Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 2
Veður
Í dag verða suðvestan 5 til 10 metrar
á sekúndu og eitthvað mun rigna um
allt land, en rigningin verður hvorki
samfelld né í miklu magni. Hiti 4 til 8
stig. sjá sÍðu 50
Sundahöfn yfirfull af nýjum bílum
Á hafnarbakkanum Mikill munur er að horfa yfir hafnarbakkann við Sundahöfn núna (neðri mynd), frá því sem var árið 2010 (efri mynd). Sala
nýrra fólksbíla tók mikinn kipp í fyrra, þegar ríflega 14 þúsund nýir bílar seldust samanborið við um 9.500 árið áður. Þetta ár hefur farið vel af stað í
bílasölu og voru 73 prósent fleiri bílar seldir á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs en á sama tíma í fyrra. Fréttablaðið/gva
Landbúnaður Grafalvarleg staða
er komin upp í sauðfjárrækt. Þrí-
gilt bóluefni sem bændur nota við
að bólusetja fé fyrir sauðburð er
ekki til í landinu.
Hörgull er á ormalyfjum fyrir
fullorðið fé og sýklalyf við slefu
í lömbum svo gott sem uppurið.
Charlotta Oddsdóttir, formaður
Dýralæknafélags Íslands, segir
stöðuna erfiða.
„Tribovax er þrígilt bóluefni sem
sauðfjárbændur nota fyrir sauð-
burð við að bólusetja gemlinga.
Það þarf að bólusetja tvisvar með
tveggja vikna millibili og ef seinni
skammturinn er ekki til er vinnan
unnin fyrir gýg,“ segir Charlotta.
„Þessi lyfjaskortur er svo sem ekki
nýr af nálinni en kemur nú á mjög
slæmum tíma,“ segir hún jafn-
framt.
Stutt er í sauðburð hér á landi. Á
hverju vori fæðast um 700 þúsund
lömb og því í mörg horn að líta
fyrir sauðfjárbændur, sem eru víð-
ast hvar orðnir uggandi yfir því að
lyf verði ekki til staðar þegar sauð-
burður hefst af alvöru.
Þórarinn Ingi Pétursson, for-
maður Landssambands sauðfjár-
bænda, hefur ekki síður áhyggjur
af stöðunni. „Þetta er auðvitað
skandall, að innflytjendur þessara
lyfja skuli ekki átta sig á dagatalinu
og að það sé að koma vor,“ segir
Þórarinn Ingi.
„Nú fer í hönd mikill annatími
fyrir okkur sauðfjárbændur og þá
skiptir gríðarlega miklu máli að í
landinu skuli vera nauðsynleg lyf
fyrir sauðburð.“
Charlotta segir Ísland einfald-
lega of lítið markaðssvæði fyrir
markaðsleyfisskyld lyf og þetta
ástand einskorðist ekki einungis
við dýralyf.
„Það væri best ef við værum
á sama markaðssvæði og hin
Norðurlöndin. Við erum of lítið
markaðssvæði fyrir þessa stóru
aðila úti í heimi og við því verður
að bregðast. Markaðsleyfisskyld
lyf hér á landi eru mun færri en
annars staðar á Norðurlönd-
unum,“ segir hún.
„Þetta er síðan einnig vanda-
mál með önnur lyf og hefur
maður heyrt lækna einnig tala
um skort á lyfjum á sumum
sviðum og það er miður,“ segir
Charlotta Oddsdóttir að lokum
við Fréttablaðið.
sveinn@frettabladid.is
Sauðfjárbændur ósáttir
við lyfjaskort í landinu
Nauðsynleg lyf fyrir sauðfé er ekki að finna í landinu, eða svo lítið til af þeim að
það nægir ekki öllum. Sauðburður er á næsta leiti og mikilvægt að staðan lagist
að mati sauðfjárbænda. Sjö hundruð þúsund lömb fæðast á hverju vori.
Stutt er í sauðburð en nauðsynleg lyf ófáanleg. Fréttablaðið/Pjetur
Þessi lyfjaskortur er
svo sem ekki nýr af
nálinni en kemur nú á mjög
slæmum tíma.
Charlotta Odds-
dóttir, formaður
dýralæknafélags
íslands
Þetta er auðvitað
skandall, að inn-
flytjendur þessara lyfja skuli
ekki átta sig á
dagatalinu.
Þórarinn Ingi
Pétursson,
formaður LS
Betri ferð
- vita.is
fyrir betra verð
Verð frá:
14.900 kr.
Á mann m.v. flugsæti aðra
leið.
Vorið á
Alicante
valdar dagsetningar í
apríl og maí.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
stjórnsýsLa Ríkisstjórnin ákvað í
gær að veita fjórum sveitarfélögum
á Austurlandi fjárstyrki, til að mæta
útgjöldum vegna flóða og óveðurs
í lok síðasta árs. Þar að auki fá þrjár
ríkisstofnanir styrk af sömu ástæðu
og einnig vegna afleiðinga Skaftár-
hlaups. Styrkirnir nema samtals tæp-
lega 320 milljónum króna.
„Ljóst er að fjárhagslegt tjón sveit-
arfélaga var þó nokkurt og erfitt fyrir
þau að takast á við það án stuðnings,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson for-
sætisráðherra.
Þau sveitarfélög sem fá styrk eru
Fjarðabyggð sem fær rúmar 43 millj-
ónir króna, Breiðdalshreppur fær 14
milljónir, Borgarfjörður eystri fær 1,5
milljónir og Djúpavogshreppur fær
1,7 milljónir. – þv
Ríkið styrkir
sveitarfélög á
Austurlandi
sakamáL Embætti héraðssaksókn-
ara var um langa hríð með aðgerðir
í undirbúningi vegna stórfelldra
brota tveggja verktaka á höfuð-
borgarsvæðinu.
Níu manns voru handteknir
í umfangsmiklum aðgerðum
héraðssaksóknara og lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu og
Vesturlandi á þriðjudag vegna
málsins. Farið var fram á gæslu-
varðhald yfir sex hinna handteknu
og féllst héraðsdómur á kröfuna
yfir fimm þeirra.
Ákveðið var að kalla til man-
salsteymi lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu til að taka þátt í
aðgerðum og kanna hvort um man-
sal gæti verið að ræða.
„Það var vitað eitt og annað áður
en farið var af stað. Það sem var
vitað gaf tilefni til þess að kalla þá
til og þær aðgerðir voru ekki hluti
af aðgerðum okkar sem varða brot
á skattalögum og bókhaldsbrot.
Síðan er spurning um fjárdrátt,
peningaþvætti og skjalafals. Rann-
sókn á eftir að leiða í ljós hversu
mörg brot hafa verið framin,“ segir
Ólafur Þór Hauksson héraðssak-
sóknari.
Ólafur segir of snemmt að setja
fram kenningar um skipulagða
glæpastarfsemi. „Það er ekki rétt að
vera með fullyrðingar á þessu stigi
og of snemmt að setja fram slíkar
kenningar.“
Ólafur segir aðgerðir lögreglunn-
ar hafa verið gerðar á sama tíma.
„Þetta var stóraðgerð, fjörutíu lög-
reglumenn tóku þátt í henni auk
sérfræðinga skattrannsóknarstjóra
og sérfræðinga í mansali. – kbg
Undirbúið í
langan tíma
Þetta var stóraðgerð.
40 lögreglumenn
tóku þátt í henni.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari
1 6 . a p r Í L 2 0 1 6 L a u G a r d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-B
0
4
4
1
9
1
9
-A
F
0
8
1
9
1
9
-A
D
C
C
1
9
1
9
-A
C
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K