Fréttablaðið - 16.04.2016, Side 8
orkumál Hefðu áform um bygg
ingu álvera í Helguvík og á Bakka
gengið eftir hefði það útheimt tæp
lega þúsund megavött af orku, en
orkuþörf tveggja kísilvera sem eru
að taka þar til starfa á næstu miss
erum er aðeins tíundi hluti þess
sem rekstur álveranna tveggja hefði
útheimt.
Þetta kom fram í máli Harðar
Arnarsonar, forstjóra Landsvirkj
unar, á ársfundi fyrirtækisins á
fimmtudag, sem gerði grein fyrir
rekstri fyrirtækisins og þeim
breytingum sem eru staðreynd í
viðskiptaumhverfi fyrirtækisins.
Þar vísaði hann til áforma um
uppbyggingu orkufreks iðnaðar í
Helguvík og á Bakka sem hefur um
árabil verið á teikniborðinu. Í stað
álveranna hafa komið kísilver PCC
á Bakka þar sem aflþörfin er 58
megavött (MW) fyrir fyrsta áfanga
og hins vegar kísilvers United Sili
con með aflþörf upp á 35 MW. Þetta
eru tveir nýjustu viðskiptavinir
Landsvirkjunar sem hefja rekstur á
þessu og næsta ári.
Hörður lýsti því að eftirspurn
eftir raforku fyrirtækisins væri
meiri en hægt er að anna – og það
eru ekki aðeins stóriðjufyrirtæki
sem berja að dyrum. Það eru gagna
ver sem hafa tekið til sín 30 MW frá
árinu 2012 til dagsins í dag. Það er
líka grænn iðnaður, aukin notkun
rafmagns á almennum markaði, í
ferðaþjónustu og rafvæðing í sjávar
útvegi. Orkuskipti í samgöngum,
nefndi hann einnig.
Þeirri spurningu var beint til
Harðar á fundinum hvaða skila
boð stjórnendur Landsvirkjunar
hefðu tekið til sín úr nýrri skoðana
könnun sem Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands gerði fyrir verkefn
isstjórn rammaáætlunar, og sýndi
að sextíu pró sent lands manna væru
and víg því að virkja til að auka stór
iðju á Íslandi en aðeins fimmtán
pró sent væru því fylgj and i.
Hörður sagði að niðurstaðan
„mótaðist kannski af góðu efna
hagsástandi“ en það væri áhugavert
að í sömu könnun hefði komið fram
að 75 prósent svarenda væru því
fylgjandi að virkja fyrir fjölbreyttan
iðnað, sem mikil eftirspurn væri
eftir, og rúmlega 80 prósent fylgj
andi því að virkja fyrir orkuskipti.
„Þannig að það fer mjög mikið
eftir því í hvað orkan er notuð hver
stuðningurinn er, og ég held að það
sé hlutur sem við þurfum að taka
tillit til,“ sagði Hörður í svari sínu.
svavar@frettabladid.is
Álverin hefðu
tekið 90%
meiri orku
Álver í Helguvík og á Bakka hefðu útheimt mun
meiri orku en kísilverin sem eiga að rísa munu fá.
Aflstöð Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal var komin í fullan rekstur árið 2007 –
uppsett afl er 690 MW. FréttAblAðið/GVA
Þyrfti Kárahnjúka
og Neðri-Þjórsá til að
brúa bilið
Sé orkunotkun álveranna tveggja
sem byggja átti í Helguvík og á
Bakka við Húsavík sett í sam-
hengi við kísilverin sem þar rísa
þá munar um 900 MW á orkuþörf
þeirra.
l Uppsett afl Kárahnjúkavirkj-
unar er 690 MW.
l Uppsett afl þriggja virkjana í
neðri hluta Þjórsár – Hvamms-
virkjunar, Holtavirkjunar og
Urriðafossvirkjunar – sem að
óbreyttu verða í nýtingarflokki
rammaáætlunar þegar hún verður
samþykkt, er 220 MW.
Þannig að það fer
mjög mikið eftir því
í hvað orkan er notuð hver
stuðningurinn er, og ég held
að það sé hlutur sem við
þurfum að taka
tillit til.
Hörður Arnarson,
forstjóri
Landsvirkjunar
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Rannsóknir sýna að fjölbreytileiki hefur góð áhrif á rekstur fyrirtækja,
eykur starfsánægju og getur veitt samkeppnisforskot.
8:30 Skráning og morgunverður
9:00 Fundur settur
Hvers vegna fjölbreytni?
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR
Fjölbreytileiki á vinnumarkaði
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands
Fjölmenning til framfara
Bára Mjöll Ágústsdóttir, forstöðumaður mannauðsdeildar Samskipa
Er fjölbreytni forréttindi?
Hlíf Böðvarsdóttir, fræðslustjóri Securitas
Hvað hefur íslenskur vinnumarkaður kennt okkur?
Reynslusögur starfsmanna IKEA
Hvað geta forstjórar gert?
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís
Fundarstjóri er Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar.
Skráning á vr.is eða í síma 510 1700.
Eru allir eins
í þínu fyrirtæki?
Morgunverðarfundur
um fjölbreytni og rekstur fyrirtækja,
þriðjudaginn 19. apríl kl. 9:00–11:00
á Grand Hótel Reykjavík
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
9
-E
B
8
4
1
9
1
9
-E
A
4
8
1
9
1
9
-E
9
0
C
1
9
1
9
-E
7
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K