Bændablaðið - 06.03.2014, Qupperneq 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014
BÚNAÐARÞING 2014
Fossárdalur, Friðheimar og Fjölskyldu- og
húsdýragarðurinn hlutu landbúnaðarverðlaunin
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
BREVIGLIERI – Jarðtætarar
Gerð Stærð Útbúnaður Þyngd
B123v 230 cm Sléttunarhleri 800 kg
B123v 250cm Sléttunarhleri 850 kg
B123v 280cm Jöfnunarvals 1200 kg
B123v 300cm Sléttunarhleri 950 kg
BREVIGLIERI – Pinnatætari
Gerð Stærð Útbúnaður Þyngd
Mek 170 350 Jöfnunarvals (50 cm), 2 hraða 1650 kg
Landbúnaðarverðlaunin voru
afhent í 18. skiptið við upphaf
búnaðarþings í Silfurbergi í
Hörpu. Það var Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, sem veitti
verðlaunin en þau eru hugsuð sem
viðurkenning til aðila sem á einn
eða annan hátt tengjast íslenskum
landbúnaði og hafa sýnt með
verkum sínum, áræðni og dugnað
þannig að þau eru til fyrirmyndar.
Að þessu sinni voru veitt þrenn
verðlaun, ábúendum í Fossárdal
við Berufjörð og í Friðheimum í
Bláskógabyggð og Fjölskyldu og
húsdýragarðinum í Reykjavík.
Verðlaunahafarnir fengu að
gjöf steinleirsskúlptúr á stöpli
úr íslensku birki, unninn af
listakonunni Sigríði Helgu
Olgeirsdóttur í Hruna.
Fossárdalur
Á sunnanverðum Austfjörðum, upp
af Fossárvík, við Berufjörð er 20
kílómetra langur dalur með 30 fos-
sum sem heitir Fossárdalur. Fyrir
verið á 16 stöðum í dalnum. Þar
eru nú fjórar jarðir, Eyjólfsstaðir,
Eiríksstaðir, Víðines og Lindar-
brekka. Á síðasta bænum í dalnum
er nú rekið sauðfjárbú með um 520
vetrarfóðraðar kindur, ferðaþjónus-
tu, skógrækt og rafstöð. Frá árinu
1998 hefur verið unnið markvisst
að kynbótum á sauðfénu, fyrst var
stefnt að aukinni holdfyllingu og
sett met á því sviði, seinni árin hefur
Þau hafa byggt ný fullkomin fjárhús,
umhirða gripa er til fyrirmyndar og
öll umgengni einnig. Skóræktars-
væðið í Fossárdal er með fjölbreyt-
tri skórækt og einnig nokkuð af
skjólbeltum, ásamt vistvænni land-
græðslu. Ábúendur starfa líka utan
bús við landpóstaþjónustu, rúning og
smalamennsku. Árið 1988 byrjuðu
Sævarsson búskap í Fossárdal og þá í
félagi við foreldra hennar Öldu Jóns-
dóttur og Eyþór Guðmundsson. Fyrir
15 árum keyptu þau síðan jörðina
Eiríksstaði í Fossárdal ásamt meg-
ninu af vélum og bústofni. Alda
rekur ferðaþjónustuna í endurbættu
eldra íbúðarhúsinu á Eyjólfsstöðum
í Fossárdal.
Friðheimar
Árið 1995 keyptu þau Knútur Rafn
Ármann og Helena Hermundardóttir
Friðheima í Bláskógabyggð, ákveðin
hestamennsku og garðyrkju. Síðan
hafa þau byggt upp staðinn, garðyrk-
ja alltaf verið aðal búgreinin, en fyrir
7 árum ákváðu þau að opna hjá sér
búið og bjóða gestum að koma og
kynnast bæði íslenska hestinum sem
og íslenskri ylrækt. Þau hafa frá upp-
hafa prófað ýmsar nýjar tegundir og
voru fyrst til að rækta konfekt- og
plómutómata í heilsársræktun hér
á landi og nýjasta afurðin er hinir
gómsætu Piccolo-tómatar. Í dag
rækta þau 4 tegundir af tómötum
og gúrkum í heilsársræktun með
lýsingu í 5000 fm gróðurhúsum og
framleið um 370 tonn á ári.
Knútur og Helena hafa farið í
fjölda fræðsluferða til að byggja
upp sambönd og sækja sér þekkingu.
Á síðustu árum hefur móttaka
ferðamanna orðið fyrirferðameiri og
á síðasta ári voru um 50.000 gestir
sem komu í Friðheima. Fyrir 2 árum
opnuðu þau síðan gestastofu inn í
miðju gróðurhúsi þar sem boðið er
upp á skemmtilega matarupplifun og
afurðir búsins boðnar til sölu.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Húsdýragarðurinn var opnaður árið
kynna borgarbúum og bæjargestum
íslensk dýr, með áherslu á húsdýrin.
Öll helstu íslensku húsdýrin eru að
sýna afbrigði, litbrigði, bæði kynin
og afkvæmi þeirra. Auk þess má
Einkunnarorð garðsins eru að sjá
og læra – að vera og gera og he-
fur gestum fjölgað ár frá ári. Ár-
lega koma um 200 þúsund gestir í
heimsókn. Þar af koma um 8 þú-
sund nemendur í skiplagða fræðslu
um dýr og lífríki þeirra. Þá bjóðast
11 ára nemendur að mæta snemma
morguns til hádegis og læra að vinna
eins og bóndi. Að fá að vinna sem
„bóndi“ í borginni er það vinsælt að
vinnumorgnar hafa verið uppbókaðir
í 23 ár.
Ljósm. Hörður Kristjánsson