Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Fréttir Vorheimsókn í sveitina Ráðstefna um mat og ferðaþjónustu Atvinnuvega- og n ý s k ö p u n a r - ráðuneytið og Matvælalandið Ísland boða til ráðstefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn 20. mars kl. 12-16:30 undir yfirskriftinni „Vöxtur í ferðaþjónustu – er maturinn tilbúinn?“. Á ráðstefnunni verður fjallað um þróun matarferðamennsku hér heima og erlendis og tækifærin sem hún felur í sér. Til þess að ræða þessi mál mun Ami Hovstadius frá VisitSweden fjalla um reynslu Svía af markaðssetningu Svíþjóðar sem matvælalands. Þeir telja að sú stefna hafi skilað ótvíræðum árangri, m.a. því að erlendir ferðamenn sýna sænskum mat meiri áhuga en áður og að útflutningur matvæla hafi aukist marktækt. Laufey Haraldsdóttir, lektor í Háskólanum á Hólum, greinir frá þróun matarferðaþjónustu á Íslandi og þá mun Mário Frade, vörumerkjastjóri, Nóa Síríusi, lýsa því hvernig fyrirtækið hefur þróað markaðsáætlanir með það að markmiði að höfða til ferðamanna. Í öðrum hluta ráðstefnunnar verður fjallað um viðbrögð Íslendinga við auknum fjölda ferðamanna, framboð af íslensku hráefni og veitingaþjónustu og hvernig menningar- og matartengd ferðaþjónusta hefur þróast á síðustu árum. Á eftir erindum verða pallborðsumræður. Skráning er á si.is. Unnið að stofnun Búnaðarstofu Unnið er að því að móta tillögur um að verkefni sem ríkið hefur falið Bændasamtökunum að vinna, flytjist yfir í sjálfstæða stofnun sem hefur gengið undir vinnuheitunum Búnaðarstofa eða Greiðslustofa. Bændasamtökin hafa með samningum við ríkið séð um ýmsa greiðslumiðlun, svo sem útgreiðslu beingreiðslna, sem eru í raun á hendi ríkisins. Stefnt er að því að ábyrgð á þessum verkefnum færist til ráðuneytis landbúnaðarmála á næsta ári. Þetta kom fram í máli Sindra Sigurgeirssonar á búnaðarþingi. Hann sagði mikilvægt að umrædd verkefni yrðu flutt frá Bændasamtökunum til að aðskilja hagsmunagæslu og umsýslu með fjármagni frá ríkissjóði. Mikils misskilnings hefði gætt, meðal annars í fjölmiðlum, þar sem því hefur ítrekað verið haldið fram að Bændasamtökin væru rekin fyrir almannafé. Hið rétta væri að samtökin hafi haft umsýslu með að greiða út fé sem úthlutað væri til ýmissa verkefna, meðal annars í gegnum búnaðarlagasamning. /fr Árlega heimsækja þ ú s u n d i r s k ó l a b a r n a sveitina á vorin. Ferðirnar eru fyrir löngu orðinn fastur liður í starfi margra leik- og grunnskóla en oft slást foreldrar og aðstandendur með í för. Þeir bændur sem taka á móti gestum eru nú í óða önn að skipuleggja vorheimsóknirnar. Í ljósi þess eru skólar og aðrir sem ætla sér að fylgjast með sauðburði og öðrum vorverkum í sveitinni hvattir til að panta í tíma. Á vefsíðu Bændasamtakanna, www. bondi.is, eru upplýsingar um alla bæina sem starfa undir merkjum Opins landbúnaðar og taka á móti gestum. Formaður Bændasamtaka Íslands verður kosinn til eins árs, sem og stjórn samtakanna, eftir árið 2015. Fram til þessa hefur kjörtímabil stjórnar verið þrjú ár. Þá verður fækkað í stjórn samtakanna og verður hún skipuð fimm stjórnarmönnum en nú sitja sjö manns í stjórn. Þrátt fyrir þessar breytingar mun sitjandi stjórn klára sitt kjörtímabil og verður kosið eftir nýjum reglum árið 2016. Þetta er meðal breytinga sem gerðar voru á samþykktum samtakanna á nýafstöðnu búnaðarþingi. Fyrir þinginu lágu tillögur að mjög róttækum breytingum á samþykktum sem miðuðu að því að breyta félagskerfi bænda talsvert. Til að mynda var gerð tillaga um að tekið yrði upp félagsgjald sem annað hvort aðildarfélög eða þá félagsmenn sjálfir myndu greiða, en eins og er þá hefur félagsgjald til Bændasamtakanna verið innheimt í gegnum búnaðargjald. Eins og komið hefur fram er sú leið, að ríkið innheimti félagsgjöld fyrir Bændasamtökin, ólögleg. Ekki náðist sátt um tillöguna á búnaðarþingi og varð hún ekki að veruleika. Þá var gerð tillaga um að fulltrúafjöldi á búnaðarþingi myndi gjörbreytast og val á fulltrúum sömuleiðis. Sú tillaga náði heldur ekki fram að ganga. Hins vegar skulu búnaðarþingsfulltrúar hér eftir kosnir til eins árs en ekki þriggja eins og verið hefur. Fleiri breytingar voru gerðar á samþykktunum. Meðal annars er aflögð sú skylda að halda bændafundi árlega og lögð á sú skylda að halda að minnsta kosti einn formannafund á ári og þeirri samkomu gefið aukið vægi án þess að raska valdi búnaðarþings. Markmið náðust ekki Þessar breytingar eru afurð ályktunar Búnaðarþings 2013 þar sem samþykkt var að fela stjórn Bændasamtakanna að vinna áfram að heildarendurskoðun félagskerfis bænda. Það verði gert með það að leiðarljósi að einfalda félagskerfið, gera það ódýrara í rekstri, að það verði skilvirkara í hagsmunagæslu fyrir bændur og það tryggi þátttöku og virkni bænda. Ef horft er á umrædd markmið er vart hægt að segja að þau hafi náðst. Ljóst má vera að það að formaður, stjórn og búnaðarþingsfulltrúar séu nú kosnir til eins árs í senn getur aukið viðbragðsflýti og gert samtökin skilvirkari í hagsmunagæslu. Hins vegar er vart hægt að halda því fram að félagskerfi bænda hafi verið einfaldað að mun með þessum breytingum né heldur að með þeim hafi það verið gert til muna ódýrara í rekstri. Áfram unnið að breytingum Búnaðarþing samþykkti hins vegar að halda áfram vinnu við breytingar á félagskerfi landbúnaðarins, með það að markmiði að finna leiðir til fjármögnunar á rekstri samtaka bænda og koma með tillögur um fulltrúafjölda einstakra aðildarfélaga á búnaðarþingi. Skipaður verði vinnuhópur og ef þurfa þyki verði ráðinn ráðgjafi hópnum til aðstoðar. Stefnt er að því að leggja tillögur í þessum efnum fram til afgreiðslu á Búnaðarþingi 2015. /fr Stjórn Bændasamtakanna verður kosin til eins árs frá árinu 2016 Mynd / HKr. Tollar verða ekki felldir niður einhliða –Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fengin til að gera úttekt á íslenska landbúnaðarkerfinu Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur verið fengin til að gera úttekt á íslenska landbúnaðarkerfinu og ætti sú vinna að geta hafist í haust. Þá er verið að vinnað að því að setja saman starfshóp sem á að móta tillögur um hvernig auka megi matvælaframleiðslu á Íslandi, í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Á sama tíma er starfshópur að störfum við að greina tollamál landbúnaðar í heild sinni, bæði í innflutningi og útflutningi. Þetta kom fram í ræðu Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á búnaðarþingi. Ráðherra upplýsti að til skoðunar væri að verðlagsnefnd búvara myndi halda sig til hlés þar til vinnu Hagfræðistofnunar lyki, þar eð opinber verðlagning og framleiðslustýring séu hlutir sem stofnunin muni vafalítið taka til skoðunar. Í verðlagsnefnd búvara sitja aðilar frá launþegasamtökunum, Bændasamtökum Íslands og stjórnum búgreinasamtaka, samtökum afurðastöðva og fulltrúi ráðherra. Nefndinni er ætlað að ákveða lágmarksverð mjólkur, meta framleiðslukostnað sauðfjárbúa og semja verðlagsgrundvöll fyrir aðrar búvörur sé óskað eftir því. Hvað varðar greiningu á tollamálum er ráðgert að starfshópur skili niðurstöðu í haust. Sagðist ráðherra vonast til þess að þá yrði hægt að sjá hvernig tollvernd hefði þróast á undanförnum árum og meta hvar íslenskur landbúnaður eigi hugsanleg sóknarfæri. Tollar notaðir í öllum vestrænum löndum Ráðherra varð í ræðu sinni tíðrætt um tollamál. „Tollar eru nýttir til að jafna samkeppnisstöðu markaða til að vernda innlenda framleiðslu og eru notaðir í öllum vestrænum löndum. Það er mjög mikilvægt að innlend matvælaframleiðsla geti annað eftirspurn til að tryggja fæðuöryggi hér á landi,“ sagði Sigurður Ingi meðal annars og bætti við: „Það er búið að koma því inn hjá þjóðinni að frjáls innflutningur á ýmsum landbúnaðarvörum sé til mikilla bóta. Sumir ganga svo langt að vilja fella niður tolla einhliða. Er þá ekki síst vísað í fjárhagslegan ávinning og á það bent að háir tollar séu á innfluttum landbúnaðarvörum og slíkt sé skaðlegt neytendum.“ Aðgangur að mörkuðum verðmæti Í máli Sigurðar Inga kom fram að íslensk stjórnvöld ættu nú í viðræðum við Evrópusambandið um að auka innflutning á matvælum til landsins gegn því að fá að flytja meira út til sambandsríkjanna. „Þetta er í mínum huga algjört lykilatriði. Menn mega ekki gleyma því að aðgangur að mörkuðum er í sjálfu sér verðmæti; eftirsótt verðmæti. Ef aukið er við innflutning, mun það gerast í skiptum fyrir útflutning. Þannig tryggjum við hagsmuni okkar. Tryggjum að heildarbúvöruframleiðslan í landinu haldist óbreytt eða eflist, jafnvel þótt við deilum innlenda markaðnum með framleiðendum annarra landa.“ Gagnrýndi verslunina Ráðherrann var harðorður í garð verslunarinnar varðandi kröfur sem gerðar hafa verið á að flytja inn landbúnaðarvörur til landsins. „Tökum ostana sem dæmi, það er ekkert mál fyrir hvern sem er að flytja inn ost, buffalaost, eða hvaða ost sem er. Til þess eru ostakvótarnir, bæði á grundvelli WTO- og ESB-samninga. En það merkilega er, að þótt kvóti sé til staðar, flytur verslunin ekki þessa osta til landsins, sem hún þó segir að vanti á markaðinn. Því ekki?“ Öfl sem vilja brjóta niður stuðningskerfi landbúnaðarins „Mér sýnist svarið geta legið í því, að þetta snýst ekki um innflutninginn einan og sér. Þetta snýst um landbúnaðarkerfið í heild sinni. Ákveðin öfl í samfélaginu vilja brjóta niður stuðningskerfi landbúnaðarins og skeyta lítið um það sem tekur við, svo lengi sem þeirra eigin hagsmunum er borgið. Þetta er óábyrg afstaða. Innflutningstollarnir eru hluti af landbúnaðarstefnu Íslands og þeim verður ekki breytt nema til komi sú heildarendurskoðun sem bæði ég og forsvarsaðilar bænda eru sammála um að þurfi að eiga sér stað. Það gengur ekki að opna Ísland án þess að fá eitthvað í staðinn. Þetta er aðferðarfræði sem allsstaðar er viðurkennd, er fjarri því sér íslensk. Tollar eru fyrirbæri sem gagnast framleiðendum í viðskiptum. Ég fæ að selja hjá þér og þú færð í staðinn að selja hjá mér. Við munum ekki einhliða fella niður tolla á erlenda matvöru á meðan okkar útflutningsvörur, eins og lambakjötið og skyrið bera tolla þegar við seljum þær til annarra landa“, sagði Sigurður Ingi. /fr Mynd / TB M AT VÆL ALANDIÐ ÍSLAND FJÁRSJÓÐUR FRAMTÍÐAR

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.