Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 Menning DV í gærkvöldi var opnuð sýningin Þögn í Hafnarhúsinu. Þar lúrir verk Finnboga Péturssonar, Stund, en á sýningunni eru einnig verk eftir listamennina Harald Jónsson, Hörpu Árnadóttur og Finn Arnar Arnarson. Verkið er stillt og hljótt, ólíkt mörgum hans verka sem drynja, hvína eða púls- era í beinum áhorfandans. 66 Tuttugu og fimm stækkunargler standa nokkra sentimetra frá þeim vegg í A-sal Hafnarhússins sem snýr að gluggahliðinni út að götunni. f glerjunum sjáum við öfugsnúna smækkaða mynd af umheiminum eins og hann ferðast hjá glugganum og ljósið í salnum brotnar fallega á veggnum umhverfis glerin. En af hverju að snúa heiminum á hvolf? „Þetta byrjaði á því að heima hjá mér er ofsalega ljótt hús í bakgarð- inum," segir Finnbogi. „Svo ég setti eitt svona gler upp í stofunni hjá mér og beindi því að húsinu. Eftir að ég gerði það og snéri í raun og veru þessu ljóta útsýni hjá mér á hvolf, þá varð það fallegt og ég náði að sætta mig við það. Kannski fer maður af stað með hluti sem maður er ekki sáttur við en snýr þeim á hvoif til þess að geta horft á þá," segir Finnbogi og vissulega má segja um Tryggvagötuna sem Lista- safn Reykjavíkur stendur við að hún sé talsvert meira augnayndi eins og hún birtist í sjónglerjum hans. Að snappa yfir í hinn heiminn Finnbogi opnaði fyrir skömmu sýningu í Listasafni Akureyrar sem ber yfirskriftina Búdda er á Akureyri - Oft var zen en nú er nauðzen ásamt Erlu Þórarinsdóttur, Halldóri Ás- geirssyni og bandaríska vídeólista- manninum Bill Viola. „Þemað er búdda, en mín að- koma að þessu er kannski nálægð verka minna við búddíska hugsun. Ekki þar fýrir að ég iðki búddisma, heldur er það meira ásjóna verk- anna sem gerði það að verkum að ég gaf mig í þessa sýningu. Þetta er ástand sem ég hef reynt að búa til með verkunum mínum. Kannski ástand sem fólk leitar í íhugun eða eitthvað slíkt - að komast dálítið á annað stig," segir Finnbogi en þessi upphafna stemning þar sem hjarta áhorfandans lyftist örlítið í brjóst- inu er eins konar ára sem stafað hef- ur af verkum hans í gegnum tíðina. „Ég hef alltaf haft áhuga á þessu," segir hann. „Mér finnst mikilvægt að hleypa áhorfandanum dálítið á önnur svið en eru inni í sýningar- rýminu. Það er mjög gott ef þú nærð að fara pínulítið inn á við og leysa úr læðingi eitthvað sem er kannski til staðar. Kjöraðstæður eru þannig að þú náir að fara á milli þessara tveggja heima sem við lifum í, að geta „triggerað" þannig ástand," seg- ir Finnbogi og á við svokallað alfa- hugarástand sem fólk kemst í þegar það lafir á milli svefns og vöku. „Þetta er fyrsta stig dáleiðslu, sem þú finnur fyrir til dæmis þegar þú ert að keyra og fólk fer almennt í mörg- um sinnum á dag. Ég er ekki að mæl- ast til þess að fólk lifi í þessu ástandi en þar gerist ansi margt ef þú nærð ákveðinni slökun. Fólk hefiir verið skammað fýrir þetta, börn sérstak- lega - að vera sveimhuga eða utan við sig. Kannski lifir fólk bara mis- djúpt í þessu ástandi. Ég leita mjög mikið í þetta í hug- myndavinnu og nota til þess bað- kerið heima hjá mér. Þar nærðu þessu ástandi á milli svefns og vöku þar sem verður svo mikil slökun í heilanum að þetta kemur allt til þín. Þú ferð af stað með ákveðið vandamál og færð úrlausn. Þetta er nú bara mín aðferð. Sumir fara út að hlaupa og öðlast eitthvert svip- að ástand. Ég lít á þetta meira sem svona bónus við verkin mín og á tímabili leitaði ég þetta dálítið uppi. Að vinna með það að koma fólld í ákveðið ástand þannig að það næði að detta út. Mér finnst svo rosalega heillandi að fara yfir línuna, snappa út og koma aftur. Það framkallast myndir, orð og alls konar hugmynd- ir þegar þú dettur yfir í hinn heim- inn," segir Finnbogi. Á sýningunni í Listasafni Ak- ureyrar setti Finnbogi upp verk- ið Orkubekkur, sem upphaflega var sýnt í Nýlistasafninu árið 1991. Þetta er legubekkur þar sem hann hefur komið fyrir hátölurum sem nema við orkustöðvarnar í líkama þess sem þar hallar sér. „Hver orkustöð í líkamanum hef- ur ákveðna liti, tóna og tíðni en þeg- ar þú leggst upp á bekkinn færðu þessar tíðnir á orkustöðvarnar," segir Finnbogi. „Það sem gerðist þegar ég var búinn að klára bekkinn og lagðist í hann var að ég datt út. En út af því að hljóðin voru stöðug hélt það athygl- inni vakandi hérna megin heimsins þannig að þegar ég var að sofna fóru að myndast svona göp í hljóðinu og það gerðist í takt við þá draummynd sem birtist mér fýrir hugskotssjón- um. Svo þegar ég fattaði hvað væri raunverulega í gangi missti ég ein- beitinguna og spratt á lappir. Þetta var nákvæmlega línan milli svefns og vöku sem ég hafði fundið þarna á bekknum. Línan sem alla jafna er loðin og breið og erfitt að henda reiður á var þarna orðin grönn og mjög sýnileg."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.