Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 28

Bændablaðið - 06.03.2014, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Stærsta uppboð sögunnar hjá Kopenhagen Fur á minkaskinnum fór fram í annarri viku febrúar. Þá voru boðin upp um 7,1 milljónir minkaskinna og seldust þau öll til um 500 kaupenda. Þrátt fyrir um 30% verðlækkun að meðaltali frá síðasta uppboði voru íslenskir loðdýrabændur þokkalega ánægðir með útkomuna. Enda var fyrir fram jafnvel búist við enn meiri verðlækkunum í kjölfar 25% lækkunar á desemberuppboðinu þar sem sala var jafnframt dræm. Þá meta íslenskir bændur það sem ánægjulega þróun að verðmunur á dýrustu og lakari skinnum jókst á uppboðinu og standa danskir og íslenskir loðdýrabændur því enn betur upp úr á markaðnum en áður. Eigi að síður er ljóst að þessi lækkun hlýtur víða að taka verulega í hjá minkaræktendum þó að flestir íslensku bændanna telja sig geta þolað bærilega lægra verð um einhvern tíma. Fóðurkostnaður er talin vera mjög svipaður um allan heim og hefur farið ört hækkandi. Aðrar helstu breytilegu rekstrarstærðirnar svo einhverju nemur eru starfsmannalaun og orkukostnaður. Sífellt hækkandi framleiðslukostnaður plagar þó ekki bara kínverska bændur sem að jafnaði eru með tiltölulega verðlítil skinn, því 60% hækkun framleiðslukostnaðar hjá íslenskum bændum síðan 2010 er farin að valda þeim verulegum áhyggjum. Þar er styrking krónunnar líka farin að vega þungt. Góður árangur íslensku minkabændanna á markaðnum í Kaupmannahöfn vekur þeim þó vonir um að það takist að sigla klakklaust í gegnum yfirstandandi niðursveiflu. Meiri velta en sem nemur öllum fiskútflutningi Íslendinga Kopenhagen Fur er gríðarstórt fyrirtæki, jafnvel á danska vísu. Það selur um 21 milljón skinna á fimm uppboðum á hverju ári. Starfsmannafjöldinn er þó aðeins um 350. Veltan var um 1,25 milljarðar danskra króna á árinu 2012 eða um 260 milljarðar íslenskra króna (miðað við gengi dönsku krónunnar 26. febrúar sl.). Búist er við að reikningar síðasta árs sýni enn hærri tölur eða allt að 280 milljarða íslenskra króna og allt er þetta undir einum hatti. Það er meira en sem nam útflutningsverðmæti allra sjávarafurða á Íslandi árið 2012 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Verðmæti þeirra var 276,8 milljarðar króna. Velta og umsvif Kopenhagen Fur skiptir því efnahag og útflutning danska ríkisins verulegu máli. Í heimsókn til Kopenhagen Fur Fulltrúi Bændablaðsins fékk að slást í för með stjórn Sambands íslenskra loðdýrabænda (SÍL) á uppboðið í Kaupmannahöfn. Auk stjórnarmannanna, Björns Halldórssonar, formanns SÍL og bónda á Akri í Vopnafirði, Skarphéðins Péturssonar, bónda á Hrísum í Svarfaðardal, og Jesper Lyhne Bækaard, bónda í Héraðsdal II í Skagafirði, þá var framkvæmdastjóri sambandsins, Árni V. Kristjánsson einnig með í för. Þar að auki var Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands með í hópnum til að kynna sér starfsemi uppboðsmarkaðarins sem og Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbún- Loðskinnauppboðshúsið Kopenhagen Fur: Danskt samvinnufyrirtæki sem veltir meiru en sem nemur öllum fiskútflutningi Íslendinga – Þar hafa íslenskir minkabændur trónað í silfursæti skinnaframleiðenda á heimsvísu undanfarin ár, næst á eftir Dönum Myndir / HKr. Kopenhagen Fur. Myndir / HKr.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.