Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 7

Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Matarhátíðin Food & fun var haldin dagana 26. febrúar til 2. mars í 13. sinn. Hápunktur hennar var kokkakeppnin sem haldin var í Hörpu laugardaginn 1. mars, en þar kepptu þrír bestu kokkarnir að mati dómnefndar sem metið hafði framlag gestakokkanna á veitingahúsunum dagana á undan. Það var Sven Erik Renaa, gestakokkur Vox Restaurant, og aðstoðarmaður hans Fredrik Log frá Noregi sem báru sigur úr býtum. Í öðru sæti varð Paul Cunningham, frá Grillinu, og í þriðja sæti Thomas Lorentzen frá Fiskfélaginu. Alls tóku 18 veitingahús þátt að þessu sinni og fengu til sín virta erlenda matreiðslumenn til að setja saman matseðla fyrir sína gesti af þessu tilefni. Kokkakeppnin fór fram samhliða matarmarkaði Búrsins og sömuleiðis var setning búnaðarþings í Hörpu á sama tíma, en Bændasamtök Íslands voru nú á ný einn af stuðningsaðilunum hátíðarinnar eftir nokkurra ára fjarveru. Meðfram kokkakeppninni stóðu veitingahúsin, sem þátt tóku í Food and fun, fyrir matarkynningu og buðu gestum og gangandi upp á smakk úr sínum eldhúsum. eint verður nú sagt, að tilstandið kringum 100. vísnaþáttinn, þ.a.e.s. blaðaviðtalið og rýmismeiri vísnaþáttur, hafi orðið mér til neins sérstaks vegsauka. Reyndar ól ég sjálfur enga von um að svo færi. Hins vegar varð ég fjöðrum feginn, er tók að snjóa vísum í símann minn og þar með séð fyrir efni í næsta þátt. Nokkuð einsleit voru efnistök vísnanna, þó með þeirri undantekningu, að Magnús Halldórsson, minn ærum prýddi vinur á Hvolsvelli, bókstaflega laugar mig lofi: Enga hefur Árni hrekkt, ekkert þarf að fela. Hef ég engan heldur þekkt hjartnæmari dela. Hann um aldrei stendur styr þó stöðugt fréttir letri, enda hef ég ekki fyrr annan talið betri. Þökk ber Magnúsi fyrir þægindin í minn garð: Þú ert traustur Magnús minn, miðlar óskum fínum. Hér ég enga huggun finn á heimaslóðum mínum. Ekki reyndust allir viðhlægjendur vinir norður hér. Andbýlingur minn hér við Eyjafjörð, Pétur Pétursson hóf símaatið: Árni stjörnur ei fær margar sem augnfró Norðurlands, en áferð mynda bráðvel bjargar blessuð konan hans. Mjög hann Árni marga kætir, mig þó hryggir vandi hans, því innri fegurð ekki bætir útlit þessa veslings manns. Ekki hafði Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð fyrr stautað sig gegn um vísnaþáttinn, en hann hóf skeytaskrif: Yndi veitti aukið magn, þótt undan kunni að sárna. Mér fannst heldur minna gagn í myndinni af Árna. En vonbrigði Einars viku heldur, þá hann hóf að lesa sjálft blaðaviðtalið: Hæst í þessu blaði ber, (bændamálgagninu), að Árni skyldi impra á mér í opnuviðtalinu. Þegar hér var komið ónotum var mér ljóst, að ögn myndi skorta á fullan skammt í næsta þátt. Hóf ég því að lofa verk Einars verulega. Hégómi hans enda slíkur, að slíkt gæti gripið hans grunna eðli. Líkti ég afrekum hans við þátt músarinnar í Dýrunum í Hálsaskógi sem svo fagurlega söng fyrir Mikka ref forðum. Enda stóð ekki á viðbrögðunum: Efalítið í þér brýst, ólundin að ráði, meðan lítið músartíst mjatlar til þín háði. Aumkunarvert yfirklór sendir svo Einar undir lokin: Þessa sögu þekkja menn, og þannig mun það ganga, að skella verður skolti senn með skottið undir vanga. Ekki lýkur umfjöllun um hundraðasta vísnaþátt Árna hér, – sjá allan Hryllinginn á síðu 34 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggd1@gmail.com Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM S Food & fun – íslenskt lambakjöt í norsku vinningsliði Hægt var að fylgjast með matreiðslumeisturunum að störfum á stórum skjá fyrir ofan dómaraborðin. Myndir / smh Thomas Lorentzen frá Fiskfélaginu, Paul Cunningham frá Grillinu, Fredrik Log og Sven Erik Renaa frá Vox Restaurant. Mynd / Sigurjón Ragnar Lambakjötsréttur Sven Erik Renaa og Fredrik Log, með jarðskokkum, lakkrís, brúnuðu smjöri og sítrónu. Svein Erik kynnir lambakjötsréttinn. Dóm- ararnir Flora Mikula og sjónvarps kokk- urinn kunni Ainsley Harriott að störfum. Nautalund, reyktur mergur, laukur og Góð stemning var við dómaraborðin. Matreiðsluteymi Sven Erik Renaa að undirbúa lambakjötsréttinn. Hér eru jarðskokkarnir komnir upp á disk.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.