Fréttablaðið - 16.04.2016, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 16.04.2016, Blaðsíða 94
Í eftirminnilegasta atriði Spinal Tap útskýrir einn rokkhundurinn að magnarinn hans sé ekki bara með stillingar frá núlli og upp í tíu, heldur alla leið upp í ellefu. Það sé miklu betra. Margar kynslóðir hafa hlegið að flónsku tónlistarmannsins, en í orðum hans fólst sannleikskjarni. Það er stundum betra að komast upp í ellefu en tíu. Það sannaðist fyrir alþingiskosningarnar 1991. Um þessar mundir fjargviðrast fólk yfir offramboði forsetaefna og ekki er langt síðan stjórnlagaráð var valið á grunni mörg hundruð manna kosninga. Fyrir 1991 höfðu kjósendur hins vegar vanist því að framboðs- listar í alþingis- og sveitarstjórnar- kosningum væru sex að hámarki: fjórir til fimm hefðbundnir stjórn- málaflokkar og svo kannski eitt von- lítið smáframboð. Þetta vorið kom í ljós að ýmsir gengu með þingmanninn í maganum, hvergi fleiri en í Reykjaneskjördæmi þar sem ellefu framboðslistar komu fram. Þeim mun ergilegra í ljósi þess að nýbúið var að kaupa fokdýrt tölvu- kerfi til að halda utan um úrslitin sem taldi bara upp í tíu! Vegna þessa aukakostnaðar sem af flokkafarganinu hlaust, var óvenju mikill pirringur í garð „litlu“ framboð- anna og fulltrúar þeirra máttu jafnvel sæta því í viðtölum að svara fyrir það hversu dýr þau yrðu þjóðarbúinu. Mestar skammir hlutu þó fulltrúar eina framboðsins sem fjölmiðlar skil- greindu sem grínframboð. Meira um það síðar. Allir í bátana Það var ekki bara ergelsi vegna tölvu- kerfa sem ekki drifu upp í ellefu sem lá að baki neikvæðu umræðunni um smáframboðin. Fjölmiðla- menn börmuðu sér yfir að þurfa að sinna flokkaflórunni og sagt var að sjónvarpskappræður yrðu hreinn skrípaleikur. Davíð Oddsson, odd- viti sjálfstæðismanna, vakti reiði litlu flokkanna þegar hann talaði um skrumskælingu lýðræðisins og mót- mælti því að flokkur á borð við Sjálf- stæðisflokkinn ætti að fá jafnlangan tíma til kynningar í Ríkissjónvarpinu og Flokkur mannsins. Þá reifaði hann hugmyndir um að framboðum yrði gert að standa skil á tryggingarfé upp Talið upp í ellefu Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um ógleymanlegar kosningar. í kostnað ef þau næðu ekki lágmarks- fjölda atkvæða. En hver voru öll þessi framboð og hvernig stóð á því að þau voru lang- flest í Reykjanes- kjördæmi en ekki í stærsta kjördæm- inu, Reykjavík? Jú, í hópnum voru vita- skuld flokkarnir fimm sem enduðu á að skipa Alþingi kjörtímabilið 1991-95. S j á l f s t æ ð i s m e n n unnu mikinn sigur og fengu fimm af ellefu þing- mönnum kjördæmisins. Alþýðuflokkurinn átti nokkur sterk vígi á svæðinu og náði þremur, en þau Steingrímur Hermannsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Anna Ólafsdóttir Björns- son tóku hvert sitt sætið fyrir Framsókn, Alþýðubandalag og Kvennalista. Kvennalistinn var minnstur stóru flokkanna með 7% fylgi. Það var tvöfalt meira en hin framboðin sex hlutu saman- lagt. Þar voru þó engir aukvisar innanborðs. Til dæmis var sitjandi ráðherra í oddvitasæti F-lista Frjáls- lyndra, umhverfisráðherrann Júlíus Sólnes. Frjálslyndir voru að stofni til skipaðir félögum úr Borgaraflokkn- um sem unnið hafði stórsigur í kosn- ingunum fjórum árum fyrr undir for- ystu Alberts Guðmundssonar. Albert hvarf þó á braut, flokkurinn gekk til liðs við vinstri stjórn Steingríms Her- mannssonar og klofnaði í kjölfarið. Skattar, kvótar og fóstureyðingar Eftir að hafa varla komist á blað í fylgiskönnunum allt kjörtímabilið var framboð gömlu Borgaraflokks- mannanna nokkur fífldirfska, þótt undir nýju nafni væri og árangurinn eftir því eða 0,6% á landsvísu. Stefnu- málin voru margvísleg og fjölluðu um skattleysismörk og prósentu á matarskatti, sem hvort tveggja var mikið til umræðu um þær mundir. Þá lögðu einhverjir frambjóðendur áherslu á að endurskoða fóstureyð- ingalöggjöfina, með þeim rökum að meirihluti kvenna sem færi í fóstur- eyðingu gerðu það ekki sjálfviljugar! Þótt Frjálslyndir væru ekki stór flokkur, má segja að þeim hafi samt tekist að klofna. Heimastjórnarsam- tökin voru skipuð fólki sem stefnt höfðu að sameiginlegu framboði með Frjálslyndum en samningar tókust ekki. Var fyrir vikið grunnt á því góða milli framboðanna tveggja. Heimastjórnarmenn höfðu þyngstar áhyggjur af því að fullveldi landsins stæði ógn af Evrópubanda- laginu. Andstaðan við fyrirhugaðan samning um evrópska efnahags- svæðið var kjarninn í stefnunni, en einnig lagði hreyfingin áherslu á byggðakvóta í landbúnaði og sjávar- útvegi á þann hátt að kvótum væri úthlutað til einstakra héraða. Heima- stjórnarsamtökunum mistókst að ná fram lista í Vestfjarðakjördæmi, sem reyndist dýrkeypt. Rúv setti þá reglu að einungis hreyfingar með lista í öllum kjördæmum fengju fulltrúa í leiðtogakappræðum. Freistuðu Heimastjórnarmenn þess að fá kosn- ingarnar ógildar og endurteknar á þessum grunni, en höfðu ekki erindi sem erfiði enda með innan við þús- und atkvæði á landsvísu. Enga herskyldu Kosningabandalag Þjóðarflokksins og Flokks mannsins náði hins vegar listum í öllum kjördæmum og því sæti í sjónvarpssal. Í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi voru húman- istar úr Flokki mannsins fyrirferðar- mestir í framboðinu en annars staðar var Þjóðarflokksfólk í forystu. Stefna Þjóðarflokksins gekk einkum út á að rétta hlut landsbyggðarinnar gagn- vart höfuðborginni. Langbestum árangri náði framboðið í Norður- landskjördæmi eystra, þar sem Árni Steinar Jóhannsson, síðar þingmaður VG, hlaut 6,7% atkvæða. Í Reykjanes- kjördæmi náði fylgið hins vegar ekki einu prósenti. Z-listi Græns framboðs var aðeins í boði í Reykjavík og á Reykjanesi. Aðstandendur þess yfirleitt kornungt fólk sem fylgst hafði með uppgangi græningjaflokka í Evrópu. Græningjar voru harðir á móti álveri á Keilisnesi sem mikið var í umræðunni, en bentu þess í stað ferðamannaiðnað og vatnsútflutning sem lausnir í atvinnu- málum. Framboðið gagnrýndi þá afturför sem fælist í að óendurnýtan- legar umbúðir, svo sem fyrir gos- drykki, hefðu verið leyfðar. Þá voru friðaráherslur áberandi. Þannig vildi hreyfingin að Íslendingar tækju ein- arða afstöðu gegn Persaflóastríðinu sem þá stóð yfir og benti á þá brota- löm í stjórnarskránni að hún gerði ráð fyrir að taka mætti upp herskyldu á ófriðartímum. Ekki gáfu þessi góðu stefnumál þó nema 112 atkvæði í kjördæminu. Allnokkru færri en fjöldi meðmælenda. Aðeins of seint Tíundi var Verkamannaflokkur Íslands, sem bauð fram nálega fyrir slysni. Eða öllu heldur – listanum í Reykjaneskjördæmi hafði einkum verið ætlað að styðja við framboð- ið í Reykjavík sem aldrei varð að veruleika. Verkamannaflokkurinn var að mestu skipaður mönnum sem reynt höfðu að fá Jóhannes Guðnason (kunnasta fóðurbíl- stjóra landsins) kjörinn formann verkamannafélagsins Dagsbrúnar nokkru fyrr. Hópurinn hafði tengsl við Alþýðu- flokkinn og tók þátt í smölum fyrir Össur Skarphéðinsson í prófkjöri fyrr um veturinn, að því er virtist í von um að fá að stofna verkalýðs- ráð innan flokksins með launuðum starfsmanni. Þegar það gekk ekki var ákveðið að stofna flokk, helst með Jóhannes sem oddvita. Jóhannes kærði sig ekki um að yfirgefa Alþýðu- flokkinn, en þá var of seint að hætta við. Framboðslista var púslað saman og skilað til kjörstjórnar í Reykjavík – sjö mínútum of seint. Fréttastofur beggja sjónvarpsstöðva smjöttuðu á ógæfu umboðsmanns framboðsins, sem hefði með klaufaskap kostað listann framboðsréttinn. Kjörstjórn ákvað að líta í gegnum fingur sér, en í ljós kom að meðmælendur voru hvort sem er ekki nógu margir. Ellefta og síðasta framboðið í Reykjaneskjördæmi var það sem mest var skammað fyrir framhleypn- ina. Engu að síður fékk T-listi Öfga- sinnaðra jafnaðarmanna mest fylgi allra smáframboðanna, 459 atkvæði eða 1,2%. Öfgasinnarnir féllu rækilega á Bechtel-prófinu, en á lista þeirra var ekki að finna eina konu. Fram- bjóðendur voru flestir á svipuðum aldri, búsettir í Keflavík eða nágrenni og margir grunaðir um tengsl við Alþýðubandalagið, en litlir aðdá- endur Ólafs Ragnars. Var enda eitt af stefnumálum hreyfingarinnar að stemma stigu við innflutningi vest- firskra stjórnmálamanna til kjör- dæmisins. Háskólaneminn Guðmundur Brynjólfsson, var í toppsætinu. Í stað þess að blása til prófkjörs var röð frambjóðenda ákveðin eftir því hve- nær þeir mættu í stofnfundargleðina. Þar hafði Guðmundur ákveðið for- skot – partíið var heima hjá honum. Öfgar göfga Það var ekki bara nafn Öfgasinnaðra jafnaðarmanna sem var hnyttið. Stefnuskráin var stútfull af bröndur- um á kostnað stjórnmálastéttarinnar. Umræðan um Keilisnesálverið, sem kratinn Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra talaði sem mest fyrir, var afgreidd með því að krefjast þess að settur yrði vothreinsibúnaður á Jón sjálfan svo hann hætti þessu álvers- rugli. Þess í stað vildu flokksmenn efla landbúnað á Reykjanesskaga. Í samgöngumálum yfirtrompuðu öfgasinnarnir loforð hinna flokkanna um tvöföldum Reykjanesbrautar með því að heimta sexföldun, auk þess sem vatnsrennibraut yrði lögð milli Snæfellsness og Keflavíkur, til fiskút- flutnings. Utanríkismálastefna framboðsins byggði á stuðningi við allar undirok- aðar þjóðir. Í því skyni vildu flokks- menn efna til golfmóts á Íslandi og bjóða kúguðum indíánum frá Mont- real í Kanada. Oddvitar flokksins höfnuðu alfarið að um grínframboð væri að ræða – raunar væru allir hinir flokkarnir grínframboð. Sjálfir hefðu þeir afdráttarlausa stefnu, sem þó mætti fórna á altari bitlinganna! Og þið sem hélduð að Besti flokkurinn í Reykjavík hefði verið frumlegur? Ónei, Keflvíkingarnir í Öfgasinnuðu jafnaðarmönnunum sögðu þetta allt fyrir löngu – og lofuðu að auki að hefja á ný framleiðslu á Spuri og Miranda-appelsíni. Um þeSSar mUndir fjargviðraSt fólk yfir offramboði forSeta- efna og ekki er langt Síðan Stjórnlagaráð var valið á grUnni mörg hUndrUð manna koSninga. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Erró Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. mánudaginn 18. apríl uppboðið hefst kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Forsýning í Gallerí Fold mánudag kl. 10–17 1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r42 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 1 6 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 8 F B 1 2 0 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 1 9 -E 1 A 4 1 9 1 9 -E 0 6 8 1 9 1 9 -D F 2 C 1 9 1 9 -D D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 1 5 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.