Málfregnir - 01.12.2004, Síða 29
Margir... lögðu sitt af mörkum.
Köttur úti í mýri... úti er ævintýri.
Ævintýri enda oft á formúlubundinn hátt: Köttur úti í mýri...
Mörg ævintýri byrja á orðunum: Einu sinni var...
Áttu við .... sagði pabbi og svo þagnaði hann líka.
Er hann nokkuð ...?
Þessi hérna ...!
Egill svaraði matseljunni: „Ver þú vel við ... þótt eg bakist við eldinn og mýkjumst vér við
um rúmin.“
Egill bað matseljuna verða vel við...þótt eg bakist við eldinn og mýkjumst vér við um
rúrnin”.
I Egils sögu segir: „Ver þú vel við,“ segir Egill, „þótt eg bakist við eldinn ..."
Ef felldur er niður hluti orðs er ekkert bil haft á undan úrfellingarpunktum.
Hver í andsk... var þetta eiginlega?
Helv... fíflið kom ekki.
Fyrst varð ég að sópa og mjó... nei, gefa hænsnunum.
XVII. ÚRFELLINGARMERKI
A f \ r\ Úrfellingarmerki er kló ’ eða högg ' og má nota til að sýna að felldur hafi verið brott stafur eða
I stafir. Úrfellingarmerki eru forsett eða eftirsett eftir atvikum.
Það átt’ ekki við 'ann að rjúfa sin heit. Það átt' ekki við 'ann að rjúfa sín heit.
Ólafur fæddist '87. Ólafur fæddist '87.
’68-kynslóðin vildi láta til sín taka. '68-kynslóðin vildi láta til sin taka.
XVIII. KOMMA
103
Komma er höfð í upptalningu og þegar orð eru endurtekin nema þar sem notaðar eru
samtengingar.
Sigrún, Jón, Árni og Guðrún eru systkin.
Á morgun er landafræði, enska, stærðfræði og danska.
Þetta er langtum, langtum skemmtilegra.
Já, já.
Á morgun er landafræði og enska og stærðfræði og danska.
104
Komma er höfð til að afmarka ávörp og upphrópanir.
Komdu hingað, vinur.
Sæl, Anna, og til hamingju með afmælið.
Fundarstjóri, má ég bera fram athugasemd?
Ég get sagt þér það, Ása, að ég er orðinn verulega þreyttur á þessum hávaða.
Hvað var það, minn kæri, sem þú vildir okkur segja, þú frægi skrýtni Sölvi Helgason?
Nei, það kemur ekki til greina.
Ó, farðu þér nú ekki að voða, elskan min.
29