Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Síða 80
80 FIMMTUDAGUR 24. APRfL 2008
Tíska DV
Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is
KRÓKÓDÍLATASKA UPPSELD
Hollywood-stjömurnar slefa þessa dagana vegna nýju töskulínunnar frá Gucci.
Um er að ræða línuna Gucci Crocodile Hysteria og var hún framleidd í takmörk-
uðu upplagi. Taskan seldist upp á fyrsta degi og eðli málsins samkvæmt er ekki
von á fleirum.Taskan er úr krókódílaskinni og fóðruð með geitaskinni. Þetta var
þó ekki eina taskann sem vakti athygli en nýja töskulínan er í heild sinni það fer-
skasta sem komið hefurfrá Gucci í þó nokkurn tíma.
Hönnun eftirComme
des Garijons Næsta
* stjörnuhönnuð H&M.
PERSONAN
FYRIRSÆTUBÖRN
Reglulega skjótast nýjar ungstjörnur upp á himin-
inn í fyrirsætubransanum. Mikla athygli vekur að
þessa dagana eru margar eftirsóttustu fyrirsætn-
anna afkvæmi frægra söngvara eða leikara.
DAISYLOWE
Daisy Lowe er ein heitasta fyrirsætan
meðal ungu módelanna í dag. Hún er
jafnt íðilfögur sem og algjör rokkari í senn
en hún er dóttir rokkarans Gavin
Rossdale, eiginmanns Gwen Steffani.
Móðir Daisy er svo Pearl Lowe sem var
einna frægust fyrir framlag sitt innan indí-
tónlistarsenunnar á tíunda áratugnum.
Sarah Leon, umboðsmaður Daisy hjá
Select Model Management-umboðsskrif-
stofunni, segist ekki hafa haft jafnáhuga-
vert módel á sínum snærum síðan Sienna
Miller var upp á sitt besta og að útgeislun
hennar sé gríðarlega mikil.
Comme des Gar?ons er jap-
anskt tískumerki og er Rei Kawa-
kubo aðalhönnuður fyrirtækisins
sem og eini eigandi þess. Hundruð
Comme- verslana er að finna um
heim allan. Fyrirtækið var stofnað
í Japan árið 1973 og hefur hönnun-
in ávallt vakið mikla athygli enda
er Rei talin feta ótroðnar slóðir
þegar kemur að frumleigheitum
flíkanna.
ALEXANDRAOG
THEODORA RICHARDS
SysturnarTheodora og Alexandra
Richards eru tvíburadætur gítarleikara
Rolling Stones, Keith Richards. Sextán
ára tóku þær undir með Elizabeth
Jagger, dóttur Micks Jagger, og sátu
fyrir í auglýsingaherferð fyrir Tommy
Hilfiger. Síðan þá hafa þær veriö iðnar
við fyrirsætustörfin. Saman sýndu þær
nýlega fyrir breska fatahönnuðinn
Eley Kishimoto auk þess sem
Theodora hefur nýlokið við tökur á
nýjum Burberry-auglýsingum.
LEAHWOOD
Enn eitt Rolling Stones-afkvæmið sem
hefur látið að sér kveða innan
fyrirsætuheimsins er Leah Wood, dóttir
Ronnie Wood. Hún hefur meðal annars
setið fyrir hjá Alexander McQueen,
Vivienne Westwood og Burberry.
Sögusagnir herma hins vegar að hún
hafi verið of lágvaxin fyrir módelstörfin
og hafi nú snúið sér að tónlistarsköpun I
staðinn.
SAMBRANSON
Sam Branson virðist vera einn af
þessum gaurum sem eru með allan
pakkann. Ekki nóg með það að hafa
verið enn eitt afkvæmi fræga fólksins
til að sitja fyrir hjá Burberry, heldur
hefur hann stigið á sýningarpallana
fyrir Ozwald Boateng, er afburða-
námsmaður í háskóla og á einn
ríkasta pabba I heiminum. Sam er
nefnilega sonurforstjóra útgáfurisans
Virgin, Richards Branson.
DAKOTA JOHNSON
Dakota Johnson er átján ára dóttir
þeirra Melanie Griffith og Dons
Johnson og stígur brátt sín fýrstu skref
á sýningarpöllunum. Hún hefur
þokkafullt útlit móður sinnar og
fangaði nýlega athygli IMG-módelskrif-
stofunnar. Næsta verkefni Dakota er að
birtast á forsíðu bandarlska Vogue.
Þrátt fyrir alla athyglina virðist Dakota
enn vera með fæturna á jörðinni:„Ég er
mjög spennt yfir þessu öllu saman en
ég verð samt að fara aftur til Kalifornfu
til að klára lokaárið mitt I menntaskól-
anum," segir hin fagra Dakota.
RILEYKEOUGH
Dannielle Riley Keough, betur þekkt sem
Riley Keough er dóttir þeirra Lisu Marie
Presley og leikarans og tónlistarmannsins
Danny Keough. Auk þess sem hún er
elsta barnabarn Elvis Presley heitins.
Einungis fjórtán ára steig hún fyrst á
sýningarpallinn fyrir Dolce & Gabbana í
Mílanó og fimmtán ára var hún komin á
samning hjá hinni virtu módelskrifstofu
IMG. (dag er hún orðin átján ára og hefur
(trekað verið á sfðum hins ítalska Vogue
og Elle-tímaritsins.
Comme des Gar^ons kemur til með að vera
stjörnuhönnuður fatakeðjunnar H&M í ár:
Nú hefur verið tilkynnt hver
kemur til með að vera stjörnu-
hönnuður H&M í ár. í fyrra var
það Roberto Cavalli sem hannaði
línu sem seldist upp á svipstundu í
verslunum H&M en auk þess hafa
Karl Lagerfeld, Stella McCartn-
ey og Viktor&Rolf öll hannað fyr-
ir verslunarkeðjuna. í ár er það
Comme des Gargons sem mun
sjá um hönnunina. Aðalhönnuður
Comme, Rei Kawakubo, mun að
öllum líkindum hanna kvenlínu,
karlalínu og barnafatalínu auk
ilmvatns fyrir bæði kynin. Áætiað
er að lína Comme líti dagsins ljós
í verslunum H&M um allan heim í
byrjun nóvember.
Frumleigheit Allsráðandi í
hönnun Rei Kawakubo,
aðalhönnuðar tískumerkisins
Nafn?
„Magnús Guðmundsson."
Starf?
„Leikari og hárgreiðslumaður."
Stíllinn þinn?
„Ég mundi lýsa mínum stíl sem afslöppuð-
um og þægilegum, eða þannig sé ég hann
allavega."
Allir ættu að...?
„Hafa augun með nýrri búð sem er að opna
á Hverfisgötunni núna í næsta mánuði.
Hún heitir Moods of Norway. Ég hef séð
línurnar frá þeim og fötin eru frekar flott."
Hvað er ómissandi?
„Tölvan, síminn, hákarl, lakkrís, salmíak,
gallabuxur, hettupeysur, skyrtur, jakkafata-
jakkar, fjölskylda og vinir. Þetta er svona
það fyrsta sem mér dettur í hug."
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Mustang-gallabuxur, keypti mér meira að
segja tvennar, einfaldlega elska þær!"
Hvert fórst þú síðast í ferðalag og í
hvaða tilgangi?
„Ég er í því núna að ferðast um landið með
Stoppleikhúsinu og sýna. En um daginn
skellti ég mér til Akureyrar að hitta og sjá
vini mína sem eru að sýna þar hjá Leikfé-
lagi Akureyrar."
Uppáhaldsflíkin þín í fataskápnum?
„Held ég verði að segja Skunk Funk-hettu-
peysurnar mínar, ég er mikið fyrir hettu-
peysur og þeir gera brilliant peysur."
Hvenær hefur þú það best?
„Mér líður alltaf best þegar það er nóg að
gera, helst bæði í leiklistinni og hárgreiðsl-
unni. Ég fæ bara einhvern veginn aukaorku
og það lifnar yfir mér."
Ertu með einhver áform fyrir næstu
daga?
„Já, ég ætla að halda matarboð fyrir nokkra
góða vini um helgina og sækja leikhúsin
þar sem ég hefverið óduglegur við það síð-
ustu vikur."
Lumar þú á góðu tískuheilræði?
„Það sem hefur gagnast mér best er bara
að vera ég sjálfur. Maður á að klæða sig í
föt sem láta manni líða vel, það sést alltaf á
manni ef maður er eitthvað að rembast og
reyna. Þegar þér líður vel líður fólki vel í
kringum þig."