Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 38
Barnastjörnur eru yndislegar og umdeildar. Vilja sumir meina að rangt sé að ýta barni í jafn óheilbrigt
umhverfi og skemmtibransinn er. En hver kann ekki að meta syngjandi og dansandi glókolla. DV tók sam-
an helstu barnastjörnur íslendinga, sem eru jafn misjafnar og þær eru margar.
Björk vandist snemma sviðinu. Hér er hún
ásamt félögum úr Sykurmolunurh.
Einar Örn Einarsson lék Manna í
þáttunum Nonni og Manni og varð
eins og Garðar heimsfrægur á (slandi.
Einar hvarf af sjónarsviðinu eins og
Garðar en lítið hefur bólað á endur-
komunni líkt og hjá vini hans. Hann er
þó væntanlegur í myndinni Stóra
planið eftir Ólaf Jóhannesson þar sem
hann leikur yfirþjón nokkurn.
Björk Guðmundsdóttir er dæmi um
barnastjörnu sem þoldi álagið og
hefur hún verið stjarna nánast allt
sitt líf. Reyndar svo mikil stjarna að
margir eru eflaust búnir að gleyma
að hún var barnastjarna. Ferill
Bjarkar hófst þegar hún var aðeins
ellefu ára, eða um það leyti er hún
byrjaði í píanónámi. Píanókennar-
inn hennar sendi upptökur af Björk
syngja lag Tinu Charles I Love
to Love á RÚV sem spilaði
lagið. Útgáfustjóri útgáfufé- tfl
lagsins Fálkans hafði
samband við Björk og bauð
henni svo plötusamning i
kjölfarið. Stuttu síðar, eða árið
1977, kom út platan Björk og Lfc
síðan þá hefur Björk gefið út
sex sólóplötur og verið
viðriðin ótalmargar aðrar
tónlistarútgáfur.
örk hefur verið á n^imstúr í rúmt ár til að
l fylgja eftir nýjustuFplötunni sinni Volta.
Fyrsta plata Bjarkar hét
emfaldlega Björk en þar flutti
söngkonan tíu vinsæl barnalög
SANNA
Garðar sló rækilega í gegn sem
Nonni í sjónvarpsþáttunum Nonni
og Manni sem voru sýndir í
Sjónvarpinu 1988. Þættirnir náðu
gríðarlegum vinsældum og var
þjóðin límd fyrir framan skjáinn á
meðan hún fylgdist var með
örlögum bræðranna. Garðar var 14
ára þegar þættirnir voru gerðir en
litið fór fyrir honum þangað til fyrir
nokkrum árum þegarGarðari skaut
aftur upp á stjörnuhimininn og þá
sem tenórsöngvari.
Garðar hefur náð miklum vinsæld-
um hér heima sem og erlendis.
Helst í Bretlandi þar sem hann
hefur átt lög á toppi vinsældalista
og verið lýst sem Brad Pitt með
rödd Pavarottis. Það er Ijóst að
Garðar er barnastjarna sem á
framtíðina svo sannarlega fyrir sér.
Þorvaldur Davíð sló fyrst í gegn í
útvarpsleikritum á RÚV þá um 10 ára.
Stuttu seinna talaði hann fyrir Simba í
myndinni Loin King sem náði
gríðarlegum vinsældum. Þorvaldur
lék svo í leikritum eins og Kardi-
mommubænum og Bugsy Malone en
í millitíðinni rappaði Þorvaldur í hinu
ódauðlega lagi Skólarapp. Á unglings-
árunum vakti Þorvaldur svo mikla
athygli í leikritum Verslunarskólans og
sló svo í gegn í Footloose og Killer Joe.
Nú er hann staddur úti í New York þar
sem hann stundar nám við hinn virta
leiklistarskóla Juilliard.
lasitii
Ruth Reginalds er hin eina sanna íslenska
barnastjarna. Ruth er fædd árið 1965 og var
vinsæl á árunum 1974-1980, eða frá því hún
var níu til fimmtán ára. Hún var aðeins sjö ára
þegar hún hóf að syngja inn á plötur og
var hvers manns hugljúfi. Tónlist hennar
seldist í tugþúsundum eintaka og
íslenska þjóðin fékk einfaldlega ekki nóg
af henni. En gamanið kárnaði á endan-
um og Ruth þurfti að berjast við bæði
eiturlyfjadjöfulinn, ofbeldi og átröskun.
Eins og þekkt er hjá barnastjörnum í
Bandaríkjunum. Ævisaga Ruthar kom út
árið 2003 og var þar að finna uppgjör
hennar við árin í sviðsljósinu, uppvöxt-
inn í New York og margt fleira.
Jóhanna Guðrún hefur sungið síðan
hún var átta ára. Hún gaf út sína fyrstu
plötu árið 2000 aðeins tíu ára og hét
hún einfaldlega Jóhanna Guðrún. I
kjölfarið fylgdi svo platan Ég sjálf árið
2001 og loks Jól með Jóhönnu 2002.
Eftir það lét Jóhanna lítið fyrir sér fara
og var gert í því að halda henni úr
fjölmiðlum þangað til rétti tíminn
gæfist. Nýlega skaut hún svo aftur upp
kollinum og er að verðal 8 ára. Jóhanna
gengur núna undir nafninu Yohanna og
ætlar sér stóra hluti hér heima sem og
erlendis en hennarfjórða plata er
væntanleg á árinu. Nú er bara spurning
hvort hún nái fyrri frægð.
Ruth Reginalds
Sönginnásína fyrstu
plötu aðeins sjö ára.