Fréttablaðið - 16.04.2016, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 16.04.2016, Blaðsíða 32
Átta daga fæðingarorlof Anita segir aðstæðurnar þannig óvenjulegar fyrir nýbakaðar mæður. Sjálf hafi hún snúið aftur til starfa aðeins átta dögum eftir fæðingu dótturinnar, sem fæddist í byrjun árs 2014. „Þá fór ég á fyrsta fundinn minn. Þau komu með mér og ég gaf henni í bílnum áður en ég stökk inn á fund. Stökk svo strax út að honum loknum og gaf aftur. Þetta var mikil samvinna fjölskyldunnar. Ég hefði alveg getað verið frá í fjóra mánuði en þá er ég bara ekki að vinna og þar með hægist á öllu, sem er erfitt þegar svo mikil orka og fjárfesting felst í samböndum sem maður hefur verið að þróa lengi við kvikmynda- gerðarmenn og framleiðendur. Að vera í sjónlínunni skiptir miklu máli. Ef maður hverfur í of langan tíma, hefur það áhrif. Ég er bara það sem ég legg í þetta. Ég vinn og skapa, en ef ég stoppa, þá stoppar allt.“ Anita segist geta lagt samnefnara hlutverka Hollywood-leikkonunnar og nýbökuðu móðurinnar að jöfnu við maraþonhlaup. „Ansi oft hef ég sett hana í rúmið og heill dagur lið- inn, stútfullur af verkefnum og mig langar bara að skríða upp í rúm. Horfa kannski aðeins á sjónvarpið. En þarf þess í stað að gíra mig upp, skella mér í glansgallann, greiða hárið nánast hálfvælandi yfir að þurfa að fara í partí eða á einhvern viðburð. Svona er þetta líf, bransinn er alltaf í gangi,“ útskýrir hún og skýtur að: „Á móti fær maður samt alls konar hlunnindi og tækifæri til að lenda í ýmsum aðstæðum. Ef ég mætti ráða, þá væri ég bara í vinnunni að skapa, á setti. Sleppa þessari hliðarvinnu sem partístandið er.“ Með reynslu kemur dýpt Blessunarlega stóð Anita ekki frammi fyrir því sem hún óttaðist einna helst í kjölfar meðgöngunnar og svo margar kynsystur hennar hafa upplifað; að hlutverkum fækkaði í kjölfar mömmu- titilsins. „Ég er að fá breytt hlutverk, en ekkert sérstaklega vegna þess að ég er mamma. Sú hræðsla var ekki raun- veruleg fyrir mig. Hlutverkin þróast og breytast eftir því sem maður eldist. Ég er auðvitað í allt öðrum hlut- verkum núna en þegar ég var 21 árs. Það er alltaf verið að skoða mann og horfa, ekki beint dæma, en rannsaka. Passar þessi í þennan heim, hvað gefur hún þessu hlutverki, hvaða ele- ment hefur hún til að færa þessu hlut- verki. Þess vegna er maður mikið að hugsa: Hvað er ég sem manneskja?“ útskýrir hún alvarleg. „Það að verða móðir gefur mér ákveðna reynslu sem þýðir að ég hef úr öðru að byggja en áður. Þannig er ákveðin kaldhæðni innan bransans, að eftir því sem leikkonur eldast verða þær betri og dýpri, hafa meira að gefa og segja. En á sama tíma verða færri hlutverk í boði fyrir þær. Það er stað- reynd. Og ekki er sami standard fyrir konur og karla í Hollywood. Sann- leikurinn er sá að fólk heldur, eða því finnst, karlmenn meira sexý þegar þeir eldast en konur. Ef við horfum bara á myndina Journey to The Cen- ter of The Earth þar sem ég var 24 ára gömul og lék á móti Brendan Fraiser, þá fertugum. Það þótti bara normalt samband. En ef þetta hefði verið á hinn veginn, hefði sagan verið perra- saga. Það er ruglað. Við erum of sam- dauna því sem við sjáum á skjánum.“ Það er pláss fyrir eldri konur „Þetta fer í taugarnar á manni en ég veit svo sem ekki hversu mikið maður á að pirra sig á þessu. Það eina sem hægt er að gera er að leggja sitt af mörkum við að þróa aðstæður. Koma með sögur sem fjalla meira um konur, en rosalega mikið af handritunum er skrifað af körlum, eldri körlum. Það er vel hægt að styðja við kvikmynda- gerðarkonur. Þegar þær eru komnar eða orðnar fleiri, verða fleiri sögur með dýpt í kvenmönnunum og þar af leiðandi opnast pláss fyrir eldri konur í kvikmyndum. En ég sé reyndar nýja kynslóð sjón- varpsefnis á Netflix, Amazon og þess- um nýju stöðvum sem eru að koma í staðinn fyrir þessar hefðbundnu sjónvarpsstöðvar, að þar er að eiga sér stað breyting í efninu. Einhver jákvæð þróun sem birtist til dæmis í House of Cards og Narcos. Þar eru alvöru karakterar með mikilli áferð. Mér finnst nú þegar fólk farið að venj- ast því. Ef maður ber saman Melrose Place og það sem er að gerast núna, sér maður þetta. Þetta er spennandi þróun fyrir mig og margar í þessum bransa. Það gefur okkur von um að hlutverk kvenna fari að breikka og dýpka. Maður sér að þarna eru öðru- vísi kvenrullur í boði, allt öðruvísi sögur á skjáum fólks en var fyrir tíu árum.“ Svefninn hreinn lúxus Anita segir svefnleysið í raun það erfiðasta við móðurhlutverkið að hennar mati og fái hún því kær- komna hvíld um þessar mundir á meðan á dvöl hennar hér á landi stendur. „Eftir að hafa ekki náð fleiri en þremur klukkustundum í sam- hangandi svefn í tvö ár var eðlilega það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég kom inn á hótelherbergið mitt hérna: Ókei, ég ætla að sofa í sjö klukkutíma, samfleytt,“ segir hún og enn rennur á hana bráðsmitandi bros. Hún segist alsæl með að vera á landinu ein síns liðs. „Það er svo erfitt fyrir mig að að finna tíma til að gera eitthvað svona. Maður getur ekki verið lengur frá vinnu en í mesta lagi viku. Jólin eru einna helst sá tími sem bransinn sammælist um að taka fimm til sjö daga frí. En ef þú ert að fara í frí er það bara á þinn kostnað og getur haft sín áhrif.“ Anita gengst hæglega við getgátu blaðamanns um að hún sé alltaf í vinnunni. „ Já, eiginlega. Maður þarf að passa sig og reyna að taka tíma bara fyrir sig. En það er svolítið erfitt, sérstaklega í Los Angeles. Öll borgin er undirlögð kvikmyndaiðnaðinum. Ég er ekki nógu dugleg við að gefa mér þennan tíma. Bara það að vera hérna á Íslandi núna gerir það að verkum að ég finn hvernig súrefnið smýgur inn í frumurnar aftur.“ Anita segist þannig himinlifandi með að hafa náð að búa sér til afsökun fyrir Íslandsdvölinni og lætur næstum eins og hún sé ekki í vinnunni, sem hún er svo sannarlega. Á dögunum sendu þær Sólveig Eiríksdóttir frá sér bókina Mömmubitar, sem þær eru er að ýta úr vör um þessar mundir. Fullt starf að borða „Mig langaði að gera bók, sem er fersk, létt og skemmtileg. Mér fannst vanta svoleiðis. Það er nóg til af alls konar fræðingum á netinu þar sem alltaf er verið að hamra á því hvað allt sé hræði- legt og hvaða skelfilegu hlutir geti gerst. Allt er hættulegt. Mér fannst bara erfitt að borða og hugsa svona rosalega mikið um hvað ég átti að vera að borða yfir daginn til að ná öllum næringar- efnunum. Og þá ekki síst, hvað ég gæti borðað án þess að verða óglatt. Fyrir mér var þetta orðið fullt starf, ég eyddi öllum tímanum mínum í þetta. Ímyndunaraflið datt bókstaf- lega úr mér, fór í frí,“ segir Anita sem sat ekki með hendur í skauti heldur sá gat í markaði og þéttri tímatöflu. „En mér fannst þetta svo erfitt og ég þurfti mikið að hafa fyrir að finna út úr þessu. Ég er enginn harðstjóri með það sem ég set ofan í mig, mér finnst þetta bara allt snúast um fjölbreytni. Þannig er ég viss um að ég sé að fá nóg af mismunandi næringarefnum. Og þegar upp var staðið hafði ég bara heilmikið að gefa. Lausnir sem eru þess virði að setja í bók og til þess fallnar að hjálpa öðrum verðandi mæðrum. Þessi hugmynd kom bara til mín, ég hafði ekkert hugsað mér að gefa út bók. Auk þess sem ég þekkti Sollu ekki neitt, en fannst samt engin önnur koma til greina. Ég hef alltaf verið einlægur aðdáandi hennar og eldað mikið eftir uppskriftunum hennar á netinu. Mundi að pabbi hafði einhvern tíma hitt hana svo ég fékk hann til að senda henni póst og svo fór þetta að rúlla, tölvupóstur á milli og svo stukkum við í símann,“ segir hún uppveðruð. „Kreifingar“eru stórmál „Við vorum mikið í að finna lausnir fyrir konur með rosalega stórar bumbur þar sem barnið hefur ýtt maganum lengst út í horn svo hann verður pínulítill og þær geta eigin- lega ekkert borðað. Samt sársvangar. Það var mikið vandamál fyrir mig. Solla kom þá með töfralausnina, sér- legar næringarmúffur,“ segir Anita og blaðamaður spyr hvort hún hafi þó ekki villst af leið líkt og margar kyn- systur hennar í þeim hormónarússí- bana sem meðganga getur verið. „Ég fékk tvær aðal „kreifingar“. Kreifingar eru stórmál, ég reyndi ein- mitt að fá að nota orðið Kreifingur sem kaflaheiti í bókinni minni og kom því fyrir nefnd hjá Íslenskri orðabók, en þar var þvertekið fyrir það. Mér finnst orðin þörf eða sárþrá engan veginn ná yfir ástandið,“ segir hún og skellihlær duglega áður en hún heldur áfram: „Ég var sumsé með kreifing í fíkjur og svo ávexti. Við keyptum okkur hús þegar ég var ólétt og þar var fíkjutré í garðinum sem getur hafa spilað inn í. Svo var ég dálítið að vakna á nóttunni og varð að fá kornflex með mjólk. Auk þess hafði ég aldrei verið hrifin af smjöri eða rjóma, en varð sólgin í það og er enn. Þessar kreifingar eru ekkert kjaft- æði, þetta er líkaminn okkar að kalla á það sem vantar. Það verður að taka mark á þeim.“ Anita sver af sér að hafa alla tíð verið svona meðvituð um meinhollt mataræðið. „Nei, eiginlega ekki. Það var ekki fyrr en ég kláraði leiklistar- skólann og fór að vinna langa daga á settum. Þá erum við yfirleitt í tólf klukkustunda tökum og vissara er að vera agaður varðandi það sem þú borðar. Ég tamdi mér því nokkuð snemma að borða oft og lítið, enda þarf ég að hafa sterkan haus og jafna orku og úthald þarna. Svo ég tali ekki um útlitið. Þetta helst allt í hendur. Ég er þannig meðvituð vegna þess að ég virkilega þarf þess. Meðan ég var ófrísk fann ég allan tímann fyrir mikilli þreytu og þá hjálpaði nær- ingin mér gríðarlega og sjálfri líður mér hvergi betur en á setti svo það er býsna rökrétt að huga að þessu,“ svarar hún sannfærandi. Spurð hvort hún hyggist leggja fyrir sig frekari bókaskrif segir hún, fullkomlega samkvæm sjálfri sér, að hún viti ekkert um það enda sé rauður þráður í hennar lífi „að um leið og eitt- hvað er ákveðið gerist einfaldlega eitt- hvað allt annað.“ Anita er alsæl með að geta boðið öðrum verðandi mæðrum launsina sem hana vantaði á sínum tíma. FréttAblAðið/Ernir ↣ Ef Eg mætti ráða, þá væri ég bara í vinnunni að skapa, á sEtti. slEppa þEssari hliðarvinnu sEm partístandið Er. Aðalfundur FVFÍ 2016 verður haldinn að Borgartúni 22 þriðjudaginn 19. apríl nk. kl.19:00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar 3. Önnur mál Veitingar að fundi loknum Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu FVFÍ alla virka daga milli kl. 10-15 vikuna fyrir fund. Mætið vel og stundvíslega, Stjórnin. 1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r32 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 1 6 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 8 F B 1 2 0 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 1 9 -B 5 3 4 1 9 1 9 -B 3 F 8 1 9 1 9 -B 2 B C 1 9 1 9 -B 1 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 0 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.