Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014
Örmerkinganámskeið haldið á Akureyri á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins:
Tilgangurinn að tryggja sem best sönnun
á eignarrétti og rétta upprunaskráningu
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hélt örmerkinganámskeið á
Akureyri nýverið. Þrettán sátu
námskeiðið og hlutu réttindi til
að örmerkja hross. Námskeið
sem þessi eru tvískipt og er fyrri
hlutinn bóklegur, þar sem farið er
yfir vinnureglur og skýrsluhaldið
í kringum örmerkingarnar. Seinni
hlutinn er svo verklegur þar sem
þátttakendur merkja hross og fylla
út einstaklingsmerkingablöð líkt og
venja er við merkingar.
Steinunn Anna Halldórsdóttir,
sem situr í faghópi hrossaræktar hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, sá
um að kenna nemendunum fræðin en
hinn verklegi hluti námskeiðsins fór
svo fram í Fornhaga II í Hörgárdal,
hjá þeim Arnari Sigfússyni og Önnu
Guðrúnu Grétarsdóttur.
Örmerkja skal öll hross
Steinunn Anna segir að samkvæmt
reglugerð skuli örmerkja öll hross
og að öll ásetningsfolöld eigi að
örmerkja við hlið móður fyrir 10
mánaða aldur. Folöld, sem slátrað
er fyrir 10 mánaða aldur, skulu
auðkennd þannig að fæðingarnúmer
móður sé gefið upp við slátrun.
„Tilgangur örmerkinga er að tryggja
sem best rétta upprunaskráningu og
sönnun á eignarrétti,“ segir hún.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
og Bændasamtök Íslands veita
leyfi til örmerkinga og leiðbeina
um framkvæmd, annast skráningu
örmerkja ásamt meðferð og
vörslu upplýsinga og samþykkja
dreifingaraðila.
Steinunn Anna segir að
örmerkinganámskeið séu haldin
á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins eins oft og þurfa
þykir, en sá háttur sé hafður á að
áhugasamir eru settir á lista og
þegar hann hefur náð á bilinu 10
til 20 manns er efnt til námskeiðs.
Staðsetning ræðst svo af fjölda
þátttakenda á hverju svæði. Næsta
námskeið er fyrirhugað á Suðurlandi,
annað hvort nú á komandi vori, eða
næsta haust, eftir því hvort finnist
nógu mörg óörmerkt hross.
Mikilvægt að taka starfið
alvarlega
Allir starfandi dýralæknar hafa
réttindi til að örmerkja hross. Öllum
er frjálst að sækja námskeiðin, en
starfsmenn hrossaræktarsviðs
R á ð g j a f a r m i ð s t ö ð v a r
landbúnaðarins ákveða síðan
hvort menn standist þau. „Það
er afar mikilvægt að fara vel að
hrossunum, vera vel skrifandi,
fylla eyðublöðin samviskusamlega
út og skila þeim reglulega á næstu
starfsstöð Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins,“ segir Steinunn
Anna. Ekki er nauðsynlegt að allt
hestafólk hafi þessi réttindi, en því
mikilvægara er að þeir sem þau hafa
taki starfi sínu alvarlega og sinni
verkinu samviskusamlega.
„Fólk getur misst réttindin
verði það uppvíst af slæmum
vinnubrögðum,“ segir hún. /
MÞÞ
Starfsmenn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Steinunn Anna Halldórsdóttir Sauðanesi t.v. og Anna Guðrún Grétarsdóttir Fornhaga II.
Bændur í sveitinni mættu með hross til merkinga. Ríkarður Hafdal Glæsibæ II, Albert Jensen Syðra-Brekkukoti og
Arnar Sigfússon Fornhaga II. Myndir / Anna Guðrún Grétarsdóttir
Steinunn Anna leiðbeinandi og
Tryggvi Hauksson við merkingar á
námskeiðinu.
Ríkarður Hafdal (t.v.) bóndi í Glæsibæ II mætti með folöld til að merkja. Hér er
Áhugasamir nemendur á námskeiðinu: Hafdís Bára Óskarsdóttir, Daníel
Brynjar Helgason og Helgi Páll Gíslason.
Viðar Bragason á Björgum í
Hörgárdal (t.h.) mundar pennann við
útfyllingu gagna á námskeiðinu.