Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 32
Átta daga fæðingarorlof
Anita segir aðstæðurnar þannig
óvenjulegar fyrir nýbakaðar mæður.
Sjálf hafi hún snúið aftur til starfa
aðeins átta dögum eftir fæðingu
dótturinnar, sem fæddist í byrjun árs
2014. „Þá fór ég á fyrsta fundinn minn.
Þau komu með mér og ég gaf henni í
bílnum áður en ég stökk inn á fund.
Stökk svo strax út að honum loknum
og gaf aftur. Þetta var mikil samvinna
fjölskyldunnar.
Ég hefði alveg getað verið frá í fjóra
mánuði en þá er ég bara ekki að vinna
og þar með hægist á öllu, sem er erfitt
þegar svo mikil orka og fjárfesting
felst í samböndum sem maður hefur
verið að þróa lengi við kvikmynda-
gerðarmenn og framleiðendur. Að
vera í sjónlínunni skiptir miklu máli.
Ef maður hverfur í of langan tíma,
hefur það áhrif. Ég er bara það sem ég
legg í þetta. Ég vinn og skapa, en ef ég
stoppa, þá stoppar allt.“
Anita segist geta lagt samnefnara
hlutverka Hollywood-leikkonunnar
og nýbökuðu móðurinnar að jöfnu
við maraþonhlaup. „Ansi oft hef ég
sett hana í rúmið og heill dagur lið-
inn, stútfullur af verkefnum og mig
langar bara að skríða upp í rúm. Horfa
kannski aðeins á sjónvarpið. En þarf
þess í stað að gíra mig upp, skella mér
í glansgallann, greiða hárið nánast
hálfvælandi yfir að þurfa að fara í
partí eða á einhvern viðburð. Svona
er þetta líf, bransinn er alltaf í gangi,“
útskýrir hún og skýtur að:
„Á móti fær maður samt alls konar
hlunnindi og tækifæri til að lenda í
ýmsum aðstæðum. Ef ég mætti ráða,
þá væri ég bara í vinnunni að skapa, á
setti. Sleppa þessari hliðarvinnu sem
partístandið er.“
Með reynslu kemur dýpt
Blessunarlega stóð Anita ekki frammi
fyrir því sem hún óttaðist einna helst í
kjölfar meðgöngunnar og svo margar
kynsystur hennar hafa upplifað; að
hlutverkum fækkaði í kjölfar mömmu-
titilsins. „Ég er að fá breytt hlutverk, en
ekkert sérstaklega vegna þess að ég er
mamma. Sú hræðsla var ekki raun-
veruleg fyrir mig. Hlutverkin þróast
og breytast eftir því sem maður eldist.
Ég er auðvitað í allt öðrum hlut-
verkum núna en þegar ég var 21 árs.
Það er alltaf verið að skoða mann og
horfa, ekki beint dæma, en rannsaka.
Passar þessi í þennan heim, hvað
gefur hún þessu hlutverki, hvaða ele-
ment hefur hún til að færa þessu hlut-
verki. Þess vegna er maður mikið að
hugsa: Hvað er ég sem manneskja?“
útskýrir hún alvarleg.
„Það að verða móðir gefur mér
ákveðna reynslu sem þýðir að ég hef
úr öðru að byggja en áður. Þannig er
ákveðin kaldhæðni innan bransans,
að eftir því sem leikkonur eldast verða
þær betri og dýpri, hafa meira að gefa
og segja. En á sama tíma verða færri
hlutverk í boði fyrir þær. Það er stað-
reynd. Og ekki er sami standard fyrir
konur og karla í Hollywood. Sann-
leikurinn er sá að fólk heldur, eða því
finnst, karlmenn meira sexý þegar
þeir eldast en konur. Ef við horfum
bara á myndina Journey to The Cen-
ter of The Earth þar sem ég var 24 ára
gömul og lék á móti Brendan Fraiser,
þá fertugum. Það þótti bara normalt
samband. En ef þetta hefði verið á
hinn veginn, hefði sagan verið perra-
saga. Það er ruglað. Við erum of sam-
dauna því sem við sjáum á skjánum.“
Það er pláss fyrir eldri konur
„Þetta fer í taugarnar á manni en
ég veit svo sem ekki hversu mikið
maður á að pirra sig á þessu. Það eina
sem hægt er að gera er að leggja sitt af
mörkum við að þróa aðstæður. Koma
með sögur sem fjalla meira um konur,
en rosalega mikið af handritunum er
skrifað af körlum, eldri körlum. Það
er vel hægt að styðja við kvikmynda-
gerðarkonur. Þegar þær eru komnar
eða orðnar fleiri, verða fleiri sögur
með dýpt í kvenmönnunum og þar af
leiðandi opnast pláss fyrir eldri konur
í kvikmyndum.
En ég sé reyndar nýja kynslóð sjón-
varpsefnis á Netflix, Amazon og þess-
um nýju stöðvum sem eru að koma
í staðinn fyrir þessar hefðbundnu
sjónvarpsstöðvar, að þar er að eiga
sér stað breyting í efninu. Einhver
jákvæð þróun sem birtist til dæmis
í House of Cards og Narcos. Þar eru
alvöru karakterar með mikilli áferð.
Mér finnst nú þegar fólk farið að venj-
ast því. Ef maður ber saman Melrose
Place og það sem er að gerast núna,
sér maður þetta. Þetta er spennandi
þróun fyrir mig og margar í þessum
bransa. Það gefur okkur von um að
hlutverk kvenna fari að breikka og
dýpka. Maður sér að þarna eru öðru-
vísi kvenrullur í boði, allt öðruvísi
sögur á skjáum fólks en var fyrir tíu
árum.“
Svefninn hreinn lúxus
Anita segir svefnleysið í raun það
erfiðasta við móðurhlutverkið að
hennar mati og fái hún því kær-
komna hvíld um þessar mundir á
meðan á dvöl hennar hér á landi
stendur. „Eftir að hafa ekki náð fleiri
en þremur klukkustundum í sam-
hangandi svefn í tvö ár var eðlilega
það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég
kom inn á hótelherbergið mitt hérna:
Ókei, ég ætla að sofa í sjö klukkutíma,
samfleytt,“ segir hún og enn rennur á
hana bráðsmitandi bros.
Hún segist alsæl með að vera á
landinu ein síns liðs. „Það er svo erfitt
fyrir mig að að finna tíma til að gera
eitthvað svona. Maður getur ekki
verið lengur frá vinnu en í mesta lagi
viku. Jólin eru einna helst sá tími
sem bransinn sammælist um að taka
fimm til sjö daga frí. En ef þú ert að
fara í frí er það bara á þinn kostnað
og getur haft sín áhrif.“
Anita gengst hæglega við getgátu
blaðamanns um að hún sé alltaf í
vinnunni. „ Já, eiginlega. Maður þarf
að passa sig og reyna að taka tíma
bara fyrir sig. En það er svolítið erfitt,
sérstaklega í Los Angeles. Öll borgin
er undirlögð kvikmyndaiðnaðinum.
Ég er ekki nógu dugleg við að gefa mér
þennan tíma. Bara það að vera hérna
á Íslandi núna gerir það að verkum að
ég finn hvernig súrefnið smýgur inn í
frumurnar aftur.“
Anita segist þannig himinlifandi
með að hafa náð að búa sér til afsökun
fyrir Íslandsdvölinni og lætur næstum
eins og hún sé ekki í vinnunni, sem
hún er svo sannarlega. Á dögunum
sendu þær Sólveig Eiríksdóttir frá sér
bókina Mömmubitar, sem þær eru er
að ýta úr vör um þessar mundir.
Fullt starf að borða
„Mig langaði að gera bók, sem er fersk,
létt og skemmtileg. Mér fannst vanta
svoleiðis. Það er nóg til af alls konar
fræðingum á netinu þar sem alltaf er
verið að hamra á því hvað allt sé hræði-
legt og hvaða skelfilegu hlutir geti
gerst. Allt er hættulegt. Mér fannst bara
erfitt að borða og hugsa svona rosalega
mikið um hvað ég átti að vera að borða
yfir daginn til að ná öllum næringar-
efnunum. Og þá ekki síst, hvað ég gæti
borðað án þess að verða óglatt.
Fyrir mér var þetta orðið fullt starf,
ég eyddi öllum tímanum mínum í
þetta. Ímyndunaraflið datt bókstaf-
lega úr mér, fór í frí,“ segir Anita sem
sat ekki með hendur í skauti heldur sá
gat í markaði og þéttri tímatöflu.
„En mér fannst þetta svo erfitt og ég
þurfti mikið að hafa fyrir að finna út
úr þessu. Ég er enginn harðstjóri með
það sem ég set ofan í mig, mér finnst
þetta bara allt snúast um fjölbreytni.
Þannig er ég viss um að ég sé að fá nóg
af mismunandi næringarefnum. Og
þegar upp var staðið hafði ég bara
heilmikið að gefa. Lausnir sem eru
þess virði að setja í bók og til þess
fallnar að hjálpa öðrum verðandi
mæðrum. Þessi hugmynd kom bara
til mín, ég hafði ekkert hugsað mér að
gefa út bók. Auk þess sem ég þekkti
Sollu ekki neitt, en fannst samt engin
önnur koma til greina. Ég hef alltaf
verið einlægur aðdáandi hennar og
eldað mikið eftir uppskriftunum
hennar á netinu. Mundi að pabbi
hafði einhvern tíma hitt hana svo ég
fékk hann til að senda henni póst og
svo fór þetta að rúlla, tölvupóstur á
milli og svo stukkum við í símann,“
segir hún uppveðruð.
„Kreifingar“eru stórmál
„Við vorum mikið í að finna lausnir
fyrir konur með rosalega stórar
bumbur þar sem barnið hefur ýtt
maganum lengst út í horn svo hann
verður pínulítill og þær geta eigin-
lega ekkert borðað. Samt sársvangar.
Það var mikið vandamál fyrir mig.
Solla kom þá með töfralausnina, sér-
legar næringarmúffur,“ segir Anita og
blaðamaður spyr hvort hún hafi þó
ekki villst af leið líkt og margar kyn-
systur hennar í þeim hormónarússí-
bana sem meðganga getur verið.
„Ég fékk tvær aðal „kreifingar“.
Kreifingar eru stórmál, ég reyndi ein-
mitt að fá að nota orðið Kreifingur
sem kaflaheiti í bókinni minni og
kom því fyrir nefnd hjá Íslenskri
orðabók, en þar var þvertekið fyrir
það. Mér finnst orðin þörf eða sárþrá
engan veginn ná yfir ástandið,“ segir
hún og skellihlær duglega áður en
hún heldur áfram: „Ég var sumsé
með kreifing í fíkjur og svo ávexti.
Við keyptum okkur hús þegar ég var
ólétt og þar var fíkjutré í garðinum
sem getur hafa spilað inn í. Svo var ég
dálítið að vakna á nóttunni og varð
að fá kornflex með mjólk. Auk þess
hafði ég aldrei verið hrifin af smjöri
eða rjóma, en varð sólgin í það og er
enn. Þessar kreifingar eru ekkert kjaft-
æði, þetta er líkaminn okkar að kalla
á það sem vantar. Það verður að taka
mark á þeim.“
Anita sver af sér að hafa alla tíð
verið svona meðvituð um meinhollt
mataræðið. „Nei, eiginlega ekki. Það
var ekki fyrr en ég kláraði leiklistar-
skólann og fór að vinna langa daga
á settum. Þá erum við yfirleitt í tólf
klukkustunda tökum og vissara er
að vera agaður varðandi það sem
þú borðar. Ég tamdi mér því nokkuð
snemma að borða oft og lítið, enda
þarf ég að hafa sterkan haus og jafna
orku og úthald þarna. Svo ég tali ekki
um útlitið. Þetta helst allt í hendur.
Ég er þannig meðvituð vegna þess
að ég virkilega þarf þess. Meðan ég
var ófrísk fann ég allan tímann fyrir
mikilli þreytu og þá hjálpaði nær-
ingin mér gríðarlega og sjálfri líður
mér hvergi betur en á setti svo það
er býsna rökrétt að huga að þessu,“
svarar hún sannfærandi.
Spurð hvort hún hyggist leggja
fyrir sig frekari bókaskrif segir hún,
fullkomlega samkvæm sjálfri sér, að
hún viti ekkert um það enda sé rauður
þráður í hennar lífi „að um leið og eitt-
hvað er ákveðið gerist einfaldlega eitt-
hvað allt annað.“
Anita er alsæl með að geta boðið öðrum verðandi mæðrum launsina sem hana vantaði á sínum tíma. FréttAblAðið/Ernir
↣
Ef Eg mætti ráða, þá
væri ég bara í vinnunni
að skapa, á sEtti.
slEppa þEssari
hliðarvinnu sEm
partístandið Er.
Aðalfundur FVFÍ 2016
verður haldinn að Borgartúni 22
þriðjudaginn 19. apríl nk. kl.19:00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Önnur mál
Veitingar að fundi loknum
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu
FVFÍ alla virka daga milli kl. 10-15 vikuna fyrir fund.
Mætið vel og stundvíslega,
Stjórnin.
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r32 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-B
5
3
4
1
9
1
9
-B
3
F
8
1
9
1
9
-B
2
B
C
1
9
1
9
-B
1
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K