Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV Lögmaöur hinnar sjö ára Jinky Young, sem sögð er dóttir Bobbys Fischer, íhugar að ráða íslenskan lögfræðing til að aðstoða sig við að sækja rétt stúlkunnar. Samuel Estimo lög- maður segir að Jinky og móðir hennar komi hugsanlega til íslands á næstunni. Af LOGMAÐUR t JINKYKANNAR AÐSTÆÐUR HÉ Fékk dótturina í heimsókn Jinky og Marylin Young komu í heimsókn til Islands og dvöldu hjá Bobby Fischer í nokkrar vikur í september 2005, segir Samuel Estimo, lögmaöur þeirra, Þá segir hann hafa verið Ijóst aö Miyoko Watai og Fischer væru ekki gift. SAVDKORV ■ Forystumenn síðustu rík- isstjómar gerðu mikið úr því að matvælaverð myndi iækka vegna tollalækkunar sem tók gildi 1. mars á síðasta ári, á sama tíma og virðis- aukaskattur á matvæli var lækk- aður. Nú er tæpt ár liðið og enn hafa lækkanirnar ekki skilað sér að neinu ráði samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Að hluta til er ástæðan sú að framkvæmdin klúðraðist en hin að tollarnir eru enn of háir til að það skipti miklu. Spurning hvað Einari K. Guð- finnssyni, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, finnst um það - þeim mikla stuðn- ingsmanni bænda. ■ Allavega er ljóst að ísland hefur löngum verið eitt dýr- asta ef ekki aldýrasta land í heimi. Þetta styðja frétt- ir síðustu daga af því að mat- vælaverð á íslandi sé 64 prósent- um dýrara en meðal- verð í þeim ríkjum sem Island er borið saman við. Þetta varð Ágústi Ólafl Ágústssyni, vara- formanni Samfylkingarinnar, tilefni til vangaveltna. Hann er ómyrkur i máli á bloggi sínu og gefur íslandi vansæmdar- heitið okurbúlla. ■ Sigurður Páisson vakti at- hygli fyrir það að hvetja til hækkunar verðlaunafjárins sem fylgir hinum íslensku bókmenntaverðlaunum. Þetta gerði hann í Kiljunni í Sjón- varpinu kvöldið sem var tii- kynnt að hann hefði verið að hann væri einn þeirra sem til- nefndir voru til verðlaunanna. Þes'su lýsti hann sem aðferð til að auka veg og virðingu verðlaun- anna og rétt er að þetta hefur gefist vel víða. Nú hefur hann verið spurður út í tilfinninguna að vinna svo verðlaunin og þá segir hann það góða tilfinningu að vinna verðlaunin en að menn lifi það alveg af að vinna þau ekki. Spurning hvort missir- inn yrði meiri ef verðlaunin væru 10 milljónir eins og Sig- urður lagði til. ■ lóhann Páll Valdimarsson vann Eddu en tapaði sumum af helstu skrautfjöðrum út- gáfunnar eftir samrunann við JPV undir nafninu Forlagið. Samkeppn- iseftirlitið setur mörg skilyrði við samrunan- um og velta nú sumir því fyrir sér hvort hann reynist of dýrkeypt- ur. Kostnaðurinn sé þó ekki endilega mestur fyrir Forlagið sem missir fslensku orðabók- ina, fleiri orðabækur og Hall- dór Laxness. Menn velta nú fýrir sér hvort aðrar útgáfur séu nógu sterkar til að standa að baki vandaðri og fjárfrekri útgáfu eins og íslensku orða- bókinni. Jóhann Páll heldur þó Biblíunni. <•1 TRAUSTl HAFSTfclNSSON blaðamadur skrifoi: traustiíoidv.is „Ég trúi því ekki að Miyoko sé gift Fis- cher. Annaðhvort hefur hún sannan- ir fyrir því eða ekki. Ég skil ekki hvers vegna hún er í vandræðum með að sýna fram á hjúskapinn tf hún er virkilega eiginkona hans," segir Samuel Estimo, lögfræðingur ffá Fil- ippseyjum, í samtali við DV. Estimo hefur tekið að sér erfða- mál 7 ára stúlku, Jinky Young, sem sögð er dóttir skákmeistarans Bobbys Fischer. Hún fæddist 21. maí árið 2001 í borginni Baguio á Filipp- seyjum og móðir hennar, Marylin Young, fullyrðir að stúlkan sé dótt- ir Fischers. Áætlað er að skákmeist- arinn hafi skilið eftir sig nærri 130 milljónir króna og ætla mæðgurnar að gera fullt tilkall til arfsins. Sé þess nauðsyn ætla þær að berjast hart fyr- ir rétti sínum. Á leiðinni til íslands „Já, ég vinn fyrir þær mægður. Ég hef öli gögn sem sanna tilvist dótt- ur Fischers, fæðingarvottorð, vega- bréf, myndir afþeim öllum saman og margt fleira," segir lögfræðingurinn Estimo í samtali við DV Aðspurður úúlokar hann ekki komu mæðgnanna til íslands á næst- unni. Fyrst íhugar Estimo að ráða ís- lenskan lögfræðing til að aðstoða sig. „Hugsanlega koma þær á næstunni til íslands. Ég hef fengið öll gögn í hend- urnar og legg þau ffarn innan örfárra daga. Nú er ég að kynna mér hvernig hlutirnir virka á Islandi því þar mun ég leggja gögnin fram," bætir Estimo við. Þreföld barátta Mægðumar horfa fr am á töluverða baráttu því Miyoko Watai, hin jap- anska samferðarkona Fischers, telur sig lögbundna eiginkonu skákmeist- arans. Fram til þessa hefur hún hins vegar átt í erfiðleikum með að sýna fram á lögmæti hjúskaparins og hef- ur meðal annars verið neitað um hjú- skaparvottorð frá japanska sendiráð- inu hér á landi. Þá hafa tveir ffændur Fischers í Bandaríkjunum ráðið sér lögfræðing hér á landi og gera þeir til- kall til milljónanna einnig. Þá standa deilur yfir milli vina Fis- chers sem sumir hverjir em ósáttir við útfærslu útfararinnar og efast um lög- mæti hennar. Til viðbótar hefur Skák- samband Bandaríkjanna farið fram á að lík Bobbys Fischer verði sent til New York. Bandaríska sambandið hefur sent Skáksambandi Islands er- indi þar sem spurt er hvenær megi eigavonálíkinu. Vilja arfinn Marylin hefur fullyrt að Fischer hafi hringt í sig kvöldið íyrir and- lát hans en því miður hafi hún ekki náð símtalinu. Marylin segist gráta í hvert sinn sem hún hugsar til þess. Hún fullyrðir jafnframt að þær mæð- gur hafi heimsótt Fischer til Islands í „Ég heföll gögn sem sanna tilvist dóttur Fis- chers, fæöingarvottorö, vegabréf, myndir af þeim öllumsaman og margt fleira." september 2005 og dvalið hjá honum í 3 vikur. „Þær vom hjá Fischer á ís- landi og Miyoko var þá líka á landinu. Þá sást að þau vom ekki hjón enda var hann ekki týpan í að vera að gifta sig svona. Að sjálfsögðu dreg ég það í efa að þau hafi verið hjón og mínir skjól- stæðingar gera kröfu í allan arfinn," segir Estimo í samtali við DV. Fischer, fýrrverandi heimsmeist- ari í skák, lést af völdum nýrnabilun- ar á Landspítalanum fimmtudaginn 17. janúar og var jarðsunginn í Laug- ardælakirkjugarði rétt fyrir utan Sel- foss. Útförin fór fram í kyrrþey. SKALDID SKRIFAR W Öll erum við einstök . -ta&t.K ^ .. 1»,;;)■»,! )iiiiu.im mm . n, EWMfeilMta TIMilll m ' ' SEWl , , KRISTJÁN HREINSSON SKÁLDSKRIFAR. „Ogég varsvosaklíiusaðégluifðialdrei lieyrt minnst A þágríðarlegu útgeislunsem konurnar nefndu ímín eyru" Eg hef mátt njóta þess hlutskiptis nú um nokkra hríð að vera einstæður faðir. Lengi vel reyndi ég að halda þessu einkamáli mínu leyndu. En svo kvisaðist þetta út og brátt fóru línurnar að glóa. Ungar og fagrar konur - og reyndar konur á öllum aldri - hringdu á ýms- um tímum og buðu mér gull og græna skóga. Ekki var ég mótfallinn því að njóta hyllinnar. En þegar þetta ágerðist, ákvað ég að láta snoð- klippa hár mitt, svona til að kaupa mér frið og fela ímyndina, en hið gagnstæða gerðist; nýr og breyttur maður kom í ljós og konur töluðu um hvað þetta færi mér vel og sögðu mig hafa yngst um 20 ár. Auðvitað voru þetta allt einstakar konur sem hringdu. Sumar vildu fá mig til að hitta sig á netinu, aðrar vildu bara tala við mig og enn aðrar vildu hitta mig sem fyrst, í eigin per- sónu. Og ég var svo saklaus að ég hafði aldrei heyrt minnst á þá gríðarlegu útgeislun sem konurnar nefndu í mín eyru. Ágangurinn varð slíkur að ég varð að leita ráða hjá góðum vini mínum sem er frægur hljómborðsleikari frá Keflavík. (Ég vil gæta nafnleyndar). En þessi vinur minn býr núna í Hafnarfirði og leikur annað veifið á píanó í sal hótels hér í borg. Viðvörunarorð vinar míns voru á þessa leið: -Um daginn kom ég í eldhús hótels, þar bograði ung kona yfir vaski og var að sprauta leifar af diskum. En diskarnir voru allir atað- ir súkkulaði. Ég spurði konuna hvort hún væri ekki til í að sækja handa mér rauðvínsglas og sagðist svo sem geta hreinsað af diskunum á meðan hún reddaði víninu. Þá svaraði sú stutta: -Þú verður að ákveða hvort þú ætlar að sleikja súkkulaðið eða sprauta. Ég brosti og svaraði: -Ég er nú af þeirri kynslóð, væna mín, sem fer ekki út í að sleikja nema tryggt sé að maður fái að sprauta. Svona hljómuðu semsagt varnaðarorð vin- ar míns og ég er ekki alveg búinn að átta mig á því hvernig best sé að koma þessu heim og saman. En á meðan ég var að reyna að rýna í andblæ sögunnar þá mundi ég eftir limru sem ég orti í Keflavík fyrir margt löngu: Það var kona sem dýrkaði klámhunda, hún kom sér í mjúkinn hjá Ámunda og hún varð svo œst að hún henti sér ncest undir hljómsveit sem var þar í námunda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.