Málfregnir - 01.12.2004, Page 8
Ritaðurer litill upphafsstafur í heitum tungumála, málaflokka og mállýskna.
bantúmál • danska • forngríska • íslenska • jóska • latína • svahili • vestfirska
Ritaður er lítill upphafsstafur í heitum einstakra daga, mánaða, tímabila, hátíða og sögulegra
viðburða nema fyrri hluti slíkra heita sé sérnafn eða dreginn af sérnafni.
aðventa • ár fatlaðra • bannár • dagur islenskrar tungu • dagur Sameinuðu þjóðanna •
fornöldin • franska byltingin • frostaveturinn mikli • fullveldisdagur • hundadagar • hvíta-
sunna • iðnbyltingin • jól • júlí • kalda stríðið • landnámsöld • laugardagur • móðuharðindi
nóvember • páskar • sjómannadagurinn • skírdagur • sumardagurinn fyrsti • þjóðhátíðar-
dagur • þorri • verslunarmannahelgi
Jónsmessa • Margrétarmessa • Ólafsvaka • Sturlungaöld • Þorláksmessa
í styttu eða breyttu sérnafni getur verið val um lítinn eða stóran upphafsstaf.
Háskóli islands = háskólinn eða Háskólinn
Hellisheiði = heiðin eða Heiðin
Hæstiréttur islands = hæstiréttur eða Hæstiréttur
Hafnarfjörður = fjörðurinn eða Fjörðurinn
Stiórnarráð islands = stiórnarráðið eða Stiórnarráðið
Engin hefð viröist fyrir því að rita styttinguna Kvennó með litlum upphafsstaf.
Valfrelsi er um lítinn eða stóran upphafsstaf í heitum ráðuneyta.
fjármálaráðuneytiö
Fjármálaráðuneytið
i tilvikum sem þessum verður að gæta vel að hefð og samræmi. Sú hefð hefur myndast í
opinberum skjölum að yfirstofnanir hafi stóran staf en undirstofnanir lítinn.
Stjórnarráðiö Sameinuðu þjóðirnar
fjármálaráðuneytið allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
utanríkisráðuneytið öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
Ritaður er litill upphafsstafur í heitum trúarbragða og viðhorfa.
ásatrú • búddismi • frjálshyggja • íslam • jafnaðarstefna • kalvinstrú • kristin trú • lenínismi •
lúterska • maóismi • marxismi • valtýska
Ritaður er litill upphafsstafur i heitum fylgismanna trúarbragða og viðhorfa.
ásatrúarmaöur • búddisti • fasisti • fransiskani • frimúrari • grænfriðungur • guðspekingur •
gyðingur • húgenotti • kvekari • maóisti • múslími • nýguðfræðingur • repúblikani • sósíalisti
• stalinisti • templari • valtýingur
Ritaður er litill upphafsstafur i heitum fylgismanna stjórnmálaflokka.
| framsóknarmenn • frjálslyndir • samfylkingarmenn • sjálfstæðismenn • vinstri grænir
8