hann sviðna jörð á eftir
Bimi Inga og sagði hann lítinn strák
með eldspýtur. Þegar haft var sam-
band við Óskar Bergsson, varaborg-
arfulltrúa Framsóknar, vfldi hann ekki
tjá sig um málið að öðm leyti en að
þessar innbyrðisdeilur yrði að útkljá
innan flokksins, ekki í fjölmiölum.
Fyrsta bunan Það var múgur og margmenni í Bláfjöllum í blíðviðrinu í gær.Talið var að um tíu þúsund manns hefðu lagt leið sína í
Bláfjöll á skíði. Sumir voru reyndari en aðrir þótt ekki hafi verið neinn bilbug að finna á litlu skíðaköppunum. DV-mynd: Stefán
í háska á Sæbrautinni þegar ökumaöur virti ekki biðskyldu:
Dópaður laqði fjóra í lífshættu
„Þetta er eitt versta dæmi sem
maður hefur heyrt í sambandi við
vímuefnaakstur, það að menn stofni
ekki bara sjálfum sér heldur öðr-
um í hættu er hrikalegt," segir Einar
Magnús Magnússon, upplýsingafull-
trúi Umferðarstofu, vegna umferðar-
slyss sem átti sér stað á gatnamótum
Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar
um miðjan dag í gær. Ökumaður virti
ekki biðskyldu og keyrði í kjölfarið á
aðra bifreið. Afleiðingarnar urðu þær
að bifreiðin kastaðist á umferðarljós.
f bflnum voru fjórir farþegar, tveir
fullorðnir og tvö börn. Oll sátu þau
föst í bifreiðinni. Þegar búið var að
ná þeim út úr bifreiðinni voru þau
færð til aðhlynningar.
Ökumaðurinn er grunaður um að
hafa verið undir áhrifum eiturlyfja.
„Þegar maður heyrir svona lagað
dettur manni helst í hug að um sjúk-
ling sé að ræða. Ég er búinn að sjá
fjöldamörg dæmi þess að fólk keyri
undir áhrifum vímuefna og áfengi
þar með talið hér á landi. Ég hvet
þetta fólk sem tekið er af lögreglunni
til að líta ekki á það sem eiginlega
refsingu heldur tækifæri til að leita
sér lækninga," segir Einar.
Eftir að lögreglunni hér á landi
hlotnaðist betri búnaður til að greina
ólögleg vímuefni í ökumönnum hef-
ur tilfellunum farið fjölgandi.
Einar vill koma á ffamfæri því
sem þeir hjá Umferðarstofu hafa
lagt aukna áherslu á. „Það er mjög
mikilvægt að aðstandendur grípi inn
Ógnvaldar Stöðugt fleiri eru staðnir að
þvf að aka undir áhrifum eiturlyfja.
í og komi með öllu móti í veg fýrir það
að viðkomandi keyri undir áhrifum.
Sumir líta svo á að þeir séu að klaga
á meðan þeir geta einfaldlega verið
að bjarga mannslífum," segir Einar
að lokum.
kolbrun@dv.is
16 ára stúlka var á föstudag
dæmd fyrir að hafa skvett áfengi
framan í lögregluþjón á Akureyri
í maí í fýrra. lögreglumenn fengu
ábendingu um að slagsmál væru
í miðbæ Akureyrar. Til þeirra
kom maður sem sagðist hafa orð-
ið fýrir líkamsárás og vísaði hann
lögreglunni á árásarstaðinn. Þar
var hópur fólks sem gerði aðsúg
að lögreglumönnunum sem
voru að handtaka mann sem lét
ófriðlega. Við það fékk annar lög-
reglumannanna bjórgusu yfir sig
frá stúlkunni. Þrátt fýrir að hafa
verið sakfelld var henni ekki gerð
sérstök refsing haldi hún skilorð
í tvö ár.
é
Litlar sumlokuv 399 kr.
+ lítió gosglus 100 kr.
- 499