Málfregnir - 01.12.2004, Blaðsíða 24
Valfrjálst er hvort ritað er allt ofeöa alltof, smám saman eða smámsaman, öðru hverju eða
öðruhverju, öðru hvoru eða öðruhvoru.
80
allt of alltof
smám saman smámsaman
öðru hverju öðruhverju
öðru hvoru öðruhvoru
Fremur er mælt með rithætti í tveimur orðum.
Valfrjálst er hvort nokkur orð eða orðasambönd með atviksorði og nafnorði í eignarfalli eru
rituð í einu eða tveimur orðum. Ef orðasambandið er hluti af frekari samsetningu er hún ávallt
rituð sem ein heild.
innan bæjar innanbæjar innanbæjarmaður
innan lands innanlands innanlandsflug
neðan jarðar neðanjarðar neðanjarðarlest
utan borðs utanborös utanborðsmótor
utan húss utanhúss utanhússmálning
utan skóla utanskóla utanskólanemandi
Þegar valið er milli ritháttarins innan bæjar o.s.frv. og innanbæjar o.s.frv. er mælt með þvi að
áhersla fái að ráða; sé skýr áhersla á síðari lið er mælt með rithætti í tveimur orðum.
Ekki er alltaf greinilegt hvenær orðasamband hefur runnið saman i eina heild. Ef orðið eða
orðasambandið verður hluti lengri samsettra orða eru þau rituð sem ein heild.
orðasamband eitt orð sem hluti lengri orða
Gamla testamentið Gamlatestamentið Gamlatestamentisspámaður
heiðinn dómur heiðindómur
hægri flokkur hægriflokkur hægriflokkastjórn
hægri fótur hægrifótur hægrifótarkálfi
hægri menn hægrimenn
hægri stjórn hægristjórn
kristin fræði kristinfræði kristinfræðikennari
kristinn dómur kristindómur kristindómsfræðsla
litli fingur litlifingur litlafingursnögl
meiri hluti meirihluti meirihlutastjórn
mikli hvellur miklihvellur miklahvellskenningin
æðsti prestur æðstiprestur æðstapreststíð
Þegar valið er milli ritháttarins Gamla testamentið o.s.frv. og Gamlatestamentið o.s.frv. er
mælt með því að áhersla fái að ráða; sé skýr áhersla á síðari lið er mælt með rithætti i tveimur
orðum.
XIII. BANDSTRIK
Bandstrik er notað í margs konar tilvikum, sjá hér á eftir. Athuga að hvorki er haft stafbil fyrir
framan né aftan bandstrik.
83
Bandstrik er notað milli orðliða i örnefnum o.fl. heitum þar sem síðari liður er sérnafn.
Austur-lndíur • Hvita-Rússland • Innri-Mongólía • Mið-Evrópa • Miklabæjar-Solveig •
Norður-íshaf • Nýja-Sjáiand • Syðri-Grund • Víga-Glúmur • Ytri-Mælifellsá
24