Bændablaðið - 06.03.2014, Side 29

Bændablaðið - 06.03.2014, Side 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 aðarins (RML), og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, fagstjóri búfjárræktar-sviðs RML. Torben Nielsen, framkvæmda- stjóri Kopenhagen Fur, og Tage Pedersen, stjórnarformaður félagsins, settust niður með gestunum frá Íslandi og gáfu sér góðan tíma, þrátt fyrir annir, til að útlista fyrir þeim starfsemi félagsins. Þess má geta að Tage er jafnframt er minkabóndi og rekur stærstu fóðurstöð fyrir minkaræktina í Danmörku. Stærsta loðdýraskinna- uppboðshús í heimi Kopenhagen Fur, eða „Kaupmanna- hafnar loðskinn“ er samvinnufélag og leiðandi á heimsvísu og jafnframt stærsta loðdýraskinnauppboðshús í heimi. Í stefnu félagsins er mikið lagt upp úr samfélagslegri ábyrgð. Tekur það einnig þátt í slíkri vinnu á vegum Sameinuðu þjóðanna (UN Global Compact) sem tekur til mannréttinda, umhverfismála og að vinna gegn spillingu í heiminum. Félagið er nú í eigu 1.500 minkabænda innan Samtaka danskra loðdýraræktenda sem stofnuð í miðri kreppunni í dönskum landbúnaði árið 1930. Fram að stofnun þeirra samtaka höfðu einstaka bændur í Danmörku prófað sig áfram í loðdýrarækt með innflutningi á ref frá Noregi og öðrum loðdýrum frá Kanada. Þau skinn voru verið seld í gegnum fyrirtækið Kjöbenhavns Pelscentral sem keypt var af Samtökum danskra loðdýrabænda árið 1946. Þar með var grunurinn lagður að gríðarlegri velgengni danskra loðdýraræktenda á heimsvísu. Danskir minkabændur ala nú um 15,6 milljónir minka á ári. Er þetta þriðja stærsta dýraeldisgreinin í Danmörku. Minkaeldi leiðir einnig til aukinnar sjálfbærni í dönskum landbúnaði þar sem úrkast úr sláturhúsum í öðrum greinum er nýtt í minkafóður. Þá kaupa danskir minkabændur einnig mikið af fóðri sem unnið er úr fiskúrgangi frá Íslandi. Þess má geta að íslenskir minkabændur eru ekki stórir framleiðendur í samanburði við Dani og selja árlega um 180- til 190 þúsund skinn. Í fyrra fengust um 2,2 milljarðar fyrir íslensku skinnin. Búast minkabændur við að sölutölurnar geti lækkað umtalsvert á þessu ári, eða jafnvel niður í um 1,3 milljarða króna. Yfir 21 milljón skinna seld árlega í Danmörku Í gegnum Kopenhagen Fur eru seld yfir 21 milljón skinna á ári. Þar af er danski uppboðsmarkaðurinn með nálægt 95% af skinnum í verðmestu flokkunum á heimsvísu. Tage Pedersen, stjórnarformaður Kopenhagen Fur, reiknar með að yfir 80 milljónir minkaskinna seljist í heiminum á þessu ári og segir að salan hafi tvöfaldast á örfáum árum. Vegna lækkunar á verði á markaðnum undir lok síðasta árs sendi félagið út þau skilaboð til kaupenda að á uppboðinu nú yrði reynt að mæta verðkröfum markaðarins til að selja sem mest. Þessi skilaboð féllu greinilega í góðan jarðveg. Öll þau 7,1 milljón skinna sem boðin voru upp seldust og á verði sem menn telja ásættanlegt miðað við stöðuna. Þá ýtir það greinilega undir sölu á markaðinn að Kopenhagen Fur býður kaupendum lán til skinnakaupa á afar hagstæðum kjörum. Nú bíða menn spenntir eftir næsta uppboði í Kaupmannahöfn í vor sem gefur væntanlega línuna um hvort verðstöðugleika verði náð. Í millitíðinni er reyndar stórt uppboð í Hong Kong sem tekur trúlega mið af uppboðinu í Kaupmannahöfn. Fréttir af skinnauppboði hjá North American Fur Auction (NAFA) í Toronto í Kanada um miðjan febrúar herma að þar hafi ekki náðst eins gott verð og í Danmörku. Eigi að síður seldist megnið af skinnunum sem í boði voru. Næstu uppboðum NAFA, sem er stærsta skinnauppboðshús í Norður Ameríku og það þriðja stærsta á heimsvísu, hefur hins vegar verið seinkað nokkuð. Heildarsala NAFA á ári er um 6 milljónir skinna, eða talsvert minna en selt var hjá Kopenhagen Fur nú á febrúaruppboðinu. Dýravelferð ofarlega á blaði Mikið er lagt upp úr dýravelferð í dönskum minkabúum og upplýsingaflæði þar um til almennings líkt og á Íslandi. Tók Kopenhagen Fur þátt í að móta reglur um dýravelferð með dönskum yfirvöldum árið 2007 þar sem gengið er mun lengra en reglur ESB segja til um. Telja danskir minkabændur slíkt skipta verulegu máli í ímyndarbaráttu sinni gegn aðgangshörðum aðgerðarhópum andstæðinga loðdýraeldis. Alvarleiki málsins er augljós því aðgerðir gegn loðdýrarækt hafa m.a. leitt til þess að hollenskir minkabændur eru að hrekjast þar úr landi vegna banns sem við minkarækt samþykkt var á hollenska þinginu árið 2012 og tekur gildi árið 2024. Hefur Kopenhagen Fur stigið fram fyrir skjöldu danskra minkabænda við að auka upplýsingagjöf til almennings og stjórnmálamanna. Þannig hefur þeim tekist snúa gagnrýni á greinina sér í hag. Í 80 þúsund fermetrum Vinnuheitið „Danish Fur Sales“ varð fljótlega þekkt um allan heim. Árið 1963 var uppboðshúsið flutt til Glostrup í útjaðri Kaupmannahafnar. Í dag eru húsakynni Kopenhagen Fur um 80 þúsund fermetrar þar sem milljónir skinna eru flokkuð, metin og seld í stórum einingum til áframvinnslu, þ.e. sútunar og síðan til feldskera og tískuhönnuða víða um heim. Úr skinnunum eru ekki bara saumaðar loðkápur, jakkar, húfur og vettlingar, heldur eru þau nú notuð á mjög fjölbreyttan hátt í hátískuiðnaði, skartgripagerð og jafnvel í húsgögn. Mikil vísindaþekking Kopenhagen Fur rekur heljarmiklar rannsóknarstofur og er auk þess með um 20 ráðunauta í minkarækt á sínum vegum. Þá fer fram mikil iðnþróun á vegum félagsins og er nú smám saman verið að tæknivæða skinnaflokkunina sem hefur að mestu verið byggð á sjón- og skynmati fjölda matsmanna. Er m.a. búið að taka í notkun röntgenbúnað við flokkunina til að meta hárlengd á skinnum og litgreiningarbúnað til að flokka skinn eftir litum. Verslað með margar skinnategundir Uppboðsmarkaðurinn býður ekki eingöngu upp minkaskinn, því þar eru líka boðin upp refaskinn, chinchilla-kanínuskinn, rex- kanínuskinn, selskinn, skinn af sable-dýrum (marðartegund sem upprunnin er í Úralfjöllum í Rússlandi), skinn af karakúlsauðfé og swakara-skinn, sem eru skinn af nýfæddum karakúllömbum. Mikið ævintýri Þróun í sölu íslenskra minkaskinna hefur verið ævintýri líkust undanfari ár. Hvert verðmetið var slegið af öðru og afkoman eftir því góð. Íslenskir loðdýrabændur hafa greinilega veðjað á réttan hest ef svo má segja í ræktun með því að fylgja því besta sem danskir bændur voru að gera. Þannig hafa íslensk skinn verið í næst verðmætasta sæti á uppboðum undanfarin ár og stefna Íslendingar nú ótrauðir á að komast upp úr þeim meðaltalstoppi sem danskir bændur hafa trónað á mörg undanfarin mörg ár. Til gamans má geta þess að íslensk skinn toppuðu um tíma þau dönsku á næst síðast degi uppboðsins í Kaupmannahöfn, en að vísu var þá verið að tala um tiltölulega fá skinn. Kínverjar halda uppi markaðnum Ljóst var að mikil fjölgun þokkalega efnaðrar millistéttar og líka í hópi ríkra Kínverja knúði áfram aukna eftirspurn á loðskinnum. Íslenskir loðdýrabændur gerðu sér þó fyllilega grein fyrir því að stöðugar verðhækkanir voru ekki komnar til með að standast til lengdar. Þegar komið var fram yfir mitt síðasta ár var ljóst að það stefndi í verðlækkanir. Mikil útsjónarsemi og ýtt undir sköpunargleði Það er greinilegt á orðum Torben Nielsen, framkvæmdastjóra Kopenhagen Fur, og Tage Pedersen stjórnarformanns að mikil vinna og útsjónarsemi er á bak við velgengni fyrirtækisins. Þeir eru vel með á nótunum hvar sem borið er niður og til að ýta undir þróunin til framtíðar taka þeir líka ríkan þátt í að ala hönnuði framtíðarinnar upp í notkun á skinnum. Kopenhagen Fur tekur þannig ríkan þátt í starfsemi hönnunarhússins Kick í Kaupmannahöfn, en Kick stendur fyrir Alþjóðamiðstöð í sköpun í Kaupmannahöfn (Kopenhagen International Center for Kreativitet). Þar er rekinn hönnunarskóli sem er einn af mörgum slíkum og gerðar eru margvíslegar tilraunir með skinn í vöruhönnun. Þar var m.a. verið að vinna fyrir eðalsteinafyrirtæki sem vildi láta samþætta notkun eðalsteina í flíkur úr loðdýraskinnum. Engin takmörk eru sett á hugmyndavinnuna af hálfu Kopenhagen Fur, sem útvegar skinn til margvíslegrar tilraunastarfsemi hvað varðar t.d. litun skinna og aðra efnismeðhöndlun. Þannig ýta stjórnendur fyrirtækisins stöðugt undir að breikka nýtingargrunninn fyrir loðskinn um allan heim. /HKr. Köll og handapat einkennir skinnauppboð eins og þetta enda skiptir öllu máli hver er fyrstur að rétta upp hendi til að vekja athygli uppboðshaldara. Kaupendur sem bjóða í skinnin í uppboðssalnum eru með her matsmanna með sér. Þeir eru þá oft í öðrum sal að meta og vega sýnishorn af þeim skinnum sem verið er að bjóða upp og hringja þá gjarnan í sinn mann í salnum til að láta vita hvort rétt sé að bjóða í viðkomandi skinnabúnt eða ekki. Mikil tækniþróunarvinna fer fram á vegum Kopenhagen Fur. Hér er verið að raða skinnum á færiband sem sendir skinnin í gegnum sérhannað skinnalitgreiningartæki. Hér er búið að pakka miklum fjölda skinna sem senda á til Kína. til að nýta skinn í sinni sköpunarvinnu. Hér eru gestir í heimsókn hjá Kopenhagen International Center for Kreativitet - Kick.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.