Málfregnir - 01.12.2004, Qupperneq 21
XII. EITT ORÐ EÐA FLEIRI
Meginreglan er sú að orð, sem myndað er úr tveimur eða fleiri orðum eða orðhlutum, sé ritað í
einu lagi. Reglan er ekki alveg einhlít og í liðum 70-82 hér á eftir er vikið að ýmsu sem gæta
verður að I þessu sambandi. Heimilt er að rita bandstrik milli orðliða í sumum tilvikum, sbr. lið
71 og XIII. kafla.
aðalinngangur • aðeins • aðferð • aðskilja • afbragðsmaður • afsanna • aftakaveður • aftan-
ákeyrsla • aftanívagn • aldrei • algóður • allgóður • allsendis • alltaf • alþjóðasamtök • and-
stæðingur • atferli • athyglisverður • auðsveipur • aufúsugestur • áburður • áðurnefndur •
ágætismaður • ávallt • Bláalónshlaupið • blæjalogn • brúðgumi • dúndurhress • efnagreina
• eftirlætisréttur • einskismannsland • endurúthluta • farartæki • fimmtungsaukning • fjölda-
margir • forkunnarfagur • formaður • framámaður • framhjáhald • framíkall • framkoma •
frammistaða • framúrakstur • framvegis • fráfærur • frumstæður • fullmikill • furðugóður •
fylgihnöttur • fyrirframgreiðsla • fyrirmyndarfjölskyldufaðir • fyrirskipun • gagnstæður •
gegndrepa • gegnum • gerbreyta • gjörbreyta • glaðlyndur • hálfsársdvöl • hálfundarlegur •
hálfvegis • heildaratkvæðagreiðsla • heildarfjöldi • heilsdagsvistun • helgarátak • helmings-
afsláttur • helmingseigandi • hjáseta • hlutafé • hæglætismaður • innantökur • innihalda •
innivera • innlendur • innskráningargluggi • ihuga • jafnlyndur • jafnvel • jafnvægi • jarðhús
• kaldastriðsástand • kaldavatnskrani • kringum • langatöng • langavitleysa • langstærstur •
langtimaskuldir • langtum • mánaðarfyrirvari • máttvana • meðmæli • meginágreiningur •
meginland • meginregla • mettap • Miklabraut • misbjóða • misheppnaður • mótdrægur •
myndardrengur • nettóhækkun • núllkostur • nútimatækni • nútímaumhverfishugsun • ný-
kominn • nýtískufatnaður • óhemjuvandaður • ósannindi • óskapahiti • óvenjugóður •
óþarfaáhyggjur • radíóneyðarbauja • ráðuneyti • roknagóður • rösklega • salsatónlist •
samanstanda • samskeyti • sérframboð • síðastliðinn • sífelldur • skrælþurr • smáíbúð •
strangvísindalegur • stundarvandræði • tilburðir • torlæs • umboð • umhverfis • undanfari •
undragóður • uppáhald • uppástunga • uppátektarsamur • uppgjöf • uppiskroppa • uppí-
greiðsla • utanumhald • úrvalshveiti • útafakstur • útásetning • útbyrðis • útför • útilega •
vandvirkur • vanmegnugur • vanvirða • viðkoma • viðkvæmur • viðurlög • vikufyrirvari •
vinsæll • yfirmaður • öndverður • örbylgjuskyndiréttur • örmagna
Atviksliðir og samtengingar eru stundum fleiri en eitt orð og er hvert þeirra ritað út af fyrir sig.
af því að • aftur í • á meðal • á milli • baka til • eins og • enda þótt • enn fremur • enn þá •
fram hjá • fyrir fram • hér með • inn í • með fram • norðan til • suður í • sunnan til • sunnan
við • til þess að • úr því að • út af • út frá • út undan • yfir um • þar eð • þar sem • þó að •
því að
Frá þessu eru tvær undantekningar:
áfram • umfram
Athuga einnig orðin:
í gegnum • i kringum
Þegar jafn jafngildir eins er heimilt að rita jafn laust frá atviksorðum og lýsingarorðum.
Hann hefur aldrei verið jafn góður og núna.
Jóna fór jafn oft til Akureyrar og Jón.
Einnig má rita jafngóður, jafnofi o.s.frv. skv. meginreglunni í lið 69 og
jafn-góður, jafn-oft o.s.frv. skv. lið 91.
Orðin afar, of og ofur skal rita áföst nafnorðum og sagnorðum en laus frá lýsingarorðum og
atviksorðum:
afarkostir afar vel, afar stór
offramleiðsla, ofnota of oft, of litill
ofurmenni ofur glaðlega, ofur einfaldur