Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 7
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 7
Illviðri um land allt skapaði vandræðaástand í gær. Veðurspá er slæm:
Leggja á ófærar heiðar á smábílum
Jóhann R. Benediktsson Segir
aldrei jafnmarga hafa verið í
gæsluvarðhaldi vegna svo stórra
mála í einu á Suðurnesjum.
unnar kom í ljós að hann var að
reyna að smygla tæplega einu og
hálfu kílói af kókaíni til lands-
ins. Maðurinn var umsvifalaust
hnepptur í gæsluvarðhald. Það
mál er á frumstigi rannsóknar
en aðeins Hollendingurinn hef-
ur verið handtekinn í tengslum
við smyglið. Hann er því sjö-
undi maðurinn sem er hneppt-
ur í gæsluvarðhald á rúmlega
tveimur mánuðum.
Kippir í smygli
„Það koma alltaf kippir í
fíkniefnasmygl þegar stórum
innflutningsleiðum hefur ver-
ið lokað," segir Jóhann R. Bene-
diktsson, lögreglustjóri á Suður-
nesjum. Að sögn Jóhanns hafa
aldrei jafnmörg og stór mál hvílt
á herðum rannsóknardeildar-
innar í einu. Hann segir mikið
mæða á lögreglunni þessa dag-
ana en menn séu engu að síður
vanir að taka til hendinni.
„Menn eru að hamast við að
ljúka málunum til að vera við-
búnir að mæta fleirum," segir
Jóhann sem er sáttur við árang-
urinn.
Mikil ófærð var á öllum vegum
landsins í gær, þrátt fyrir að veður
hafi virst skaplegt á köflum í byggð.
Björgunarsveitir unnu að því hörð-
um höndum fram eftir gærdeginum
að losa fasta bíla á heiðum.
Við Litlu kaffistofuna á Hellis-
heiði safnaðist saman bílafjöld, allt
frá smábílum upp í vel búna jeppa og
flutningabíla á keðjum, sem höfðust
þar við í þeim tílgangi að sæta fær-
is. Björgunarsveitarfólk á staðnum
gekk úr skugga um að enginn færi þó
á heiðina nema í neyðartilvikum. Á
háheiðinni, sem og í Þrengslum var
blindhríð og skafrenningur fram eft-
ir degi og hafði snjór safnast í djúpa
skafla.
Þrjú snjóflóð féllu í Súðavíkurhlíð
þegar nær dró hádegi í gær. Kona
sem þar var á ferð ók inn í fyrsta flóð-
ið, sömu eftir að það féll. Sjúkraflutn-
ingamenn sóttu konuna og fóru með
hana á Fjórðungssjúkrahúsið á ísa-
firði. Hún reyndist ekki slösuð. Tvö
flóð féllu í kjölfarið. Björgunarsveit
og lögregla leituðu sig grunlausar að
fórnarlömbum og lokuðu svo fyrir
alla umferð, bæði um Súðavíkurhlíð
og Óshlíð vegna snjóflóðahættu.
Herjólfur fór hvergi vegna veðurs
og innanlandsflug Iá einnig niðri.
Talsverðar seinkanir urðu á milli-
landaflugi. Lokað var fyrir umferð
um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði,
Bröttubrekku, Klettsháls, Stein-
grímsfjarðarheiði og ísafjarðardjúp,
Möðrudalsöræfi, Fjarðarheiði og
fleiri fjallvegi. Snjómokstri var víð-
ast hvar hætt um hádegisbilið, enda
höfðu tæki og tól ekki undan.
Veðurstofan spáir áframhaldandi
illviðri með' suðvestanstormi um
mestallt land. Líklegt er að létti til á
Norðaustur- og Austurlandi og vind
lægi eitthvað fyrripart dagsins í dag.
Síðar í dag mun hlána og hvessa á ný.
sigtryggur@dv.is
Við Litlu kaffistofuna Margir freistuðu
þess að leggja á Hellisheiðina í gær,
jafnvel á illa búnum smábflum.
Björgunarsveitarmenn stóðu vaktina og
hleyptu engum framhjá.
Mitt er þitt
"Mitt svæði"er þitt einkasvæði hjá LÍN.
Allir sem hafa aðgang að íslenskum heimabanka eða þjónustusíðu RSK geta eftir
innskráningu þar komist með öruggum hætti inn á "Mitt svæði" hjá LÍN.
"Mitt svæði"erfyrir námsmenn,greiðendur námslána og ábyrgðarmenn þeirra.
Samtals má ætla að um 92.000 manns eigi erindi inn á einkasvæði sitt hjá LfN.
Nýjasta þjónustan er fyrir greiðendur námslána. Á"Mínu svæði"geta þeir nú afþakkað
greiðsluseðla og þar með fengið seðilgjöld sín felld niður að fullu.
LÍN hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér upplýsingar og möguleikana á"Mínu svæði"hjá sjóðnum.
Nánari umfjöllun er á www.lin.is.
LÍN
Lánasjóður íslenskra námsmanna Borgartúni 21 Reykjavík www.lin.is lin@lin.is