Fréttablaðið - 16.04.2016, Blaðsíða 17
Atburðir síðustu vikna hafa sýnt okkur að brýn þörf er nú á að gera grundvallar-
breytingar á leikreglum íslensks
efnahagslífs. Við getum ekki lengur
blekkt okkur með því að framganga
nokkurra einstaklinga í viðskipta-
lífinu í aðdraganda hruns hafi verið
orsök efnahagslegs skipbrots og að
með því einu að taka þá úr umferð
og skipta um menn í æðstu stöðum
væri hægt að gera fullnægjandi
úrbætur. Við þurfum að setja efna-
hagslífinu mörk með alveg nýjum
hætti.
Vafningar og snúningar
Um áratugaskeið höfum við séð
vel tengda viðskiptamenn auðgast
vegna þess að stjórnmálamenn
hafa tryggt þeim aðgang að tak-
markaðri aðstöðu eða ríkiseign-
um. Í skjóli þessa hefur vaxið og
dafnað hér á landi sérstök tegund
kapítalista – þeirra sem nærast á
annarra manna fé og leggja meiri
áherslu á taumlausan arð í eigin
vasa en raunverulega sköpun verð-
mæta sem nýtast samfélaginu öllu.
Það er þessi tegund sem flykktist í
skattaskjól til að forðast að leggja
af mörkum eftir efnum. Það er líka í
þessum anda sem bankar bjuggu til
vafninga og snúninga til að skapa
sér og vildarvinum sínum arð, en
sköpuðu engin verðmæti með því.
Þvert á móti: Vafningarnir sugu
verðmæti úr hinu verðmætaskap-
andi efnahagslífi.
Bankar fyrir heimili
Á síðustu misserum hafa Borgunar-
hneykslið og óheftar arðgreiðslur
tryggingafélaga á kostnað almenn-
ings sýnt að ekkert hefur breyst í
grundvallaratriðum. Við verðum
að laga bankakerfið að þörfum
almennings, heimilanna og verð-
mætaskapandi fyrirtækja. Setja
aukna framleiðni, en ekki bólu-
gróða, í forgang atvinnu- og efna-
hagsmálastefnunnar.
Á níunda áratug síðustu aldar
létu jafnaðarmenn í Svíþjóð og
Danmörku sig dreyma um áhrif
almennings á efnahagslíf í gegnum
sjóði launamanna sem hefðu
stjórnunaráhrif í efnahagslífinu.
Þetta var á þeim tíma talið óraun-
hæft með öllu. Uppbygging lífeyris-
sjóðanna á Íslandi hefur hins vegar
gert það að verkum að við erum
óvart komin í þá stöðu að hér eru
orðnar forsendur fyrir öflugu
félagslegu eignarhaldi.
Nýtum völd almennings
Í gegnum lífeyrissjóðina á íslensk-
ur almenningur miklar eignir í
atvinnulífinu. Við eigum að þróa
það eignarhald og knýja fram
ábyrga hegðun í atvinnulífinu og
tryggja framlag fyrirtækja til sam-
félagslegrar ábyrgðar. Lífeyris-
sjóðir þurfa að setja sér viðmið um
stjórnarhætti, eðlilegan launamun
og jöfn laun óháð kyni í þeim fyrir-
tækjum sem sjóðirnir fjárfesta í.
Jafnframt eiga lífeyrissjóðirnir, sem
glíma við kostnað af sífellt vaxandi
örorkubyrði, að setja skilyrði um
að fyrirtæki sem sjóðirnir fjárfesti
í bjóði fólki með skerta starfsgetu
störf og styðji við starfsendurhæf-
ingu af öllum toga. Og við getum
ekki sætt okkur við að virkir fjár-
festar dragi lífeyrissjóðina með sér
Ný stjórnarskrá efnahagslífsins
Árni Páll
Árnason
formaður
Samfylkingarinnar
í fjárfestingar og nýti fé almennings
til að skammta sjálfum sér auð og
völd.
Það þarf líka að tryggja almenn-
ingi í landinu arð af sameiginlegum
auðlindum og arð af ríkiseignum
og gefa ófrávíkjanleg fyrirmæli um
samkeppni um sölu þeirra.
Við þurfum líka að innleiða fyrn-
ingarleið í sjávarútvegi, sem allir
hljóta nú að sjá að er besta leiðin
til að tryggja nýliðun, samkeppni
og fullnægjandi arð af auðlindinni
til almennings.
Other people’s money
Við þurfum að nýta það tækifæri
sem nú er að opnast með umsvif-
um ríkisvaldsins á fjármála-
markaði og brjóta bankana upp
og raða upp á nýtt. Þess vegna
hefur Samfylkingin boðið hinum
heimsfræga hagfræðingi, John
Kay, til landsins 24. apríl nk. Kay
hefur nýlega skrifað merka bók
sem ber nafnið „Other people’s
money“ og fjallar um það öng-
stræti sem fjármálakerfi Vestur-
landa er komið í. Gamla tuggan
um aðskilnað fjárfestingarbanka
og viðskiptabanka nær ekki utan
um það flækjustig sem nú er við
að eiga. Það þarf róttækari breyt-
ingar. Eignastýring á ekki heima
í bönkum, enda eiga bankar ekk-
ert með að fjárfesta fyrir annarra
manna fé. Það ætti að banna
beinar fjárfestingar banka í fyrir-
tækjum. Svo þarf að verja sérstak-
lega innstæður almennings og
skilja frá annarri starfsemi banka.
Það er fullt ógert. Nú er veður til
að skapa.
Það ætti að banna beinar
fjárfestingar banka í fyrir-
tækjum. Svo þarf að verja
sérstaklega innstæður
almennings og skilja frá
annarri starfsemi banka.
OR og dótturfyrirtækin Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur
kynna starfsemina, stöðu og horfur á opnum ársfundi í Iðnó mánudaginn
18. apríl kl. 14 –16.
Við höfum tekið til í rekstrinum, bætt fjárhaginn og breytt skipulaginu.
Nú eru þau þáttaskil að 2016 er fyrsta heila árið sem við störfum undir
nýjum merkjum og breytingar eru að verða í stjórn fyrirtækisins.
Á fundinum mun:
• Haraldur Flosi Tryggvason kveðja sem stjórnarformaður OR eftir sex ára setu.
• Brynhildur Davíðsdóttir taka við af Haraldi Flosa.
• Staðan hjá OR og dótturfélögum verða rakin af stjórnendum þeirra.
• Hljómsveitin Sjálfsvorkunn skemmta gestum. Sjálfsvorkunn skipa þeir
Haraldur Flosi, S. Björn Blöndal, Sigurjón Kjartansson, Hörður Bragason
og Jón Gnarr.
Ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur
og dótturfélaga
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6–
10
81
Nánari upplýsingar um fundinn
er að finna á www.or.is
Allir eru velkomnir
Save the Children á Íslandi
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
9
-B
5
3
4
1
9
1
9
-B
3
F
8
1
9
1
9
-B
2
B
C
1
9
1
9
-B
1
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K