Fréttablaðið - 16.04.2016, Qupperneq 40
Reykjavíkurdóttirin og Amaba-
dama-meðlimurinn Steinunn
Jónsdóttir hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana. Hún á að skila
BA-ritgerð eftir mánuð, hefur
verið að semja og æfa nýtt efni
með Amabadama og taka upp
plötu með Reykjavíkurdætrum.
„Amabadama var að gefa út nýtt
lag sem að heitir Aiaiai og það
er mjög skemmtilegt. Við erum
búin að vera að semja og æfa
nýtt efni og verðum örugglega
að spila mikið á næstunni. Það
er líka búið að vera nóg að gera
hjá Reykjavíkurdætrum en við
erum að klára að taka upp okkar
fyrstu plötu og erum svo bókað-
ar á nokkrar mjög spennandi há-
tíðir á Íslandi og á meginlandinu
í sumar. Annars fara dagarnir
mínir bara í það að skrifa ritgerð
og njóta veðurblíðunnar með fjöl-
skyldunni minni og vinum,“ segir
Steinunn.
Stendur eitthvað sérstakt til um
þessa helgi? Já, ég er að spila á
tveimur árshátíðum með Amaba-
dama og ég þarf að læra. Svo
mæti ég örugglega á Austurvöll
líka og mótmæli spillingunni sem
er við lýði í þessu landi.
Hver er óskamorgunmaturinn
um helgar? Gott ávaxtasalat
með jarðarberjum, bláberjum,
mangói, melónu, kívíi, banana…
og já bara fullt af ávöxtum!
Hver er yfirleitt helgarmorgun
maturinn? Örugglega hafra-
grautur með hnetusmjöri. Ég
fæ mér reyndar ekkert alltaf
morgunmat.
Þegar þú ferð út að skemmta þér
hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Það er mjög gaman að
byrja kvöldið í góðra vina hópi og
fara svo út að dansa. Ég elska að
dansa. Annars vinn ég náttúru-
lega við það að skemmta fólki
sem er úti að skemmta sér og
skemmti mér yfirleitt konunglega
við það.
Sefur þú út um helgar? Ég geri
yfirleitt mjög heiðarlega tilraun
til þess en það tekst yfirleitt ekki.
Eftir að ég varð mamma þá er
eins og ég hafi tapað þeim eigin-
leika að geta sofið út. En stund-
um, ef ég vanda mig mjög mikið,
þá næ ég að sofa til hádegis.
Uppáhaldshelgarmaturinn? Bara
eitthvað næs sem er gott á bragð-
ið og gaman að borða og ekki búið
til úr dýrum eða dýraafurðum.
Hvar er best að borða hann? Það er
alltaf gaman að fara út að borða,
til dæmis á Kaffi vínyl. Svo er
líka gaman að borða úti. Annað-
hvort á svölunum heima, í garð-
inum hans pabba eða í sveitinni
hjá tengdó.
Vakir þú fram eftir? Já, ég geri það
stundum. Ég reyni samt alltaf
að fara að sofa fyrir miðnætti.
Allavega á virkum dögum. Það
tekst bara ekki alltaf. Yfirleitt
vegna þess að ég eyði of miklum
tíma í að leita að einhverju til
að sofna yfir. Stundum horfi ég
til dæmis á „trailera“ í svipað
langan tíma og það myndi taka
mig að horfa á heila mynd.
Hvert ferðu út að dansa? Ég elti
yfirleitt bara skemmtilega plötu-
snúða. ReykjavíkSoundsystem er
í uppáhaldi enda spila þeir reggí
og það er best að dansa við reggí!
Hvernig er draumahelgin? Ég væri
alveg til í að skreppa með góðu
fólk á hitabeltisströnd, slappa af,
borða góða ávexti, drekka kok-
teila og hlusta á tónlist í sól og
tímaleysi.
Ef þú ert næturhrafn færðu þér
eitthvað í gogginn á kvöldin? Ég
er eiginlega ekki næturhrafn.
Það er svo gott að sofa og eins og
ég sagði hér áðan þá á ég mjög
erfitt með að sofa út. Þannig að
ég borða yfirleitt bara kvöld-
mat og svo næ ég yfirleitt ekki
að borða neitt annað áður en ég
sofna. Nema náttúrulega ef ég er
að djamma. Þá fæ ég mér falafel
á Mandý.
Ertu með nammidag? Hvaða nammi
færðu þér? Nei, ég er ekki með
nammidag. En ég fæ mér alveg
stundum nammi. Bara vegan
nammi samt. Engin dýr.
Hvar er best að eyða laugardags
eftirmiðdegi? Í sveitinni eða í
sándtesti.
Hvað verður í sunnudagskaffinu?
Ritskex og hummus. Og mangó.
Ég elska mangó.
Með hverjum er best að hanga um
helgar? Bara öllu góða fólkinu
sem ég er svo heppin að hafa í
lífi mínu. Fjölskyldunni minni,
vinum og samstarfsfólki, það er
eiginlega allt sama fólkið. Ég hélt
upp á afmælið mitt um daginn og
þangað mætti meginþorrinn af
þessu liði og það var alveg full-
komið!
Lærir, MótMæLir og
nýtUr VEðUrSinS
Tónlistarkonan Steinunn Jónsdóttir elskar að dansa og skemmtir sér
konunglega við að skemmta fólki sem er að skemmta sér.
Söngkonan Steinunn eyðir stórum hluta tíma síns á Þjóðarbókhlöðunni þessa dagana þar sem hún mun skila BA-ritgerð eftir
mánuð. MYND/VILHELM
365.is Sími 1817
ALLRA BESTU VINIR ÞÍNIR
ERU Á GULLSTÖÐINNI
ALLA DAGA KL. 19.00
KL. 19:00ALLA DAGA
GULLSTÖÐIN
SIGGI HLÖ
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 16:00 - 18:30LAUGARDAG
NÝTT OG
BETRA APP
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og
lestu blaðið í símanum eða
spjaldtölvunni
hvar og hvenær
sem er.
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G a r b l a ð ∙ h e l G i n
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
1
A
-3
A
8
4
1
9
1
A
-3
9
4
8
1
9
1
A
-3
8
0
C
1
9
1
A
-3
6
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K