Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Helgarblaö DV
TÁKNMYND BLÓMATÍMANS
Hann var á tímabili táknmynd hippatima-
bilsins og á meðal lærisveina hans voru
ekki ómerkari menn en Bitlarnir, Donovan,
Mia Farrow og hinir rúllandi steinar. Mah-
arishi Mahesh Yogi safnaðist til feðra
sinna að morgni síðastliðins þriðjudags,
niutíu og eins árs að aldri að því að talið er,
en einhver óvissa umlykur aldur hans.
G
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaöur skrifar: kolbeinn@dv.is
Maharishi Mahesh Yogi lést síðaslið-
inn þriðjudag í Vlodrop í Hollandi.
Einhver óvissa umlykur aldur hans
en árin 1911, 1917 og 1918 hafa ver-
ið nefnd sem fæðingarár hans, en
talið er að hann hafl verið á nítug-
asta og fyrsta aldursári. Maharishi
var að mestu óþekkt stærð í hinum
vestræna heimi til ársins 1967, þrátt
fyrir að hafa kennt innhverfa íhugun
víða um lönd, en lenti þá í hringiðu
poppmenningarinnar. Um það leyti
var hippatíminn að slíta barnsskón-
um og Maharishi stóð fyrir íhugun-
arhelgi í Bangor í Wales.
Meðal þeirra sem tóku þátt í íhug-
unarhelginni voru Bítiarnir og má
með nokkurri vissu fullyrða að þeir
áttu stóran þátt í vinsældum þeirr-
ar íhugunartækni sem Maharishi
Mahesh Yogi kenndi og stundaði.
Árið 1968 sóttu Bítlarnir, ásamt fleira
frægu fólki, Maharishi heim til Ris-
hikesh við rætur Himalaya-fjallanna
á Indlandi og ekki leið á löngu þar til
myndir af þeim, sitjandi við fótskör
Maharishi Mahesh Yogi Varð
táknmynd hippa- og blómatímans
meistarans með krosslagða fætur,
birtust í íjölmiðlum víða um heim.
Sexy Sadie
Á meðan á dvöl Bítlanna stóð
hljóp snurða á þráðinn, þegar sá
orðrómur kviknaði að Maharishi
hefði viðhaft óviðurkvæmilega til-
burði gagnvart leikkonunni Míu Far-
row. Bítlunum og fleirum fannst þeir
illa sviknir þegar þessi andans mað-
ur virtist ekki vera eins heilagur og
hann vildi vera láta. Orðrómur þessi
varð kveikjan að lagi Johns Lennon,
Sexy Sadie en þar segir „What have
you done? You made a fool of every-
one". John Lennon fannst hann hafa
verið hafður að fífli og sömu sögu
mátti segja um fleiri.
Reyndar átti þessi orðrómur sín-
ar eðlilegu skýringar. Með Bítlunum
í för var Grikkinn Alexis Mardas, en
hann var yfirmaður raftæknideildar
Apple-fyrirtækis Bítlanna. En hann
var einnig áhangandi Bítlanna og
leist ekki á hve mikil áhrif Maharishi
hafði á þá. Hann kom þessari sögu-
sögn af stað til að grafa undan áhrif-
um Maharishi og gera Bítlana afhuga
honum. Hann hafði erindi sem erfiði
þótt Bítlarnir hafi síðar sagt að þeir
hefðu ekki lagt trúnað á ásakanirnar
á hendur Maharishi Mahesh Yogi.
Fimm milljónir manna
Árið 1970 var talið að Maharis-
hi Mahesh Yogi hefði að baki sér
um fimm milljónir manna víða um
heim sem stunduðu innhverfa íhug-
un. Ekki leið á löngu þar til hann
hafði stofnað skóla um allan heim og
byggt upp margra milljarða fyrirtæki
sem var með puttana í sölu fasteigna.
Fyrirtækið var upphaflega að mestu
fjármagnað með frjálsum fjárfram-
lögum og gjaldi sem innheimt var
við kennslu innhverfrar íhugunar.
Árið 2002 Ienti hann á milli tann-
anna á gárungum þegar hann til-
kynnti að hann gæti tekist á við
hryðjuverk og styrjaldir ef hann gæti
safnað sem samsvarar um sextíu og
fimm milljörðum íslenskra króna til
að þjálfa fjörutíu þúsund manns í
innhverfri íhugun. Hugmynd hans
um að binda enda á hungur í heim-
inum með því að kynna lífræna rækt-
un í fátækustu löndunum fékk ekki
mikinn hljómgrunn, enda sagðist
hann þurfa stjarnfræðilega fjárhæð
til verksins.
Áhrifavaldur
Hvaða skoðun sem fólk hefur á
viðskiptum Maharishi Mahesh Yogi
og, að flestra mati, óraunhæfum fyr-
irætlunum í málefnum friðar og far-
sældar um heim allan, er engum
blöðum um það að fletta að hann
hafði áhrif á heila kynslóð þegar
blómatíminn stóð sem hæst og þeir
sem upplifðu hann fundu samhljóm
í boðskap Maharishi. Allar götur síð-
an hafa lærisveinar hans haldið uppi
merki hans og á tímum hraða og
streitu, styrjalda og hungurs fjölg-
ar þeim sífellt sem leita friðar innra
með sér og telja sig ná fram kyrrð í
huga sínum með því að nota tækni
Maharishi Mahesh Yogi.
I FYRSTA SKIPTIAISLANDI
Þltt ,ls án stofngjaldsl
Taktu þátt í byltingunni...
Farðu á www.lén.is og skráðu þitt .is lén
án stofngjaids! '
flWTT
lén.is
Heimili heimasíðunnar
@netvistun
Vefir sem virka