Fréttablaðið - 16.04.2016, Side 57
| ATVINNA | LAUGARDAGUR 16. apríl 2016 17
Smíðaverk ehf óskar eftir
Mótasmiðum
Viðkomandi þarf að vera með reynslu og geta unnið sjálfstætt.
Umsóknir óskast sendar á hilmar@smidaverk.is
United Silicon er að leggja loka hönd
á byggingu kísilvers í Helguvík á
Reykjanesi. Áætlanir gera ráð fyrir að
um 60 starfsmenn muni starfa hjá
verksmiðjunni á rekstrartíma en 250
starfsmenn meðan á uppbyggingu og
uppsetningu búnaðar stendur.
Við leitum að jákvæðum,
reglusömum og dugmiklum
starfsmönnum
sem vilja leggja sitt af mörkum til að
skapa frábært rekstrarteymi. Reynsla
af störfum í stóriðju eða við annan
framleiðslutengdan iðnað er kostur en
ekki skilyrði.
Við leitum að jákvæðum, reglusömum
og dugmiklum starfsmönnum.
Nánari upplýsingar veitir
Rut Ragnarsdóttir í síma 669 6003.
Umsóknum ásamt ferilsskrá
skal skilað á netfangið rut@silicon.is
fyrir laugardaginn 23. apríl 2016.
Framleiðslustarfsmenn
Starfslýsing:
Við leitum að starfsmönnum til að vinna við framleiðslu á kísli. Um er að ræða störf
sem snúa að umhirðu framleiðsluofns, málmtöku og útsteypingu ásamt öðrum
störfum. Bæði er verið að leita að starfsfólki á vaktir og í dagvinnu.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi starfsmenn þurfa að vera áhugasamir, duglegir og nákvæmir og vera
tilbúnir til að setja sig inn í bæði virkni búnaðar og framleiðsluferil. Nauðsynlegt er
að viðkomandi eigi auðvelt með að starfa í teymi með öðrum starfsmönnum.
Viðhaldsstarfsmenn við raf og vélbúnað
Starfslýsing:
Við leitum að rafvirkjum, vélvirkjum og vélstjórum til að vinna við viðhald á búnaði
kísilversins. Hér er um að ræða störf fyrir aðila sem hafa brennandi áhuga á
fyrirbyggjandi viðhaldi.
Hæfniskröfur:
Mikil áhersla er lögð á skipulagt fyrirbyggjandi viðhald og störfin munu fela í sér
bæði beina viðhaldsvinnu og skipulagsvinnu. Viðkomandi þurfa að vera skipulagðir
og metnaðarfullir fyrir hönd búnaðar verksmiðjunnar. Viðkomandi þurfa að hafa
sveinspróf og amk 5 ára starfsreynslu.
Gæðastjóri og umsjón rannsóknarstofu
Starfslýsing:
Gæðastjóri hefur umsjón með gæðamálum framleiðslunnar ásamt því að stjórna
rannsóknarstofunni en þar eru gerðar ýmis konar efnagreiningar til að tryggja gæði
framleiðslu. Gæðastjórinn þarf einnig að vera í góðum tengslum við viðskiptavini
og utanaðkomandi rannsóknarstofur. Gæðastjórinn mun vinna að uppbyggingu
gæðakerfis fyrirtækisins.
Hæfniskröfur:
Við leitum að efnafræðingi eða einstaklingi með sambærilega menntun, þekking á
efnagreiningum eða gæðamálum er kostur. Viðkomandi þarf að hafa mjög góða
samskiptahæfileika og gott vald á talaðri og ritaðri ensku. Góð tölvukunnátta er
nauðsynleg.
Stjórnandi öryggis og umhverfismála:
Starfslýsing:
Stjórnandi öryggis, heilsu og umhverfismála (ÖHU) gegnir mikilvægu hlutverki í því
að tryggja öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi ásamt því að hafa umsjón með
umhverfismálum verksmiðjunnar. Í því skyni mun stjórnandi öryggis og
umhverfsmála þurfa að vinna náið jafnt með framleiðslustarfsmönnum sem og
yfirvöldum.
Hæfniskröfur:
Við leitum að einstaklingi sem hefur menntun og/eða víðtæka reynslu á sviði
öryggis, heilsu og umhverfismála. Fyrirtaks samskiptahæfni er nauðsynleg en
einnig þarf viðkomandi að vera ákveðinn og fylginn sér. Góð íslensku og enskukun-
nátta er áskilin ásamt góðri tölvukunnáttu.
Skrifstofustarf / móttaka í 100% stöðu
Starfið felst í alhliða skrifstofustörfum s.s. móttöku, símaþjónustu, reikningagerð,
skjalavörslu og öðrum tilfallandi daglegum störfum.
Hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að hafa haldbæra þekkingu og reynslu af skrifstofustörfum og
séu vanir að nota alhliða tölvuforrit s.s. Word, Excel, Netið, tölvupóst, DK, Navision,
hafa gott vald á íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli. Áhersla er lögð á
reglusemi, nákvæmni í vinnubrögðum, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskip-
tum.
Stálnaust sérhæfir sig í smíðum á færiböndum og ýmsum
lausnum fyrir matvælaiðnaðinn, ásamt því að annast alla
aðra smíði úr ryðfríu stáli og áli.
Einnig bjóðum við uppá vatnsskurð á flestum efnum.
Óskum eftir að ráða
Járnsmiði, vönum ryðfrírri smíði
Kunnátta í rennismíði æskileg.
Einnig óskum við eftir manni á tölvustýrða vatnsskurðarvél.
Upplýsingar gefur Svanþór í síma 849-5846
eða svanthor@stalnaust.is
Framkvæmdastjóri
fimleikadeildar
Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss
leitar að framkvæmdastjóra í 50% stöðuhlutfall
Starfið er krefjandi, skemmtilegt og fjölbreytt. Hjá deildinni er öflugt
barna-, unglinga- og afreksstarf og þar starfar sterkt teymi þjálfara,
iðkenda og sjálfboðaliða.
Helstu starfssvið:
• Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagslegu skipulagi deildarinnar.
• Samskipti við iðkendur, þjálfara og fimleikahreyfinguna
• Starfsmannastjórnun
• Mótun stefnu deildarinnar
• Skipulag viðburða, markaðsmál, kynningar og styrkumsóknir
• Samskipti við sveitarfélagið og önnur félög innan íþróttahreyfing-
arinnar
• Samskipti við styrktaraðila og fjölmiðla
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
• Þekking og reynsla af rekstrarstjórnun og fjárhagsáætlanagerð
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Skipulagður og lausnamiðaður
• Frumkvæði og leiðtogahæfileikar
• Þekking á hópfimleikum er kostur
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst, ákjósanlegt er að geta
komið eitthvað til starfa í júní til að setja sig inn í starfið.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 10. maí á
stjorn.fimleikar.selfoss@gmail.com
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þórarinsdóttir, formaður stjórnar
Ertu að leita að talent?
Við finnum starfsmanninn fyrir þig
lind@talent.is bryndis@talent.is
www.talent.is | talent@talent.is
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
9
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
A
-3
0
A
4
1
9
1
A
-2
F
6
8
1
9
1
A
-2
E
2
C
1
9
1
A
-2
C
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K