Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008
Helgarblað DV
ist. „Það var héma á Laugardals-
velli og ég var á undan í tækiingu.
Svo kom varnarmaður Nantes mjög
seint og tæklar mig. Ég stóð akkúr-
at í fótinn þegar hann kom á mig og
ég var heppinn að brotna ekki. Fór
upp á spítala og var settur í hækjur
en Ian Ross þjálfari vildi að ég spilaði
seinni leikinn en eftir 10 mínútur var
ég farinn út af. Það var alveg ferlega
svekkjandi því tækhngin var mjög
gróf. í dag hefði viðkomandi farið í
langt bann en hann fékk ekki einu
sinni tiltal eða neitt." Heimir segir að
hann haf! verið tiltölulega heppinn
með meiðsli á sínum ferli. Þó hafi
hann meiðst á ögurstund. „Ég held
að það hafi verið 1981. Tímabilið var
búið og ísland átti leik við Tékka. Ég
var valinn í landsliðið og ég var bú-
inn að vera hálfhaltrandi og ég ákvað
því að láta skoða á mér fótinn til að fá
úr því skorið hvort ég gæti tekið þátt í
þessum landsleik. Þá kom í ljós að ég
var brotinn. Var búinn að vera brot-
inn í nokkra daga þannig að því mið-
ur gat ég ekki spilað þennan lands-
leik og á ekki nema þrjá landsleiki."
Þar skoraði Heimir eitt mark, gegn
Færeyjum fyrsta ágúst 1982. „Auðvit-
að vildi maður fá fleiri tækifæri með
landshðinu á þessum tíma, maður
hafði mikinn metnað en málið var
bara að við áttum svo frábæra leik-
menn á þessum tíma. Pétur Péturs,
Arnór Guðjohnsen, Lárus, Atíi Eð-
valdsson og Gummi Þorbjörns voru
frábærir þarna. Þannig að maður
varð að sætta sig við það að íslend-
ingar áttu frábæra leikmenn á þess-
um tíma, sérstaklega framheija."
Fékk bjórkassa fyrir mörkin 16
En eftir tímabilið 1985, þá að-
eins 24 ára gamall þurfti Heimir á
nýja áskorun. Úr varð að hann fór
tíl ÍR sem var þá í þriðju deild og tók
hann við þjálfun liðsins. „Svo hættí
ég þama í Val, var í rauninni búinn
að prófa þetta allt. Atvinnumennsk-
v una, var búinn að komast í landsUð-
ið og íslandsmeistari nokkrum sinn-
um, þannig að ég ákvað að fara að
þjálfa ÍR. Auðviðað er hægt að vera
vitur eftir á því ég var ekkert slappur í
skrokknum þannig lagað séð en mig
vantaði nýja áskorun.
En við unnum okkur upp í aðra
deild þar sem ég varð markahæst-
ur. Skoraði 16 mörk. Ég var búinn
að veðja við strákana í liðinu að ég
myndi skora 16 mörk og fyrir síðasta
leikinn á móti KS var ég búinn að
skora 13. í hálfleik var KS síðan yfir
2-1 eða 3-1. En ég skoraði þrennu
í síðari hálfleik og við unnum 6-3
þannig ég fékk bjórkassann minn,"
segir Heimir og skeUir upp úr.
Hjá ÍR var Heimir í tvö tímabil
og fór þá aftur í Val þar sem Hörður
Hilmarsson var þjálfari. „Það lið var
bókstaflega með landsliðsmenn eða
atvinnumenn í hverri stöðu og það
er í raun synd að það hafi ekki komið
meira út úr því Uði."
Dvölin var þó stutt á Hlíðarenda
og Heimir hélt áfram að þjálfa. „Ég
þjálfaði Reyni Sandgerði í handbolta
og Njarðvík líka. Það var ógeðslega
gaman, mér fannst virkilega gaman
að þjálfa. Kynntíst mörgum strákum
og maður var bara einhvem veginn
íþróttaálfur."
Einn af sex
Handboltaferill Heimis var styttri
en fótboltaferillinn. Samt náði hann
þeim merka áfanga að verða íslands-
meistari 1982 bæði í handbolta og
fótbolta með Víkingi. „Það voru
kannski hin mistökin sem ég gerði á
ferlinum. Ég gat aldrei hætt í hand-
boltanum fyrr en alltof seint. Ég var
í handbolta þangað til ég var orðinn
23 ára. Það þýddi að ég missti aUtaf
af undirbúningstímabUinu í fótbolt-
anum og öfugt. Þegar ég var síðan í
fótboltanum missti ég af undirbún-
ingstímabUinu í handboltanum. En
ég var viðloðandi meistaraflokk-
inn með Bogdan og á einn lands-
leik í handbolta. Er þar í flokki með
Hemma Gunn og Ásgeiri Elíassyni,"
segir Heimir og glottir. Sex íslend-
' ingar eiga bæði landslefld í hand-
bolta og fótbolta og er Heimir einn af
þeim. „En það er ekkert ægilegt affek
því þegar ég var í U-21 árs landslið-
inu þá fengum við skráðan A-lands-
leik þegar við spiluðum við Noreg.
Það var pínu svindl en engu að síður
- er það skráður A-landsleikur."
Lýsti leik með
sjálfum
sér og fékk eiginhandaráritun
hjá Lakers
Og íþróttaáhuginn var svo sann-
arlega mikfll. 1986 var sett á lagg-
irnar sjónvarpsstöð sem bar og ber
nafnið Stöð 2. Heimir var fenginn
til að sjá um íþróttirnar þar á bæ og
spilaði það inn í að hætta að spila í
efstu deild. Hann afrekaði samt að
lýsa leik með sjálfum sér þegar hann
var leikmaður Vals. „Það var svolítið
erfitt að réttlæta það að vera íþrótta-
fréttamaður Stöðvar 2 og spila í efstu
deild. Einu sinni kom það samt fyr-
ir að þá spiluðum við á mótí Víkingi,
mínum gömlu félögum, í hörkuleik.
Við fengum þar alveg sæg af dauða-
færum og ég áttí þau flest. En skor-
aði þó eina markið. Svo var Adolf
Ingi sem var með mér veikur, hann
átti að klippa og klára pakkann en ég
þurftí eftir leikinn að gera það sjálf-
ur. Lýsa leik með sjálfum mér. Ég
man að ég sat og hugsaði með sjálf-
um mér hvort ég ættí að þykjast ekki
þekkja mig eða að taka þetta á léttu
nótunum. Sem varð úr og það hlýtur
að vera einstakt."
Heimir fór að sýna íslendingum
nýjar íþróttir í þætti sínum á Stöð
2. íþróttir sem fáir vissu að væru til
eins og NFL og fleiri. NBA varð einn-
ig fyrirferðarmikið á þessum tíma og
fóru Heimir og Einar Bollason körfu-
boltaséní mikið til Amerflai að hitta
goðin. Á skrifstofu íslands í bítið er
einmitt stór mynd af okkar manni
með körfuboltagoðinu Michael lor-
dan. „Þetta var svohtíð nýtt á þess-
um tíma. Fara út, gera þætti og fá
viðtöl við þessa kappa. Stjórnunin
á NBA-deildinni er til mikillar fyrir-
myndar og þar er öllum fjölmiðlum
gert jafnhátt undir höfði. Ef menn
eru með sýningarréttinn á NBA þá
standa þér ákveðnar leiðir opnar að
leikmönnum. Ég hef hitt margt frægt
fólk um ævina en aldrei haft neina
þörf að fá eiginhandaráritun. Fyrr
en ég var í klefanum hjá Los Angel-
es Lakers. Allt í einu áttaði ég mig á
því að hverjir væru þarna inni. Þarna
voru Magic Johnson, Kareem Ab-
dul Jabbar, Pat Riley, Byron Scott og
lames Worthy og náttúrlega fleiri. Ég
tók leikskrá, sneri henni við og bað
alla um að skrifa. Ég á allt Lakers-
liðið innrammað heima. Það er eina
skiptið sem ég hef beðið einhverja
um áritun.
lordan var líka ffábær þegar við
hittum hann. Við hittum hann tvisvar
sinnum en ég bað hann ekki um árit-
un. Hann var ofsalega indæll náungi.
Magic hafði það orð á sér að gefa lít-
ið af sér en hann var voðalega indæll
við okkur." Hróður Heimis barst alla
leið til Ameríku því þeir félagar fengu
viðtal við labbar sem þótti mikið mál
í þá daga. Jabbar hafði verið lengi í
sjálfskipuðu íjölmiðlabanni en vildi
endilega tala við Heimi. „Hann gaf
ekki viðtöl á þessum tíma. Búinn að
vera lengi í bartni. En þegar h'ann
heyrði að við værum þarna þá vildi
hann endilega tala við okkur. Hann
hafði nefnflega svo mikinn áhuga á
íslendingasögunum, víkingasögun-
um og því. Hann kom til okkar og
sagði að fyrst við værum frá íslandi
þá vfldi hann endilega tala við okkur.
Það kom okkur mjög á óvart. Hann
var frábær og greinilega klár kall."
Undir stjóm Heimis var farið í
beinar útsendingar frá viðburðum.
Sýnt var beint frá NBA-deildinni,
golfið komst á laggimar sem og am-
eríski fótboltínn. Engin íslensk orð
vom til yfir þessi nýju hugtök og því
settust Heimir og félagar niður og
bjuggu tfl orð sem í dag flestir nota.
„Maður var iþessu frá degi til dags,
vaknaði snemma og fór í vinnuna,
fór á æfingu klukkan sex, fór á völl-
inn klukkan átta og fór og klipptí og
settí þættí í loftið um kvöldið þannig
að maður var kominn heim um hálf-
tólf. Ég man þegar ég hitti Hemma
Gunn einu sinni eftir leik með spólu
í hendinni á leiðinni upp á Stöð 2 og
hann sagði við mig að ég þyrfti að
passa mig á því að ofkeyra mig ekki.
Ég svaraði því tíl að mér þætti þetta
algjört draumastarf og ég skildi ekki
hvað hann ættí við. Ég hafði unun af
því að lifa og hrærast í íþróttum. En
svo gerðist það bara."
Fékk 10 þúsund punda styrk
fyrir hugmynd
Heimir kippti sér úr heimi fjöl-
miðlanna 1995 og flutti tíl Englands
þar sem hann var til 2003. En þó svo
hann hafi fengið nóg af ijölmiðlum
sleit hann sig ekki alfarið frá þeim.
Hann lýstí nokkrum leikjum fyrir Stöð
3 og eitt sinn kom hann fram í morg-
unsjónvarpi BBC í Englandi. Heim-
ir bentí Stöð 3 á að rétturinn á ensku
knattspyrnunni á virkum dögum væri
á lausu hér á landi og því fór stöðin að
senda út enska boltann fyrir tilstilli
Heimis.
„Ég fór og rak fyrirtæki ásamt öðr-
um, konan fór í nám og við bara sett-
umst að í Englandi. Englendingar eru
frábærir sérstaklega þar sem ég bjó í
Jórvflcurskíri."
Eitt sinn þegar Heimir var við elda-
mennsku í Englandi fékk hann góða
hugmynd. Hugmynd sem hann vann
verðlaun fyrir. „Ég var að elda og opn-
aði kryddskápinn og ég vissi ekkert
hvemig ætti að nota öll þessi krydd.
Ég vissi ekkert hvaða krydd færu vel
með fyrr en of seint. Ef þetta væri vont
þá var maturinn ónýtur. Þannig að ég
hugsaði að með allri þessari nútíma-
tækni að búa til einhvers konar filmu
sem væri eins og ostsneið og inni í
henni væru fyrirfram ákveðnar bragð-
tegundir. Svo áttí að leggja þetta ofan
á matinn og filman bráðnaði ofan á
matinn. Kryddið sæti þá bara eftír.
Ég fór eitthvað að skoða þetta og
það var háskóli þama rétt hjá sem sér-
hæfði sig í uppfyndingum á matvæl-
um. Fór með þetta til þeirra og þeir
komust að því að þetta væri hægt. Þeir
gerðu smá prófun og þetta svínvirk-
aði. Ég fékk síðan 10 þúsund punda
styrk til að gera nokkur sýnishom. Svo
fór ég á sýningu í Tomorrow's World
sem BBC heldur einu sinni á ári. Þar
tók ég þátt og þar var ég vahnn til að
koma í viðtal í morgunsjónvarpi BBC,
einn af þremur á sýningunni. Svo var
Channel 4 einnig með þátt þama
og þeir völdu mína uppfinningu þá
bestu á sýningunni.
Svo hitti ég Gumma Þorbjöms,
gamla félaga minn úr Val, sem var í
viðskiptaferð í London. Hann sagði
við mig að hann hefði verið í sturtu,
komið fram og séð Heimi Karlsson
í sjónvarpinu. Spurði mig hvort ég
væri alls staðar. Þá var ég í viðtali við
BBC. En svo braiin maður á aurum og
gat ekki klárað þetta en ég var kom-
inn með einkaleyfi alls staðar nema í
Bandaríkjunum."
Var vart hugað líf
Heimir hélt af landi brott ekki alls
rÍL!"Wi
Lunkinn og leikinn Heimir
á fleygiferð með Víkingi 1982.
fyrir löngu tfl að leika sér í golfi. Lflct
og margir íslendingar hefur hann
tekið ástfóstri við íþróttina og eins og
margur íslendingurinn hefði hann
viljað byrja fyrr. „Eg fiktaði aðeins við
golfið í gamla daga. En svo þegar ég
kom heim frá Englandi þá datt ég al-
gjörlega inn í þetta. Þetta er bara svo
skemmtilegt."
í golfinu bryddaði Heimir upp
á nýjung. Tryggingar golfara höfðu
verið í lamasessi hér á landi í langan
tíma en með drifkrafti Heimis stend-
ur það nú tíl bóta hjá Sjóvá. Golfið er
eina íþróttin sem Heimir stundar nú
vegna vefldnda sem hann lentí í.
„Ég var bara heppinn að drepast
ekki. Það réðst á mig baktería sem
eyðilagði í mér liðina í vinstri fætín-
um. Ég er ekki með neina hði í rist-
inni, þar er bara klumpur. Ég get
ekki hlaupið eða neitt. Golfið er því
fínt. Ég er samt ahtaf að drepast eftír
golfhringi. Sveinbjörn Brandsson og
Stefán Karlsson læknar tóku mynd af
mér og þetta er ótrúleg mynd. Ég á
myndirnar ennþá heima.
Hægri fóturinn er í lagi með öhum
liðamótum og öllu, ökklinn reynd-
ar skaðaðist aðeins en vinstri fótur-
inn hann er bara klumpur. Það eru
engir hðir. Bakterían át burtu aha hði
og beinin uxu saman. Þeir áttu ekki
tíl orð þegar þeir skoðuðu myndim-
ar því þeir sögðu að þegar þeir sjá
eitthvað svona þá er það bara í bók-
um og sjúklingurinn löngu dauður.
Ég var því beðinn af sérfræðingum
útí að koma á læknaráðstefnu til að
segja frá minni reynslu því ég er svo
einangrað tílfelh. Bakterían eyðilagði
alla hði, fór í öxlina, brjóstliðina, lifr-
ina og ég var bara á leiðinni í gröfina.
En þetta vom læknamistök, það vom
fjórir læknar sem sögðu að ég væri
bara með flensu. En ég var að drep-
ast hægt og bítandi.
Svo var mér hent inn á spítala
þegar þvagið var orðið svart á litinn.
Þeir dældu í mig sýklalyfjum upp á
von og óvon. Það stendur meira að
segja í sjúkraskýrslunni að það væri
ekki búist við að ég myndi lifa af
nóttina."
Ætlaði aldrei aftur í fjölmiðla
Eftír langt hlé frá fjölmiðlum
hér á landi kom Heimir heim 2003
og fór að stjóma 4-4-2 ásamt góð-
vini sínum Guðna Bergssyni. „Við
Guðni vomm í sambandi í Englandi
og Guðni hringir í mig 2003 og segir
að hann sé að flytja heim til íslands,
loksins. Spyr hvort ég sé eitthvað á
leiðinni líka. Við vorum eitthvað far-
in að ræða það á heimihnu, því dæt-
ur okkar vom komnar á þann aldur
að það var bara spuming hvort þær
yrðu enskar eða íslenskar. En hann
var svo ákafur að fá mig með í þenn-
an þátt og það varð úr. Guðni vildi
hafa mig með og the rest is history."
Heimir Jónasson, þáverandi
dagskrárstjóri Stöðvar 2, fékk síðan
Heimi tíl að leysa af í morgunsjón-
varpinu sem þá var og hét. Skömmu
síðar hætti síðan einn af umsjón-
armönnunum og aftur var Heimir
kominn í hringiðu fjölmiðlanna þar
sem hann unir sínum hag vel. „Þeg-
ar ég fór út þá var ég ákveðinn í því
að fara aldrei aftur í fjölmiðla. Alcfrei
aftur. En þetta er eins og þetta sé
skrifað fyrir mann." benni@dv.is