Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 22

Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Fyrirtækið Holt og heiðar ehf. á Hallormsstað á Héraði framleiðir síróp og sultur úr íslenskum afurðum auk þess að selja þurrkaða sveppi, fjallagrös og fleira. Allt er þetta sett í snyrtilegar umbúðir og selt á hátt í 20 stöðum víða um land. Þau voru meðal fjölda býla og fyrirtækja sem kynntu vörur sínar í Hörpunni helgina 1.-2. mars. Engin óþarfa aukaefni „Sulturnar eru eins náttúrulegar og þær geta verið. Við notum engin rotvarnarefni né hleypiefni. Við stofnuðum fyrirtækið 2009 og erum þrjú sem eigum það, ég, Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, Guðný Vésteinsdóttir og Þórólfur Sigjónsson. Reksturinn hefur gengið vel. Við vorum með kynningu hér í Hörðunni síðast í desember og höfum svo verið á mörkuðum hér og þar, fyrir sunnan og norðan. Þá hefur vörunum okkar verið tekið mjög vel,“ segir Bergrún. Rabarbarinn stendur fyrir sínu Rabarbarinn er mikið notaður í sultugerðinni, enda örugg hráefnisuppspretta á hverju ári andstætt t.d. sveppum sem mjög eru háðir veðurskilyrðum. Þau segja að í sulturnar sé notaður handtíndur rabarbari af Héraði og minna sykurmagn sé í sultunum en gengur og gerist. Í sultuna er gjarnan bætt fjallagrösum. Sulturnar eru tvennskonar, önnur hefðbundin og hin með vanillu, en báðar tegundirnar eru með viðbættum fjallagrösum. Þykja sulturnar góðar með ostum, á brauðið, með villibráðinni, í baksturinn eða út á skyrið eða með öðrum mat. Sultan er soðin að hætti mömmu og ömmu með eins lágu sykurmagni og mögulegt er. Sulturnar eru verið prófaðar og sýni send til rannsóknar með tilliti til geymsluþols, gerla og myglu. Birkisafi er allra meina bót Þá framleiða þau birkisafa sem segja má að sé blóð trésins. Safinn er ríkur af steinefnum, andoxunarefnum og hefur hagstætt sýrustig (ph- gildi). Birkisafinn er sagður hafa heilnæma virkni og jákvæð áhrif á vökvajafnvægi líkamans og komi auk þess í veg fyrir bjúg. Fyrir þá sem vilja létta sig þykir hann góður þar sem hann styður við náttúrulega úthreinsun líkamans. Nú er birkisafinn einnig sagður hafa yngingaráhrif, efla kynhvöt, bæla frjókornaofnæmi og hafa góð áhrif á húð, hár og neglur. Sem sagt sannkallaður lífselexír. Hollt og gott birkisíróp Birkisíróp sem framleit er úr birkisafa, birkilaufum og sykri. Birkisíróp er sagt hafa svipuð áhrif og birkisafinn. Í Kanada og Alaska drekka menn birkisírópið sér til heilsubótar og setja út í vatn eða te. Það tekur heilan sólarhring að sjóða birkisíróp úr safanum. Birkisírópið þykir gott á vöfflur og pönnukökur, í deserta og drykki hvers konar, m.a. í te og kaffi. Þá segja eigendur fyrirtækisins að gott sé að marinera fisk og kjöt með sírópinu ásamt kryddjurtum. Til heilsubótar er ein matskeið að sírópi sett út í glas af vatni og drukkið heitt eða kalt. Algjörir sveppir Sveppir eru svo líka á boðstólum hjá fyrirtækinu. Þar er aðallega um að ræða lerki- og furusveppi. Lerkisveppirnir eru ýmist frystir heilir litlir eða skornir í tvennt og pakkað í lofttæmdar umbúðir í 1 kg., 500 gr., 250 gr. og 100 gr. einingum. Þá eru þurrkaðir lerkisveppir seldir í 15 gr. einingum í krukkum eða eftir vigt. Furusveppirnir eru líka frystir eða þurrkaðir. Þykja sveppirnir frá Holtum og heiðum á Hallormsstað sérlega góðir í súpur, sósur eða með steikinni og ekki síst ef villibráð er á matseðlinum. /HKr. Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, Þórólfur Sigjónsson og Guðný Vésteinsdóttir í sölubás í Hörpunni. Þau stofnuðu fyrirtækið Holt og heiðar ehf. árið 2009 og hefur reksturinn gengið vel. Mynd / HKr. Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler voru að kynna einskonar grænmetispylsur sem þau kalla Bulsur á matarmarkaðnum í Hörpunni. „Við erum hér með íslenskar grænmetisbulsur sem fóru á markaðinn síðastliðið vor. Meginuppistaðan er bankabygg frá Vallanesi. Þá eru í þessu nýrnabaunir, salt frá Reykjanesi við Djúp og repja frá Þorvaldseyri. Við höfum því reynt eins og kostur er að tína til hráefni sem framleitt er á Íslandi. Þetta er kannski ekki þessi hefðbundna pylsa, enda heitir þetta bulsa. Við steikjum þær á pönnu og borðu með ýmsu meðlæti eins og kartöflumús, salati, steiktu grænmeti, bökuðum baunum, með spældum eggjum eða hverju sem er. Þetta kom á markað fyrsta júní í fyrra og viðtökurnar hafa verið mjög góðar,“ segir Svavar. „Verslanir tóku vel við sér og vildu fá að selja þessa vöru. Núna er dreifingin orðin ansi góð út um allt land og eykst stöðugt.“ Svavar og Berglind voru sammála um að markaður eins og þessi matarmarkaður í Hörpunni væri mjög af hinu góða. „Þetta er frábært framtak og svona markað þyrftum við að vera með um hverja helgi,“ segir Svavar. /HKr. Holt og heiðar ehf. á Hallormsstað: Selur sveppi, sultur og síróp sem framleitt er úr hráefni af Héraði Mýranaut er orðið nokkuð þekkt vörumerki á íslenskum kjötmarkaði. Þær Hanna Kjartansdóttir og Agnes Óskarsdóttir stóðu vaktina fyrir fyrir Mýranaut ehf. í Hörpunni á laugardaginn. Þar gafst fólki kostur á að kaupa gómsætar steikur, snitsel, gúllas, hakk, hamborgara og grafið nautakjöt. Tilgangur félagsins er einmitt að rækta úrvals nautgripi til kjötframleiðslu og selja gæðakjöt beint til neytenda. „Við höfum aðallega verið að kynna okkar vörur á mörkuðum í heimabyggð og víðar um land. Fyrirtækið hefur fengið góða umfjöllun og starfsemin gengur vel. Fólk er að kaupa okkar vörur í áskrift og fer kjöt til fjölskyldna vítt og breytt. Þetta fólk pantar aftur og aftur svo það segir okkur að það er þörf fyrir þessa þjónustu á markaðnum,“ segir Hanna. Tryggja neytendum gæðavörur Mýranaut ehf. var stofnað árið 2007 af bændunum Gunnu (Guðrúnu Sigurðardóttur) og Bjössa (Sigurbirni Jóhanni Garðarssyni) á Leirulæk. Auk þeirra var systurdóttur Gunnu, Hanna kennara meðstofnandi ásamt manni hennar Anders Larsen landbúnaðarvélvirkja að því er fram kemur á vefsíðu fyrirtækisins. Tilgangur félagsins er að rækta úrvals nautgripi til kjötframleiðslu og selja gæðakjöt beint til neytenda. Gripirnir eru aðallega holdanautgripir af Angus, Limousin og Galloway kyni en einnig elur Mýranaut upp naut af íslenska kúakyninu. Mýranaut er meðlimur í samtökunum Beint frá býli. Meginmarkmið þeirra samtaka er að tryggja neytendum gæðavörur, þar sem öryggi og rekjanleiki vöru er í fyrirrúmi. Mýranaut selur sínar vörur undir gæðamerki Beint frá býli og Vesturland Matur úr héraði (local food). Vikulega er á boðstólum ferskt ungnautakjöt til afgreiðslu. Miðað er við að pantanir berist í síðasta lagi á sunnudagskvöldum og er kjötið þá afhent á miðvikudögum. /HKr. Hanna Kjartansdóttir og Agnes Óskarsdóttir í bás Mýranauts í Hörpu. Mynd / HKr. Mýranaut á Leirulæk á Mýrum: Gæðakjöt beint til neytendaBulsur úr grænmeti er nýjung í íslenskri pyslumenningu Svavar Pétur Eysteinsson og Berglind Häsler. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.