Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Helgarblaö DV
Ljós og hreyfing er þema Vetrarhátíðar sem nú er haldin i sjöunda sinn. Hátíðin hófst með litríkri ljósagöngu
á Skólavörðuholti í gær, fimmtudag og stendur yfir í þrjá daga. Dagskráin er venju samkvæmt afar vegleg en
óhætt er að fullyrða að iðandi mannlíf verður í Reykjavík um helgina.
Iva Nova Rússneska stelpnahljómsveitin Iva Nova,
verður lokaatriði Vetrarhátíðarinnar að þessu sinni.
Hljómsveitin mun halda tónleika á NASA klukkan
21.00 á laugardagskvöldið og er frítt inn á tónleikana
eins og á alla aðra viðburði hátíðarinnar.
8.febrúar
hH . ..ÆK&iŒm?
V -Vttt
Vísindasmiðja
Kl. 13.00-16.00
[ Ráðhúsi Reykjavfkur verður sett upp sérstök
vísindasmiðja fyrir börn á öllum aldri þar sem
unnið er með Ijós og fjölbreytilegan efnivið til
byggingar. Skoðaö er hvernig hægt er að nota
Ijós til að gefa byggingum annað Iff, hvernig
sumt efni hleypir Ijósi f gegnum sig og annað
ekki og er sköpunarþörf og þekkingarþorsta gert
jafnhátt undir höfði.
Krydduð kuldatíð í Iðnó föstudag kl.
Kl 09.00-14.00
Öðruvfsi málþing um fjölbreytileikann í (slensku
samfélagi, þar sem boðið verður upp á fyrirlestra
um fjölbreytileika í matargerð, veðráttu,
mannlffinu og fleira.
Hönnuður dagsins í Kraum föstudag
kl.9.00-19.00
Hönnuðir dagsins, NOTRUM-textilhönnuðir, verða
á staðnum og spjalla viö gesti í Aðalstræti 10.
Tangókennsla á Háskólatorgi föstudag
kl. 16.00-17.30
Tangódansarar á vegum Tangófélagsins bjóða
byrjendum jafnt sem lengra komnum upp á
kennslu f tangó. Allir velkomnir svo lengi sem
húsrúm leyfir. Háskóli Islands, Háskólatorg.
Landslagsmálverk f START ART föstudag
kl. 13.00 -22.00 START ART. Hrafnhildur
Inga Slgurðardóttlr sýnir landslagsmálverk sem
vfsa öll til veðurfarsins á landinu f haust og vetur,
lægöir hver á fætur annarrl, úrkoma, dumbungur
og mikið skýjafar. START ART, Laugavegi 12b
KVIK-MYND í Kirsuberjatrénu föstudag
kl. 20.00-22.00
Arna Valsdóttir sýnir í kjallara Kirsuberjatrésins.
Verkið er eins konar portrett af húsi. Með
kvikmyndatækni dregur Arna upp mynd af
húsinu og þvf sem það hýsir. Kirsuberjatréð,
Vesturgötu 4.
Stjörnubjart fjölskyldubað í Vesturbæjar-
laug föstudag kl. 19.00-21.00 Stjörnu-
bjart fjölskyldubað f Vesturbæjarlaug. Dansað við
sundlaugarbakkann.
Vetrarieikar á Miklatúni föstudag kl. 17.00-
19.00
Fjölskylduviðburður á vegum félagsmiðstöðvanna í
Miðborg og Hlfðum; 101,105, .is og Kamps. Fimm
léttar og skemmtilegar þrautir verða þreyttar og
meðal leikja eru snjóboltakast, salibuna niður hól,
frisbíkeppni og fleira. Starfsmenn félagsmiðstöðv-
anna verða á staðnum til að halda utan um leikina og
valdir verða„meistarar Vetrarólympíuleikanna 2008".
Norway.today í Kúlunni föstudag
kl. 20.00
Ókeypis aðgangur fyrir áhorfendur á aldrinum 14-24
ára. Skemmtilega þverstæðukennt verk um ástina og
hinar stóru spurningarnar. - Svið unga fólksins á
Lindargötu 7.
Listaverkin lifna í gallerí art-lceland föstudag
kl. 19.00 -21.00 Myndlistarmenn verða að
störfum í gallerf art-lceland og gestir geta fylgst með
listverkunum fæðast. Art-lceland.com, Skólavörðustfg
1a.
Mynstur - Eyjólfur P. Kolbeins sýnir í
Ingólfsnausti
Eyjólfur P. Kolbeins hefur unnið að myndlist
sfðastliðin 20 ár og stundar nú nám á vegum
Fjölmenntar við Myndlistaskólann í Reykjavík.
Eyjólfur kallar myndir sínar litmyndir og vinnur út frá
innblæstri hverju sinni. F.n á hátíðinni hafa fatlaðir og
ófatlaðir unnið saman að ýmsum listtengdum
verkefnum með frábærri útkomu sem hefur leitt til
aukins skilnings manna á milli með ávinningi fyrir
samfélagið allt. Ingólfsnaust, Aðalstræti 2.
Vísindasmiðja í Ráðhúsinu, kl. 11:00 -14:00
I Ráðhúsi Reykjavíkur verður sett upp sérstök
vísindasmiðja fyrir börn á öllum aldri þar sem unnið er
með Ijós og fjölbreytilegan efnivið til byggingar
Að vísindasmiðjunni stendur Þjónustumiðstöð
Miðborgar og Hlíða í samstarfi við leikskólabraut
Háskólans á Akureyri.
Sögu vil ég segja stutta, kl. 12K)0 -15:00
Reykjavíkursögur - Frístundir f borginni. Gestir og
gangandi rifja upp eftirminnilega listviðburði f
Reykjavík. Upptökur á vegum Miðstöðvar munnlegrar
sögu. Listasafn Islands við Fríkirkjuveg
Hönnuður dagsins í Kraum, kl. 12:00 -17:00
Fjóla María Ágústsdóttir töskuhönnuður verður f
staðnum og spjallarvið gesti. Sigurður Flosason leikur
fyrirgesti. Kraum, Aðalstræti 10.
Opið hús í Þjóðleikhúsinu, kl. 13:00 -
16:00
Kynnist Þjóðleikhúsinu yst sem innst. Uppákomur af
öllu tagi s.s. Ijóðalestur, tónlist og kynningar af ýmsu
tagi, m.a. á sögu hússins sem nú hefur endurheimt
sinn forna glæsileika eftir viðamiklar utanhússviðgerð-
ir. Heitt kakó á könnunni.
Sterkasti maður íslands, kl 13:00 -15:00
l/etrarhjólreiðar, tómstundir og sterkasti maður
(slands í Perlunni kl. 13:00 -15:00
Kynnin Boris, sterkasti maður (slands
Skammdegissöngur á Vetrarhátíð í Snorra-
búð,kl. 13:30 -17:30
Opið hús samfelld dagskrá, samsöngur og röð
einsöngstónleika. Söngvarar koma allir úr röðum
burtfararprófsnema; Guðný Birna Ármannsdóttir
mezzó-sópran, Linda Maria Nielsen sópran og Hreiðar
Ingi Þorsteinsson baritón.Veitingará boðstólum.
Esjuljósaganga laugardag kl. 17:30
Lagt verður af stað á Esjuna við sólsetur og gengið
inn í myrkrið. Þátttakendur ganga með Ijós sem lýsir
veginn og mynda Ijóskeðju upp Esjuna. Þegar myrkur
skellurá slökkva þátttakendurá Ijósunum í kyrrðar-
stund og kveikja samtímis mínútu síðar. Nánari
upplýsingar um gönguna má finna á www.toppfarar.
is, Þátttakendur skrái sig á bara@toppfarar.is
Stompnámskeið í Laugarneskirkju, kl. 14:00 -
18:00
Námskeiðið er fyrir foreldra og börn í safnaðarheimili
Laugarneskirkju. Stomp er slagverksleikur þar sem
unnið er með alls konar hluti sem finna má í umhverfi
okkar. I stompi vinna einstaklingarnir saman og
mynda eina slagverkssveit sem skapar hljóð- og
hrynheim. Eitt barn og einn fullorðinn taki þátt saman.
Tángómaraþon í Iðnó, kl. 12:00 - 06:00
Tangó fyrir alla. Maraþonið hefst á hádegi á
laugardag og verður dansað fram á sunnudagsmorg-
un í Iðnó. Keppendur skrá sig í Tangómaraþonið og er
keppt um lengsta úthaldið. En að auki við keppnina er
boðið uppá fjölbreytta dagskrá sem hentar öllum;
kennsla fýrir byrjendur sem og lengra komna.