Málfregnir - 01.12.2004, Page 35
118
Ef tvípunktur er notaöur á eftir skammstöfun er hann settur næst á eftir punkti
skammstöfunarinnar.
Upphæðin leggist inn á bankareikning nr.:
Tilgreinið eftirfarandi: Nafn:
Kt.:
XXI. SPURNINGARMERKI
119
Spurningarmerki er sett á eftir málsgrein (málsgreinarígildi) sem felur í sér beina spurningu.
Ef tvær eða fleiri spurningar koma í röð má aðgreina þær með kommu eða tengingu og setja
spurningarmerki í lokin.
Hvað er i matinn?
„Hvenær kemur þú heim?“ spurði Jón.
Hvað?
Með frönskum og hrásalati?
Hvert ferðu, hvers vegna og hvenær kemurðu aftur?
Er það I fyrramálið sem hún fer eða á sunnudaginn?
Hafa ber I huga mun á beinum og óbeinum sþurningum.
Hann spuröi: „Hvar er skjalið?"
Hann spurði hvar skjalið væri.
XXII. UPPHRÓPUNARMERKI
120
Upphrópunarmerki má setja á eftir einstökum orðum eða málsgreinum sem fela í sér
upphrópun til að koma til skila fögnuöi, skipun, kveðju, fyrirlitningu, undrun o.fl.
Þvílík heppni!
Upp með hendur!
Góðan dag!
Góðir áheyrendur!
Svei!
Hún borðaði tómatsósu(l) með grásleppunni.
XXIII. SVIGAR OG HORNKLOFAR
121
Sviga má setja utan um innskot sem sett eru til skýringar. Hornklofi er settur utan um það
sem skotið er inn í orðrétta tilvitnun.
Árið eftir (1928) fluttist Guðrún suður.
Skip, sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á
framsiglu.
Þá reis deila milli hjarðmanna Abrams og hjarömanna Lots. (Þá bjuggu i landinu
Kanverjar og Peresítar.)
Hann sagði: „Ég óska kennaranum [þ.e. Halldóru] alls hins besta.“
35