Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Helgarblað DV
Tónlistarakademía DV segir
Hlustaðu á þessa!
Greatest Hits - Morrissey
Made In the Dark - Hot Chip
Live at Couleur Cafe - Konono No.1
Growing Pains - Mary J. Blige
The Dream -The Orb
ímálvið
Wliite Stripes
Kanadíska útvarpskonan Dominique
Payette kærði á dögunum White
Stripes fyrir aö nota t(u sekúndna
samsettan bút úr útvarpsþætti hennar
án leyfis í laginu Jumble Jumble. Það
sem vekur einna helst athygli er að
lagið kom útfyrirátta árum á plötunni
De Stijl. Samkvæmt heimildum
tónlistarsíðunnar Pitchforkmedia gæti
jafnvel farið svo að Payette fái tæpar
fimm milljónir króna (sinn hlut auk
þess sem hún krefst þess að platan
verði fjarlægð úr verslunum.
Stofnar
fyrtrtækl
Beastie Boy's-meðlimurinn Adam Yach
hefur nú stofnað fyrirtæki í New York
sem sérhæflr sig (dreifingu á
kvikmyndum. Fyrirtækið heitir
Oscilloscope Pictures og er stofnað í
kjölfar þess hversu mikið kvikmynda-
og tónlistarframleiðsla hans hefur
aukist (New York að undanförnu. Þeir
Pals David Finkel, fyrrverandi forstjóri
ThinkFilm, og Dan Berger eiga einnig
sinn hlut í fyrirtækinu.„Við ætlum að
setja alla okkar ást og alúð (kvikmynd-
irnar og við viljum ekki að góöar
hugmyndirfari beinttil peningagráð-
ugra stórlaxa," segir Fenkel en þeir
vonast til þess að reka fyrirtækiö sem
svokallaöindie-kvikmyndafyrirtæki.
Mtðasalahafin
(tilefni af t(u ára afmæli Hr. örlygs
hefur hljómsveitin FM Belfast tekið að
sér að skipuleggja nokkra skemmtilega
klúbbaviðburði yfir árið. Fyrsti
viðburðurinn verður haldinn bæði (
Reykjavík og á Akureyri 15. og 16.
febrúar. Þar mætirtil leiks sjálfur DMX
Krewfrá Rephlex, útgáfufyrirtæki
AphexTwin. DMX Krew kom fyrst fram
á Klakanum fyrir tlu árum á svonefnd-
um Hjartsláttarkvöldum sem Hr.
örlygur stóð fyrir. Miöasala er hafin á
midl.is og kostar þúsund krónur I
forsölu. Ásamt DMX Krew spila
Terrordisco, Kiki Ow og Dj.Leibbi.
Nói Steinn Einarsson, trommuleikari hljómsveitarinnar Leaves, vinnur nú aö sinni
fyrstu sólóplötu. Hann skellti sér í stúdíó á Ítalíu í janúar ásamt tónlistarmanninum
Eberg þar sem þeir unnu að tónlist, drukku rauðvín og borðuðu parmaskinku.
Nói Steinn Einarsson Segir
tónlistina á fyrstu sólóplötu sinni
vera blöndu af því sem hann
hefur fílað (gegnum tíðina.
ALLT FRA
BÍTLUNUM
TILAPHEXTWIN
„Ég og Eberg skelltum okkur saman til Ítalíu
og vorum þar í Pescara sem er við Adríahafið og
losnuðum við allt vonda veðrið á íslandi á með-
an. Við vorum bara í stúdíói, á ströndinni og
höfðum það næs," segir tónlistarmaðurinn Nói
Steinn Einarsson. Nói er einna þekktastur sem
trommuleikari hljómsveitarinnar leaves en
vinnur nú að sólóplötu samhliða trommuleikn-
um með sveitinni.
Leaves er þó hvergi komið í pásu þótt Nói
sé að vinna í sinni plötu. „Nei, nei, við erum að
kiára okkar þriðju plötu núna í febrúar. Það er
ekkert alveg ákveðið hvenær hún kemur út en
ætli það verði ekki með haustinu," segir Nói en
plötunni hefur enn ekki verið gefið nafn.
Rauðvínsdrykkja og parmaskinkuát
Þegar Nói er spurður hvernig standi á því
að tónlistarmennirnir hafi ákveðið að vinna að
plötum sínum við strendur Italíu er svarið ein-
falt: „Strákarnir sem reka þetta stúdíó á ítalíu
voru með Eberg í skóla á Englandi og við ákváð-
um að það væri bara fínt að fara frá íslandi í
janúar. Út til ítalíu að drekka rauðvín og borða
parmaskinku."
Tónlistarmaðurinn Eberg sendi síðast frá sér
plötuna Voff Voff árið 2006 en platan fékk víð-
ast hvar hörkugóðar viðtökur. Hann vinnur nú
að sinni þriðju breiðskífu og nýttu þeir félagar
tækifærið til að aðstoða hvor annan í stúdíóinu
í Pescara. „Við vorum í viku í stúdíóinu. Eberg
er að vinna að sinni þriðju plötu og ég að minni
fyrstu sólóplötu. Við vorum aðeins að spila sam-
an en samt í rauninni hvor fyrir sína plötuna svo
það má eiginlega segja að við höfum bara verið
að hjálpast að með plötur hvor annars. Ég veit
að platan hans Eberg verður mjög athyglisverð
og skemmtileg."
Vinnur plötuna mest einn
Aðspurður hvers kyns tónlistar megi vænta
á plötunni svarar Nói: „Þetta er bara einhvers
konar poppplata. Ég held að þetta sé bara blanda
af því sem ég hef verið að hlusta á og ffia í gegnum
tíðina. Blanda af elektrónískri músík og rokki. Allt
frá Bítlunum upp í Aphex Twin í rauninni."
Nói hefur mestmegnis unnið einn að gerð
plötunnar en þó fengið örlitla hjálp frá góðum
vinum. „Ég hef verið heppinn með það að Eberg
hefur aðeins aðstoðað mig við hana og Kjartan
í Ampop aðeins spilað inn á plötuna fyrir mig.
Hún er að hluta til instrúmental en svo hef ég
líka verið að prufa að syngja bara sjálfur."
Þægilegra að semja á veturna
Að öllum líkindum mun plata Nóa koma út
næsta vetur og hyggst hann sjálfur gefa hana út.
„Ég hugsa að ég klári plötuna núna í mars, apríl,
en mér finnst þetta mikiu meiri vetrarplata en
sumarplata svo ég hugsa að ég gefi hana ekkert
út fyrr en næsta haust. Mér finnst hún allavega
vetrarleg, hún er svona í rólegri kantinum og
kannski líka af því að flest lögin eru samin um
vetur," segir Nói og bætir við:
„Það er einhvern veginn þægilegra að sitja
bara inni og semja og spila á gítar yfir vetrartím-
ann þegar það er snjór úti og tíu stiga frost held-
ur en á sumrin."
krista@dv.is
Sérverslun með
kvensilfur
/
/
v
. k
*• » i c'
„V. »V/
- •jj.
‘ '•'V l/r' ’ M;/ «/'*,; •
utfóiA rfijf.,- vT-f.y ,.nv...
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastfg 10 - Slmi: 551-3160.
Dj F.E.X á Organ í kvöld
ÞESSI FRANSKITÓNLISTARMAÐUR
ÞEYTIR SKlFUM Á ORGAN i KVÖLD.
Franski danstónlistarmaðurinn Dj F.E.X. spilar house-tónlist með
teknóívafi á Organ í kvöld:
Eftir að hafa setið frekar svekktur og
svikinn á CDG-flugvellinum í París
14. desember síðastliðinn eftir að
hafa fengið ffegnir af því að sökum
óveðurs yrði ekki flogið til íslands,
er franski danstónlistarmaðurinn
Dj F.E.X. loksins mættur til
landsins. DJ F.E.X. spflar á Organ í
kvöld, föstudagskvöld, en það eru
plötusnúðarnir hjá Barcode sem
standa fyrir komu kappans.
Dj F.E.X., öðru nafni Farid Boudinar,
hóf ferilinn árið 1994 í litlum
teknóklúbbi í Tours í Frakklandi.
Seinna sama ár opnaði hann
sína eigin plötuverslun og byrjaði
með vikulegan útvarpsþátt á lítílli
franskri útvarpsstöð þar sem hann
spUaði nýútkomið efni í house-
og teknógeiranum. Fjórum árum
síðar var hann orðinn fastasnúður í
nokkrum af stærstu næturklúbbum
Parísar.
Fyrsta lagið sem Dj F.E.X. gaf út,
Indie Walk, gerði hann ásamt félaga
sínum Dj Phantom og var lagið valið
þemalag frönsku teknógöngunnar
árið 2002 og naut gríðarlegra
vinsælda um heim aUan. Tónlist-
arstfll hans einkennist af house-tón-
list, mitt á miUi minimal og teknó
þar sem hughrif og dulúð svífa yfir
vötnum. PlötusnúðastflDj F.E.Xsvip-
ar mUdð tíl lagasmíða hans svo eng-
inn danstónlistaráhugamaður ætti
að verða svUdnn í kvöld á Organ.
Miðasala fer ffam við innganginn og
er miðaverð eitt þúsund krónur fyrir
klukkan eitt en eitt þúsund og fimm
hundruð krónur eftir það. Dj F.E.X.
byrjar að spUa eigi síður en hálf tólf.
krista@dv.is