Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2008, Page 84
84 FIMMTUDAGUR 24. APRlL 2008
Helgarblað PV
Tónlistarakademía DV segir
Hlustaðu á þessa!
Rokkland 2007 - ýmsir flytjendur
Flight Of the Concords - Flight Of the Concords
Hard Candy-Madonna
Person Pitch - Panda Bear
Seventh Tree - Goldfrapp
Enginnsöngur
Hljómsveitin Peter, Bjorn anaJohn sem
sigraði heiminn flautandi í laginu
Young Folks á síðasta ári hyggst nú
gefa út breiðsklfu í haust þar sem
ekkert verður sungið. Platan, sem hefur
hlotið heitið Seaside Rock, er svokölluð
instrumental-plata og sagöi Peter
Morén, einn úrtríóinu, í viðtali við
Billboard:„Sum lögin eru afrísk/brasillsk
tónlist, sum lögin eru svona lounge-lög
og það má meira að segja finna mjög
pönkuð lög á plötunni." Útgáfufyrir-
tækið Almost Gold sem gefur sveitina
út hefur staöfest að ekkert verði sungið
á plötunni en nafnið Seaside Rock hafi
hins vegar ekki enn verið meitlað (
stein. Auk þess sem enn sé óljóst hvort
platan verði gefin út undir merkjum
Almost Gold.
afmællsveislu
Klaxons og CSS hafa verið ráðin af
eiganda knattspyrnufélagsins Chelsea,
Roman Abramovich, til að spila (sextán
ára afmælisveislu dóttur hans.
DagblaðiðThe Sun greindi frá þessu (
gær og sagði að þetta yrði hins vegar
tvöföld kvöð fyrir James Righton í
Klaxons þar sem hann væri (fyrsta lagi
harður stuðningsmaðurTottenham og
í öðru lagi hefur hann mikið rætt um
að endurútgefaTottenham-lagið
Diamond Ligths sem fyrrverandi
leikmenn liðsins Glenn Hoddle og
Chris Waddle gerðu frægt árið 1987.
Þrátt fyrir það mun afmælisveislan fara
fram og fregnir herma að Anna
Abramovich sé nú þegar byrjuð að
státa af stjörnuprýddu afmæli sfnu inni
á Facebook.
IVýttlagíspilun
Trent Reznor í Nine Inch Nails er heldur
duglegur við að framleiða tónlist þessa
dagana. Einungis tveim mánuðum eftir að
hafa gefið út
plöturnarGhosts I-
IV á netinu hefur
Nine Inch Nails
sent frá sér
splunkunýtt lag
öilum að óvörum.
Lag þetta kallast
Disciphne og fór í
spiluná
útvarpsstöðvum
um miðjan daginn (gær. Lagið var víst
klárað (fyrradag og óltkt öllum lögunum á
Ghosts l-IV inniheldur þetta lag víst
söngröddina hans Reznors mörgum til
mikillar gleði. En það sem er einna
undarlegast við þetta allt saman er að á
heimasíðunni nin.com skrifar Reznor 21.
apr(l:„Two Weeks!" sem er einmitt sömu
skilaboð og hann sendi tvem vikum áður
en Ghosts l-IV komu á netið. Gæti ný plata
verið væntanleg?
Fjórmenningarnir í Amiinu semja þessa dagana tónlist við tvær kvikmyndir. Ann-
ars vegar við mynd eftir kínverska ífikstjórann Kit Hui og hins vegar við breska
stórmynd sem skartar Michael Caine í aðalhlutverki.
Hljómsveitin Amiina
Vinnuraðtónlistfyrir
breska stórmynd.
Hljómsveitin Amiina, sem hlaut menningar-
verðlaun DV fyrr á árinu, hefur í nógu að snúast
um þessar mundir en stelpurnar vinna nú í því
að semja tónlist fyrir tvær kvikmyndir, auk þess
sem þær eru að setja saman tvenna tónleika fyrir
Listahátíðina í maí ásamt Kippa Kanínus.
„Önnur myndin sem við erum að semja tón-
list við er eftir leikstjóra sem heitir Kit Hui og er
frá Hong Kong. Hún heyrði bara tónlistina okkar
og fannst hún passa við þessa mynd. Myndin er
frekar hæg og það er lítið af tónlist í henni, hún
bara rétt heyrist svona á völdum stöðum," seg-
ir Hildur Ársælsdóttir, ein af fjórum meðlimum
Amiinu.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við erum að vinna
tónlist fyrir kvikmyndir og það er ekkert smá
skemmtilegt að prófa að semja tónlist sem snýst
einhvern veginn um eitthvað annað en þig sjálf-
an."
Tónlist fyrir breska stórmynd
Hin kvikmyndin sem kemur til með að skarta
tónlist eftir Amiinu er bresk mynd af stærri gerð-
inni sem skartar meðal annars Michael Caine í
aðalhlutverki.
„Leikstjórinn heitir John Crowley og myndin
heitir Is There Anybody Out There? Mér skilst að
platan okkar Kurr sem kom út í fyrra hafi á síð-
asta ári verið uppáhaldsplata þess sem sér um
að velja tónlistina fyrir kvikmyndina. Fyrst ætl-
uðu aðstandendur myndarinnar bara að kaupa
stök lög af Kurr til að nota í myndinni en þeg-
ar þau voru búin að púsla þeim einhvern veg-
inn saman við myndina endaði það þannig að
það voru bara lög af Kurr í myndinni. Þá ákváðu
þau að biðja okkur bara um að sérsemja alla tón-
listina fyrir myndina," segir Hildur en í heildina
semja stelpurnar tæpan hálftíma af tónlist fyrir
myndina.
„Þetta er alveg yndisleg mynd og algjört
draumaverkefni fyrir okkur að vinna tónlistina
fyrir hana."
Hildur segir að Amiina eigi að sldla af sér tón-
listinni í lok maí og reiknar með því að myndin
verði frumsýnd næsta haust.
Túra með Sigur Rós í sumar
Fjórmenningarnir í Amiinu hafa hins vegar
ekki látið sér nægja að stússast í kvikmyndatón-
listinni einni saman að undanförnu en þær hafa
í samvinnu við tónlistarmanninn BCippa Kanínus
sett saman tvenna tónleika sem haldnir verða á
Listahátíð í Reykjavík 16. og 17. maí.
„Þetta er samstarfsverkefni okkar og Kippa
sem við höfum skýrt Amiina, Kippi og vinir í
Undralandi. Nafnið er eiginlega þannig komið
til að við erum að taka sum gömul lög og breyta
þeim og stækka hluti sem hafa alltaf verið hálf-
ósýnilegir og setja þá í annað samhengi. Það
verða tíu hljóðfæraleikarar að spila með okkur
svo við verðum alveg fimmtán saman á sviðinu
og þar af leiðandi mun stærri útsetningar á öllu
en við erum vanar að vera með," segir Hildur.
Spurð um sumarplön Amiinu svarar Hildur:
„Við ætlum að eyða mestöllu sumrinu í að spila
á strengi með Sigur Rós. Taka okkur smáfrí frá
Amiinu og spila svolítið með strákunum sem
verður örugglega alveg æðislega skemmtilegt
eins og alltaf." krista@dv.is
Blíð og seiðandi Goldfrapp
í lokfebrúar sendibreska elektró-
dúóið Goldfrapp ffá sér sína ijórðu
breiðskífú. Platan heitir því und-
arlega athyglisverða nafni Seventh
Tree og ríkir einhvers konar seið-
andi dulúð yfir allri umgjörð plöt-
unnar sem og lögunum á Seventh
Tree.
Seventh Tree er töluvert ffá-
brugðin því sem áður hefur heyrst
frá Goldfrapp en þó svipar sumum
laganna til rólegri laganna á fyrstu
breiðskífu sveitarinnar, Felt Mount-
ain. Þeim, sem kynntust því Gold-
frapp á síðustu plötu sveitarinn-
GOLDFRAPP ★★★★★
SEVENTHTREE
PLÖTUDÓMUR
ar, Supemature sem kom út árið
2005, og byrjuðu að fíla sveitina eftir
að hafa heyít lög eins og Ohh la la,
gæti bmgðið svolítið við að hlusta
á Seventh Tree. Elektróið er enn til
staðar, bara aðeins dannaðra sem
og greddan sem þó skín ekki jafn-
mikið í gegn og áður.
Upphafslag plömnnar, Clowns,
sendir manni alveg tóninn fyrir
framhaldið á plötunni, einstaklega
fagurt lag hér á ferð. í þriðja laginu,
Happiness, fer svo að færast örlít-
ið stuð í leikinn enda ekki við öðm
að búast af lagi sem heitir hreinlega
hamingja. Lagið A&E er líka svona
aðeins poppaðra en önnur lög plöt-
unnar. Það má eiginlega segja að
platan sé svolítið römmuð inn í ról-
egheitunum með hinu undurljúfa
Clowns sem upphafslagi og hinu
hæga og fagra Monster Love sem
lokalagi. En öll lögin á milli em hins
vegar heldur poppaðri en alltaf með
þessu bh'ða yfirbragði sem einkenn-
ir Seventh Tree.
Seventh Tree er einstaklega ljúf
og falleg plata og sýna Alison Gold-
frapp og Will Gregory hér og sanna
að þau em sko hvergi stöðnuð í
tónlistarsköpun sinni og getur Ali-
son Goldffapp auðveldlega fært sig
úr brjálæðislega popp-rokkaða el-
ektró-gírnum sem hún hefúr verið í
hingað til og yfir í þennan blíða gír
sem við heyrum hljóma á Seventh
Tree.
Ég fékk alveg þó nokkur gæsa-
húðarmóment og varð alls ekki fyrir
vonbrigðum með Goldffapp í þetta
skiptið, Seventh Tree er með því
besta sem ég hef heyrt á árinu og ég
hef eignast nokkur uppáhaldslög á ■
plötunni.
Krista Hall