Málfregnir - 01.12.2004, Síða 34

Málfregnir - 01.12.2004, Síða 34
XIX. SEMIKOMMA 113 í stað punkts má setja semikommu milli málsgreina ef málsgreinarnar eru merkingarlega nátengdar en einkum ef síðari málsgreinin táknar afleiðingu hinnar fyrri eða andstæðu hennar. Það hefur verið mikið ónæði hérna í dag; mér hefur þvi ekki tekist að Ijúka verkefninu. Jón varð fyrir aðkasti margra; samt lagði hann engum illt til. 114 Semikommu má nota í upptalningu til að afmarka þá liði sem helst eiga saman. Verslunin selur ýmiss konar vörur: paþpír, ritföng; sígarettur, vindla, neftóbak; sápur, ilmvötn og aðra hreinlætisvöru. Hiti sjúklingsins var 39,6; 38,7; 37,9; 36,9. XX. TVÍPUNKTUR 115 Tvípunktur er settur á undan beinni ræðu eða beinni tilvitnun ef á undan fara inngangsorð. Jón hugsaði sig um stundarkorn og sagði svo: „Jú, þetta er rétt hjá þér.“ í ritgerðinni stendur: „Bústaðurinn erfrá 12. öld.“ Tvípunktur er settur á undan upptalningu eða skýringu á eftir setningu sem væri málfræðilega sjálfstæð málsgrein þótt upptalningunni eða skýringunni væri sleppt. I Loks var þetta ákveðið: Óskað verður eftir nauðasamningum hið fyrsta. 14 Notaður er upphafsstafur á eftir tvípunkti ef um er að ræða fullkomna sjálfstæða málsgrein I eða sérnafn._______________________________________________________________ j Loks var þetta ákveðið: Óskað verður eftir nauðasamningum hið fyrsta. Hún fór til þriggja landa: Noregs, Ítalíu og Frakklands. Annars er val um lítinn eða stóran staf. Fremur er mælt með rithætti með litlum staf. Hann er seinheppinn eins og fyrri daginn: missir af flugvélinni og tefst í þrjá daga. Hann er seinheppinn eins og fyrri daginn: Missir af flugvélinni og tefst í þrjá daga. Hún keypti þrenns konar ávexti: banana, epli og appelsínur. Hún keypti þrenns konar ávexti: Banana, epli og appelsínur. Hún hefur heimsótt þrjá ættingja erlendis: ömmu sína, bróður sinn og frænda. Hún hefur heimsótt þrjá ættingja erlendis: Ömmu sína, bróður sinn og frænda. 117 Tvípunkt má einnig nota til að tákna mælikvarða, aðgreina ártal og blaðsíöutal heimildar, birta tíma, úrslit o.fl. 1:250.000 2004:43 Kl. 2:45 Leikurinn fór 84:78 34

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.