Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Side 37
DV Helgarblað
FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008 37
• •
BJARNI SKÚLI KETILSSON
„Veðravítið á Bolungarvík varð
til þess að ég ákvað að snúa
mér alfarið að myndlistinni,"
segir myndlista- og skólalista-
maðurinn Bjarni Skúli
Ketilsson. Hann býr og starfar i
Hollandi, en er staddur hér á
landi til þess að opna sýningu
sína„Enn mun reimt á Kili" í
Listasafni Skagafjarðar.
hafa margir af fremstu listmálurum
heims einmitt komið frá Hollandi,
hefurðu skoðað það eitthvað
sérstaklega?
„Það er nú gaman að segja frá
því að á Akureyri valdi ég í námsvali
að stúdera einn frægasta listmálara
heims, hollenska meistarann Van
Gogh. Um þetta leyti kynntist ég
eiginkonu minni Arianne, sem þá var
að vinna við sjúkraþjálfún á Akureyri.
Um páskana það árið fórum við til
foreldra hennar í Enschede og þar
sótti égum í listaakademíunni AKI. Ég
komst inn, eftir viðtal og annað slíkt og
því lá leiðin til Hollands, nokkuð sem
Arianne var eiginlega ekkert með á
stefnuskránni. Það var því eiginlega ég
sem dró hana aftur til heimalandsins,"
segir Bjami Skúli hlæjandi.
Erró kenndi mér vinnuaga
„Það var alltaf ædunin að snúa
aftur til fslands, en raunin hefur
reyndar orðið önnur. Ég fékk vinnu
við leikmyndahönnum hjá þekktum
grínleikara sem heitir Herman Finkers,
eins konar Ladda Hollendinga, síðan
setti ég upp eigin málverkasýningu í
Þýskalandi, sem gekkmjögvel og aðra
í Hollandi. Ég gerði mér líka fljótlega
grein fýrir því að markaðurinn fyrir
mig var mun betri í Hollandi, en hér
heima, mörgum sinnum stærri og
fleiri tækifæri. En þetta er vinna, það
þýðir ekkert að vera að bíða efdr því að
andinn komi yfir mann, maður verður
bara að vinna frá morgni til kvölds.
Það kenndi Erró mér, þegar hann
hélt fyrirlestur um sín vinnubrögð á
Akureyri á sínum tíma. Vinnuaginn er
mikilvægur og þetta hefur skilað sér
með aganum."
Á yfir 1200 útvarps-
leikrit og sögur
En hvaðan fœrðu hugmyndir, þú
þarft óneitanlega að fá þœr eða hvað?
„]ú, égslepp ekkertundanþví," segir
Bjami Skúli og brosir. „ Alveg frá því að
ég keypti mér mitt fyrsta kassettutæki
þegar ég var tólf ára, 1978, þá hef ég
safnað leikritum úr útvarpi og sögum.
Ég vann í bæjarvinnunni, sópaði
götur og annað á Akranesi og keypti
mér tækið fýrir þau laun. Ég á sem
sagt mikið safn af útvarpsleikritum
og sögum og þetta nota ég meðan ég
er að vinna, þá fer ímyndunaraflið af
stað. Ég á um 1.200 útvarpsleikrit og
sögur á kassettum og þetta hefur verið
mér mikil uppspretta hugmynda. Það
má eiginlega segja að ég fái mínar
hugmyndir úr fjölmiðlum, daglegu lífi
ogþess háttar."
Sterkar taugar til sjávarplássa
Á heimasíðunni þinni er hcegt að
sjá verkin þín og þar sér maður til
dœmis háan stromp og báta? Er þetta
ekki Sementsverksmiðjan og útgerðin
áAkranesi?
„Jú, jú, ég hef sterkar taugar til
sjávarplássanna sem eiga undir högg
að sækja hér á landi og ég vil meina
að ég hafi orðið að manni á þeim tíma
sem ég dvaldi í Bolungarvflc. Þar var
ég í öllu, tónlist, leiklist og myndlist.
Þetta var mjög góður skóli. Og þótt ég
sé Skagamaður finnst mér eiginlega
hvergi fallegra en á Bolungarvík. Hefði
ég verið lengur þar en raun ber vitni,
árin 1991-1993, hefði ég sennilega
ekkert farið þaðan. Það eru hættuleg
Qöll þama fyrir vestan, þau toga
einhvem veginn í mann."
Opnar sýningu í Listasafni
Skagafjarðar
En þá að núinu. Sýningin sem
Bjarni Skúli opnar um næstu helgi
í Listasafni Skagafjarðar ber eins og
áður sagði yfirskriftína Enn mun
reimt á Kili og vísar til þjóðsögunnar
af Reynistaðabræðrum, sem árið
1780 urðu úti við flutninga á fjölda
kinda og hesta norður yfir Kjöl, nánar
tílteldð á Beinhóli. Lflc þeirra fundust
ekki fyrr en um sextíu árum síðar í
klettaspmngu. Er því margt á huldu
í sambandi við þetta dularfulla mál.
Fyrir tveimur árum hélt Bjami Skúli
sýningu á verkum tengdum þessari
sögu í Hafnarborg í Hafnarfirði,
en nú hafa bæst við fleiri verk og
verkefnið undið upp á sig. Kveikjan
að sýningunni var útvarpssaga sem
Bjami Skúli heyrði Gísla Halldórsson
leikara lesa í Rfldsútvarpinu árið
2001.
Dulúðleg stemning
Ásamt tuttugu og sex otíumál-
verkum á sýningunni verður einnig
að finna svokallaða „innsetningu", en
Jón Þórisson leikmyndahönnuður
og Bjami Skúli hafa í sameiningu
hannað sviðsmynd fyrir hana. f
tengslum við hana verður málverk,
sem er um tuttugu og sjö fermetrar að
„Grána" eftir
Bjarna Skúla
Hryssan Grána, sem
Gránunes er skírt eftir,
lifði af hörmungar
þær sem Reynistaða-
bræður lentu I en
síðar varð að lóga
henni vegna áverka
og slæms ástands.
IfifiB
stærð. Þá verða á sýningunni einnig
áhrifahljóð, sem Helgi Kristinsson
hefur hannað. Þá verður hljóðdiskur
leikinn á sýningunni þar sem Jóhann
Sigurðarson leikari les samantekt Jóns
Gunnars um sögu Reynistaðabræðra.
Sigurvaldi Helgason og Baldur
Ketilsson sáu um hljóð og tónlist.
„Sýningin verður öll lýst á sérstakan
hátt og ljóðin verða tíl dæmis sett í
sandblásið gler, svo verða einnig spiluð
leikhljóð og frumflutt verður tónverk
þar sem reynt er að gefa hlustandanum
tilfinningu fyrir því hvemig er að
verða útí. Það er eftír Baldur bróður
minn sem naut aðstoðar kirkjukórs
Akraness og margra annarra þekktra
tónlistarmanna. Magnaður textí Jóns
Gunnars nýtur sín vel í þessu," segir
Bj ami Skúli og geislar af eftirvæntíngu.
„Ég vil reyna að skapa dulúðlega
stemningu og nota til þess sem flest
skynfæri mannslíkamans; heym,sjón
og svo framvegis. Unnar Ingvason
safnstjóri og sá fjöldi einstaklinga sem
hafa komið að vinnslu sýningarinnar
fá hér með mínar þakkir," segir Bjami
Skúli. Sýningin stendur frá 27. apríl til
18.maí, en sérstök skólasýning verður
frá 18.-25. maí.
Útvalinn skólalistamaður
Þegar Bjarni Skúli fer til Hollands
að nýju, tekur við skipulagning á
næstu málverkasýningu og annarri
vinnu, en segja má að hann sé
svokallaður „skólalistamaður". Árið
2005 fékk hann nefnilega inngöngu
í sérstakt eins árs nám, sem er
fjármagnað af hollenska rfldnu og
miðar að því að sérmennta listamenn
til þess að hanna listaverkefhi fyrir
skóla landsins og gera umhverfi
þeirra enn meira aðlaðandi. Aðeins
em teknir inn tólf í einu og því mikill
heiður að verða fyrir valinu. En það
er einnig nokkuð algengt að menn
hætti í náminu, því öllum er ekld gefið
að vinna með bömum. Bjarna Skúla
finnst hins vegar fátt skemmtilegra og
kláraði námið með miklum brag. Að
náminu loknu tóku við ýmis verkefni
í fjölda skóla víðs vegar í Hollandi, þar
sem Bjarni Skúli þróar og útfærir hinn
listræna hluta skólaumhverfisins.
Bjami hefur fengið og fær mikið af
verkefnum í gegnum heimasíðu sína,
baski.nl og þar geta menn komið á
framfæri hugmyndum við hann, sem
hann síðan ffamkvæmir. Þá er einnig
í burðarliðnum verkefrii í samvinnu
við þekkta arldtekta, þar sem tengja
á saman þijár skólabyggingar og
hið listræna umhverfi verður í raun
tengipunkturinn. Um það sér Bjami
Skúli sem segir að sér tíði ákaflega
vel við störf sín í Hollandi. En hvemig
samfélagerHolland?
Holland er mjög blandað
Finnur þú til dcemis jyrir mikilli
spennu milli kynþátta?
„Ég verð ekki mikið var við þessa
spennu á milli kynþátta, ég held að
þetta sé mest í fjölmiðlum. Samt er
þetta dátítið viðkvæmt og börnin tala
stundum um þetta í skólanum. Ég
vil meina að samskipti Hollendinga
og annarra kynþátta séu mjög góð,
kannski er best að taka dæmi af
kaupmönnum hinna mismunandi
kynþátta, vilji maður fá besta
grænmetið fer maður til Týrkjanna,
bestu ótívurnar fær maður hjá
Grikkjunum og bestu pitsumar hjá
ítölunum. Mér finnst þessi samskipti
ganga mjög vel, ég verð allavegana
ekki var við annað. Holland er mjög
blandað, það búa um sextán milljónir
í landinu og þar býr fjöldi útlendinga,
þetta er mjög opið land. Annað dæmi
sem ég get tekið er af einu hverfanna
sem við bjuggum í á sínum tíma. Þar
bjó mikið af mústímum og þar vom
aðeins vandræði með glæpi og annað
slfld. En svo var byggð moska og þá
dempaðist stemningin og glæpum
fækkaði niður í nánast ekki neitt.
Hverfið varð til fyrirmyndar. Ég held
að menn verði að reyna að mætast og
komast að samkomulagi, samfélagið
eigum við jú saman og þess vegna
verða menn að sýna hver öðrum
virðingu," segir Bjarni Skúli Ketilsson
myndlistarmaður að lokum.