Fréttablaðið - 16.04.2016, Blaðsíða 38
Ég er mikið fyrir að dunda mér og sökkvi mér
niður í fínvinnuna. Ég er komin með mitt horn á
vinnuborðinu og sit þar og bardúsa meðan þeir eru að
gera við harmóníum. Það er mjög kósí stemming hjá
okkur. Við erum mjög ánægð hérna. Þetta var „meant
to be“.
Myrra Rós tónlistarkona er flutt til Stokkseyrar þar sem hún smíðar fuglsvængi á
verkstæði tengdaföður síns. Mynd/Jan IngaRden
Júlíus er lærlingur hjá föður sínum Björgvini Tómassyni en Björgvin er eini
orgelsmiðurinn á landinu.
Hrafnsvartir vængir eftir Myrru en hún vinnur hverja einustu fjöður og límir svo
saman. Mynd/MyRRa RóS
Á Facebook má skoða smíði Myrru undir heitinu Fjaðrafok. Mynd/MyRRa RóS
„Ég hélt alltaf að ég væri voða
mikil borgarpía en það er æðis-
legt að vera í rólegheitunum hér
á Stokkseyri,“ segir tónlistarkon-
an Myrra Rós en hún og eiginmað-
urinn, Júlíus Björgvinsson, fluttu
úr Mosfellsbænum til Stokkseyr-
ar um áramótin. Ástæða flutning-
anna er sú að Júlíus er lærling-
ur í orgelsmíði hjá föður sínum,
Björgvini Tómassyni, sem er eini
orgelsmiðurinn á landinu.
Myrra hreiðraði svo óvænt sjálf
um sig á verkstæðinu og smíðar
þar fuglsvængi úr viðarþynnum
sem falla til við orgelsmíðina.
FjaðraFok verður til
„Ég var bara að hanga einn dag-
inn á verkstæðinu hjá þeim og
datt þá í hug að ég gæti kannski
búið eitthvað til úr afgöngunum.
Úr urðu fuglsvængir en mig lang-
aði að búa til vængi sem kæmu
út úr veggnum. Ég þreifaði mig
áfram með það hvernig viðurinn
hagaði sér og hvað væri best að
nota. Ég hef alltaf verið handlagin
en Júlíus hjálpar mér með tækni-
atriðin,“ segir Myrra. Hún segir
stemminguna á verkstæðinu afar
notalega.
FjaðraFok tónlistarkonu á
verkstæði orgelsmiðsins
Tónlistarkonan Myrra Rós hefur hreiðrað um sig á verkstæði Björgvins Tómassonar orgelsmiðs á Stokkseyri. Þangað er
hún flutt ásamt eiginmanninum Júlíusi og smíðar fuglsvængi úr viðarþynnum sem falla til við orgelsmíðina. Hún kann
vel við kyrrðina og náttúrufegurðina á Stokkseyri og hefur fundið sveitastelpuna í sér.
Guðríðarkirkju, en það verkefni
hefur verið stopp frá því hrunið
varð. Elstu hljóðfærin okkar eru
að detta á viðhaldsaldurinn. Það
verða verkefnin næstu árin, en
við erum alls ekki af baki dottn-
ir,“ segir Bjögvin.
stutt í bæinn
Myrra segir smíðina nú eiga hug
sinn allan en sinnir þó tilfallandi
tónlistargiggum. Hún hefur búið
til Facebook-síðu um fuglsvæng-
ina sem hún kallar Fjaðrafok og
segir þau Júlíus farin að leita sér
að varanlegu húsnæði á Stokks-
eyri.
„Okkur langar að kaupa hús
og setjast alveg að hérna. Svo er
stutt að keyra til Reykjavíkur
ef mann langar í bæinn. Vinum
okkar í bænum finnst líka mjög
gaman að heimsækja okkur út
í sveit. Við erum mjög ánægð
hérna. Þetta var „meant to be“.
heida@365.is
„Ég er mikið fyrir að dunda
mér og sökkvi mér ofan í fínvinn-
una. Ég er komin með mitt horn
á vinnuborðinu og sit þar og bar-
dúsa meðan þeir eru að gera við
harmóníum. Það er mjög kósí
stemming hjá okkur.“
tengdapabbi ánægður
En hvað finnst Björgvini um það
að tengdadóttirin sé komin inn á
verkstæðið?
„Við höfum bara gott af því,
þessir gömlu kallar, að fá ungt
fólk hingað inn,“ segir hann
hress. „Það er gaman að fá Myrru
og Júlíus hingað til Stokkseyrar.
Ég vonast til þess að við Júlíus
verðum saman í þessu í nokkur
ár og svo taki hann við rekstrin-
um,“ segir hann.
Björgvin er eini orgelsmiður
landsins og hefur smíðað hátt í
fjörutíu orgel sem dreifð eru um
allt land. Þó segir hann hafa dreg-
ið verulega úr nýsmíði eftir hrun.
„Ætli síðasta nýsmíði hafi ekki
verið pípuorgel í Vídalínskirkju
sem vígt var 2013. Svo fer von-
andi að ljúka orgelsmíði fyrir
Sumargjöfin fæst
í Safnbúðinni
Forvitnir ferðalangar, valkyrjur og víkingar
Mikið úrval af vönduðum miðalda- og
víkingabúningum og leikföngum.
Föndraðu fugla 1.995 kr.
Sólúr 1.550 kr.
Togarahöfn í tinboxi
2.550 kr.
Smásjá 1.995 kr.
Njósnapenni
850 kr.
Lærðu að binda hnúta 1.550 kr.
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · Sími 530 2203 · thjodminjasafn.is
Opið alla daga vikunnar 10–17 (frá 1. mai)
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G a r b l a ð ∙ h e l G i n
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
A
-2
6
C
4
1
9
1
A
-2
5
8
8
1
9
1
A
-2
4
4
C
1
9
1
A
-2
3
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K