Fréttablaðið - 16.04.2016, Page 92
Eðlisfræðingurinn Stephen Hawking ásamt Yuri Milner.Alfa Centauri er nálæg-asta stjörnukerfið við sólkerfið okkar. Kerfið, sem í raun er þrístirni, birtist okkur sem björt,
silfruð stjarna á suðurhimni. Venju-
leg stjarna í glitrandi hafsjó himin-
tunglanna. Þrátt fyrir það er Alfa
Centauri stjörnukerfi sem allir ættu
að þekkja, enda er öllum hollt að
þekkja nágranna sína.
Alfa Centauri er kerfi þriggja
stjarna. Tvær þeirra, Alfa Centauri
A og B, eru áþekkar sólinni okkar.
Síðustu milljarða ára hafa þær verið
fastar í langdregnum valsi, hring-
sólandi hvor um aðra á meðan þriðja
stjarnan, rauð dvergstjarna að nafni
Proxima Centauri, fylgist með álengd-
ar eins og þolinmóður biðill. Um
Alfa Centauri B hringsólar síðan lítil
Á ljósgeisla milli
stjarnanna
Stephen Hawking og Yuri Milner boða
leiðangur út fyrir sólkerfið, í átt að næsta ná-
granna okkar, Alda Centauri stjörnukerfinu.
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
reikistjarna. Hún fannst í október árið
2012 og var nefnd í höfuðið á móður
sinni, Alfa Centauri Bb. Reikistjarnan
er á stærð við Jörðina en mun massa-
meiri. Hún snýst um fylgistjörnu sína
í aðeins 6 milljón kílómetra fjarlægð.
Þrífist líf á Alfa Centauri Bb er það
af öðrum toga en við þekkjum hér á
Jörðinni enda er yfirborðshiti plánet-
unnar um 1.227°C.
Áratuga ferðalag fyrir skyndimynd
Afdrep þessarar framandi fjölskyldu
er í aðeins 4,3 ljósára fjarlægð frá
Jörðinni, sem í alheims-samheng-
inu er eins og húsið hinum megin
við götuna. Fari allt að óskum mun
óvæntur gestur skjóta upp kollinum
í bakgarði Alfa Centauri árið 2056.
Urmull smárra geimfara, á stærð við
snjallsíma, mun þá ná á leiðarenda
eftir 20 ára ferðalag frá Jörðinni. Þessi
undarlegi skari geimfara hefur aðeins
einn dag til að taka ljósmyndir, mæla
segulsvið og jafnvel gera litrófsgrein-
ingar. Eftir nokkrar klukkustundir
tæmast rafhlöðurnar, vonandi eftir
að upplýsingunum hefur verið
komið á braut aftur til Jarðar. Innan
nokkurra ára, eða snemma á sjöunda
áratug þessarar aldar, munum við
loks sjá nágranna okkar í návígi í
fyrsta skipti.
Eðlisfræðingurinn Stephen Hawk-
ing og rússneski auðkýfingurinn
Yuri Milner eiga heiðurinn af þess-
ari metnaðarfullu hugmynd, ásamt
breiðum hópi áhugamanna úr vís-
indasamfélaginu og Kísildalnum í
Bandaríkjunum, þar á meðal Mark
Zuckerberg, stofnanda Facebook.
Hawking og Milner kynntu hug-
myndir sínar í vikunni en þar upp-
lýsti sá síðarnefndi að hann mun
verja tæplega 12,5 milljörðum króna
í verkefnið.
Milli stjarnanna á sólarsegli
Það tekur venjulega geimskutlu um
165 þúsund ár að fara til Alfa Cen-
tauri á rúmlega 28 þúsund kíló-
metra hraða á klukkustund. Hug-
mynd Hawking og Milners byggir
á sólarseglinu, framandi hugmynd
sem hefur verið kölluð framtíð geim-
ferða. Um það bil tveimur mínútum
eftir að móðurskipinu er skotið á
loft munu þúsund minni geimför
breiða út segl sín og gríðarlega öfl-
ugir leysigeislar á Jörðu niðri munu
skjóta könnunarförunum í átt að
Alfa Centauri. Samkvæmt vísinda-
mönnunum mun hraðaaukningin
nema 30 þúsund G. Geimförin munu
æða í áttina að stjörnukerfinu á 20%
hraða ljóss eða svo.
„Það er falleg samhverfa í þessu
verkefni og snotur fagurfræði,“ sagði
Milner á blaðamannafundi í vik-
unni. „Því við erum fyrst og fremst
að nota ljós. Fyrst af öllu söfnum við
saman ljósi á Jörðinni til að knýja
leysigeislann, sem sjálfur er ljós. Við
tökum ljóseindir og sendum þær
með skipulögðum hætti til að ýta
geimförunum. Geimförin sjálf nota
ljóseindir til að sigla og þegar þau
koma á staðinn taka þau ljósmyndir,
sem aftur er ljós, og senda til baka
með annarri tegund ljóss, leysigeisl-
anum. Allt hverfist þetta um ljós.“
Eðli mannsins að fljúga
Verkefnið er enn á fræðilegu stigi.
Í bjartsýni sinni áætla Milner og
Hawking að það taki tvo áratugi að
undirbúa verkefnið og önnur tutt-
ugu ár að fara til Alfa Centauri. Á
blaðamannafundinum sagði Hawk-
ing að verkefnið væri nauðsynlegur
liður í leitinni að lífi í alheiminum.
Um leið sagði Hawking að það væri
eðli mannsins að yfirstíga takmörk.
„Þyngdaraflið heldur okkur nið-
urnegldum við jörðina, en ég flaug
hingað til Bandaríkjanna. Ég missti
röddina, en ég get talað með hjálp
tölvunnar minnar. Hvernig hefjum
við okkur yfir takmörk okkar? Það
gerum við með hug okkar og vélum.
Takmarkið sem við horfumst í augu
við núna er hin mikla víðátta milli
stjarnanna. Við yfirstígum þetta
tóm með ljósinu, með seglum og
léttustu geimförum sem nokkurn
tíma hafa verið smíðuð. Kynslóðin
sem nú er uppi getur siglt af stað til
Alfa Centauri. Í dag einsetjum við
okkur að taka næsta stóra skrefið
inn í alheiminn. Vegna þess að
við erum mennsk, og það er í eðli
mannsins að fljúga og fara með
himinskautum.“
Í dag einsetjum við
okkur að taka næsta
stóra skrefið inn Í
alheiminn. vegna þess
að við erum mennsk, og
það er Í eðli mannsins
að fljúga.
Stephen Hawking
Meðferð við háræðasliti - Tilboð
Ármúla 21, 2. hæð • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Hafblik
10% afsláttur af 2 × 30 mín.meðferð
15% afsláttur af 3 x 30 mín.meðferð
20% afsláttur af 4 x 30 mín.meðferð
Miðast við samfelldan meðferðartíma.
Hljóðbylgjumeðferð
Fjarlægir háræðaslit í andliti, háræða stjörnur,
blóðblöðrur og skemmdir í húð eftir rósroða.
Hversu margar meðferðir þarf?
Algengt er 2-4 skipti, en misjafnt er hversu
margar meðferðir þarf til að fjarlægja
háræðaslit endanlega.
Sólarseglið er ekki ný hugmynd en vafalaust sú vænlegasta þegar ferðir milli stjarnanna eru annars vegar. MYnd/nASA
1 6 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r40 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
Tækni
1
6
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
8
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
9
-C
D
E
4
1
9
1
9
-C
C
A
8
1
9
1
9
-C
B
6
C
1
9
1
9
-C
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
0
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K